Hlaðvarp fyrir fólk með góðar hugmyndir og stóra drauma! Langar þig að stofna eigið fyrirtæki, styrkja þitt persónulega vörumerki eða gera eitthvað alveg nýtt? Í Vörumerki leiða Margrét Björk og Arna Þorsteins hlustendur inn í heim vörumerkja, sköpunar og frumkvöðlastarfs. Þær ræða við fólk sem hefur byggt upp eða starfað fyrir sterk vörumerki, þá sem hafa tekið stórar ákvarðanir, gert mistök og lært af þeim. Inn á milli deila þær eigin reynslu og raunveruleikanum á bak við það að taka sénsinn þrátt fyrir að vera ekki með allt á hreinu. Byrja, og gera það svo vel!

S2E7 | Ásthildur stofnandi Mist & Co - Vandamálið sem varð að vörumerki
Þessi þáttur fangar kjarnann í því sem Vörumerki snýst um: að sjá vandamál, fá hugmynd að lausn...og framkvæma hana. Ásthildur Gunnlaugsdóttir var aðeins 26 ára þegar hún fékk hugmynd að lausn við vandamáli sem hún hafði sjálf glímt við í starfi sínu sem förðunarfræðingur. Úr þeirri hugmynd varð Mist & Co., íslenskt vörumerki sem gerir þrif á förðunarburstum einfaldari, fljótlegri og fallegri. Í þættinum ræðum við meðal annars: - Framleiðsluferlið og þær óvæntu áskoranir sem koma upp þegar hugmynd á að verða að alvöru vöru - Umbúðirnar og hversu stóru hlutverk þær gegna í upplifuninni af vörumerkinu - Hvernig kokteilskóli fjármagnaði fyrstu framleiðsluna - Fyrsta fundinn með Hagkaup, þar sem Ásthildur mætti með frumgerð sem var, að hennar eigin sögn, „basically blað“ - Samfélagsmiðla, frumkvöðlalífið og uppbyggingu vörumerkis frá grunni, frá hugmynd og konsepti yfir í sölu og dreifingu. - Spennandi hluti framundan hjá Mist & Co. Mist & Co. er þó ekki eina fyrirtækið sem Ásthildur hefur komið á laggirnar. Hún og kærasti hennar stofnuðu einnig Kokteilskólann og Reykjavík Cocktails, samhliða því að eignast tvö börn á síðustu árum. Þetta er þáttur fyrir alla sem vantar innblástur til að byrja, framkvæma og halda áfram, fullur af raunverulegum ráðum og innsýn í allt það sem gerist á bak við tjöldin þegar vörumerki verður til. Og já… þú vilt líklega fara að þrífa förðunarburstana þína eftir þennan þátt. 🫣🦠 - 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

S2E6 | Andreas hjá Sahara - Fleiri fylgjendur eru ekki markmiðið
Andreas Aðalsteinsson hjá auglýsingastofunni Sahara veit sannarlega eitt og annað um markaðssetningu, ekki síst þegar kemur að samfélagsmiðlum. Hann fer yfir það sem virkar í dag: hvað grípur athygli, hvað skapar tengingu og hvað hjálpar vörumerkjum að vaxa. Umræðuefni þáttarins eru meðal annars: Er „branding vs. sala“ röng spurning? Af hverju segir fylgjendatala ekki alla söguna? Hvaða íslensku áhrifavaldar standa sig best? Hvernig nær maður athygli fólks á fyrstu 3 sekúndunum? Hvað gerir content áhrifaríkt? Skiptir rétta tilfinningin meira máli en „súpa dagsins“? Andreas hjálpar okkur að setja hlutina í samhengi þegar kemur að skilaboðum, samfélagsmiðlum, auglýsingum og vexti. Þetta er þáttur fyrir frumkvöðla, fyrirtækjaeigendur, markaðsfólk og alla sem hafa einhvern tímann hugsað: „Við þurfum að vera virkari á samfélagsmiðlum… en hvað eigum við eiginlega að gera?“ -- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

S2E5 | Hjörtur (og Magnús) - Hvernig getur gervigreind einfaldað líf þitt?
Í þættinum fáum við Hjört Sigurðsson, gervigreindarsérfræðing og stofnanda Mynstra, til að útskýra AI á mannamáli. Tilgangurinn er að átta sig á hvernig venjulegt fólk, frumkvöðlar og fyrirtæki geta byrjað að nota gervigreind til að einfalda lífið og spara tíma. Stjarna þáttarins er þó án efa Magnús, persónulegi gervigreindaraðstoðarmaðurinn hans Hjartar. Hann les og svarar tölvupóstum, fer yfir verkefnalista, gerir matarplan, tekur til á SharePoint….og skrifar ljóð í frítímanum. Við ræðum líka bréfaklemmu-heimsendaspána, hvort AI muni taka yfir störfin okkar, hvað fólk gerir ennþá betur en gervigreind og hvar mörkin liggja. Í þættinum lærir þú meðal annars: Hvernig þú getur byrjað að nota gervigreind án þess að mikla það fyrir þér. Hvernig persónulegur AI-aðstoðarmaður getur létt þér amstur hversdagsins. Hvaða forrit eru best fyrir fyrstu skrefin og hvernig þú talar við gervigreindina svo hún skilji þig. Hvernig AI getur nýst í vinnu, rekstri, heimilislífi og hugmyndavinnu. Þetta er þáttur fyrir alla sem hafa hugsað: „Ég veit að ég ætti að vera að nota gervigreind… en ég veit ekki hvar ég á að byrja.“ Gervigreindin þarf ekki að vera flókin, tæknileg eða yfirþyrmandi. Ekki mikla þetta fyrir þér. Bara byrja! -- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

S2E4 | Fyrstu skrefin að sterku vörumerki
Stútfullur þáttur af ráðum fyrir alla sem stefna á að stofna eigið fyrirtæki, hvort sem það er verslun, vörumerki, þjónusta, námskeið, vara..... eða bara hugmynd sem er farin að biðja um að verða að einhverju stærra. Arna og Margrét fara ítarlega yfir fyrstu skrefin við að byggja upp vörumerki, og það sem þarf að liggja fyrir áður en þú ferð í lógó, lén og Instagram. Við ræðum meðal annars: – hvað þú ert í raun að selja – hverjum þú ert að selja – hvað gerir þig öðruvísi – hvernig þú finnur markhópinn – af hverju sagan skiptir máli – hvernig þú heldur fókus – hvað þarf að passa áður en þú ferð af stað – og af hverju manneskjan á bakvið merkið skiptir máli .....Og loksins talar Margrét almennilega um vörumerkið sitt. Hún segir frá sögunni á bakvið nafnið, hugmyndafræðinni og því sem hún er í raun að reyna að byggja upp. Avelin Rae er ekki bara skartgripamerki, heldur vörumerki með skýra sýn á gæði, tímalausan stíl og hversdagslúxus. Arna kemur svo með sitt sterka sjónarhorn úr vörumerkjavinnu og rekstri, spyr réttu spurninganna, setur hlutina í samhengi og gerir þetta bæði praktískt og skýrt. -- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall+, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 🎶 Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

S2E3 | Sara í Júník - Andlit vörumerkis í 15 ár
Sara Lind Pálsdóttir var aðeins 21 árs þegar hún opnaði tískuvöruverslunina Júník. Þrátt fyrir enga reynslu úr viðskiptalífinu, en með brennandi áhuga á tísku og fatnaði, sá hún gat á markaðnum og ákvað að stökkva í djúpu laugina. 15 árum síðar er Júník ein þekktasta fataverslun landsins og Sara sjálf löngu orðin órjúfanlegur hluti af vörumerkinu. Í þættinum fer Sara yfir ótrúlega sögu Júník: fyrstu árin, LA-ferðirnar, djammkjólana, útvarpsauglýsinguna sem allir þekkja, samfélagsmiðlana, áhrifavalda, sumartískuna og margt fleira. Við ræðum líka hvernig það hefur verið að vera andlit vörumerkis í 15 ár, vinnuna á bak við tjöldin, mörkin á milli vinnu og einkalífs, kjaftasögurnar, nafnlausar Facebook-færslur og hvernig hún ákvað að taka á þeim, auk alvarlegra veikinda sem settu lífið, vinnuna og forgangsröðunina í nýtt samhengi. Einlægt, skemmtilegt og djúsí spjall við ofurkonuna Söru í Júník. -- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

S2E2 | Davíð Örn Símonarson - Hinn fullkomni prófíll
Davíð Örn Símonarson, framkvæmdastjóri og annar stofnandi Smitten, er fyrsti viðmælandi okkar í seríu 2 af Vörumerki. Í þættinum ræðum við söguna á bak við skemmtilegasta dating-app í heimi, hvernig app verður að vörumerki, fjármögnun fyrir frumkvöðlaverkefni og bókina sem kveikti frumkvöðlaeldinn hjá Davíð. Davíð segir frá verkefnunum, tilraununum og lærdómunum á undan Smitten og af hverju það hefur aldrei komið til greina að gefast upp. Svo förum við auðvitað í stóru spurninguna: Hvernig er hinn fullkomni Smitten-prófíll? Hvaða myndir virka? Hverjar alls ekki? Hver eru rauðu flöggin? Og hvernig byrjar maður samtal án þess að segja bara „hæ“? Mögulega fórnar Margrét sér fyrir málsstaðinn... og skráir sig á Smitten í þættinum. Davíð hjálpar henni að velja réttu myndirnar og hikar ekki við að benda á þær sem eru ekki málið. Þetta er þáttur fyrir alla sem vilja heyra skemmtilegt samtal um frumkvöðlastarf, vörumerki, lærdóm og fjármögnun, nú eða bara þá sem vilja fullkomna Smitten-prófílinn sinn. --- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 🔊 Sérstakar þakkir fyrir hljóð- og eftirvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

S2E1 | Arna & Margrét – „Hver er ég þá?“
Í fyrsta þætti s02 ræðum við miklar breytingar í persónulega lífinu hjá Margréti frá síðustu seríu og sjálfsmyndarkrísu sem Arna hefur staðið frammi fyrir eftir að hún sagði skilið við auglýsingastofuna Sahara. Á ólíkan hátt fundum við okkur báðar á þeim stað þar sem við þurftum að spyrja okkur: ….Hver er ég þá? Þá segir Arna frá hugmyndinni á bakvið H9 Studio og Margrét fer yfir stöðuna á vörumerkinu sínu. Þetta er þáttur fyrir alla sem standa á tímamótum eða þurfa smá hvatningu til að taka næsta skref. 💥 Bara byrja - og gera það svo vel! --- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

09 | Baldvina Snælaugsdóttir – Sagan hennar mömmu
Í þessum þætti sest ég niður með mömmu minni, Baldvinu Snælaugsdóttur (Baddý). Upphaflega átti þátturinn að snúast um rúmlega 25 ára feril hennar í markaðsmálum, eftirminnilegar herferðir og lífið í bransanum. En úr varð djúpt og persónulegt samtal um það þegar lífið fór á hvolf á einni nóttu, eftir að hún veiktist alvarlega í kjölfar heilaskurðaðgerðar fyrir nokkrum vikum. Við ræðum örvæntinguna á spítalanum, bataferlið og hvernig hugsanir og baráttustraumar fólksins hennar skiluðu sér á ögurstundu þegar mest á reyndi. Hún segir einnig frá því hvernig hún hafði fundið þetta á sér og gert ráðstafanir í vinnunni, meðal annars með því að stíga til hliðar og ráða eftirmann sinn sem markaðsstjóra Kringlunnar aðeins nokkrum dögum áður en hún fór í aðgerðina. ❤️ Mamma hefur alltaf verið mín fyrirmynd, en aldrei meira en einmitt núna. Þetta er sagan hennar, og sagan okkar beggja. Þátturinn markar lok fyrstu seríu Vörumerkisins. Í næstu seríu hefst nýr kafli þar sem þið fáið að fylgjast enn meira með mínu ferli við að byggja upp eigið vörumerki, Avelin Rae. ---- ✨ Þessi þáttur er í boði 👟 Skór.is & Alfreð: Kynntu þér Hæfnileitina! ♡ Þátturinn er tekinn upp í Tekk stúdíói. 📱 Fylgdu Vörumerki á bakvið tjöldin á Instagram @vorumerki

08 | Heiðbjört Ósk - Þegar erfiðar aðstæður kveikja nýjan neista
Viðmælandi þáttarins að þessu sinni er ekki forstjóri stórfyrirtækis eða virtur aðili í markaðsbransanum. Heiðbjört Ósk er kona sem við getum margar tengt við, móðir, snyrtifræðingur, sem eftir 15 ár í sama starfi var farin að finna fyrir leiða og þörf fyrir breytingu. Þegar sonur hennar veiktist alvarlega og var frá skóla í tæp tvö ár fór Heiðbjört að kenna honum heima. Það kveikti neista hjá henni sem hún ákvað að fylgja og hún skráði sig í kennaranám. Nú þremur árum síðar hefur lífið tekið algjöra U-beygju. Auk þess að hafa skipt um starfsvettvang gaf Heiðbjört á dögunum út sína fyrstu bók; Mamma, sagan þín, og stofnaði útgáfufélag. Í þættinum ræðum við ferlið við bókaútgáfuna og hversu mikið gæfuspor það reyndist henni að viðurkenna að hún þyrfti ekki að gera allt ein. Hún segir frá því hvernig það að fá fleiri með sér í lið gerði ferlið skemmtilegra og mun árangursríkara. Mikilvægi þess að láta ekki starfstitla skilgreina sig. Af hverju stefnubreytingar eru aldrei mistök heldur merki um vöxt. Hvernig móðurhlutverkið varð til þess að hún fór að sjá sína eigin móður í nýju ljósi og hvernig bókin hennar er hönnuð sem brú milli kynslóða til að varðveita sögu móðurinnar. Hvernig bókaævintýrið hefur opnað á fleiri tækifæri og aukið sjálfstraust. Tölvupóstar til þjóðþekktra kvenna og hvers vegna svar frá einni þeirra grættu Heiðbjörtu. Fyrstu skrefin fyrir þá sem langar að breyta um stefnu eða prófa nýjan starfsvettvang. Þetta er þáttur sem minnir okkur á að stærstu tækifærin leynast oft í óvæntum áskorunum og það er aldrei of seint að fylgja hjartanu og prófa eitthvað nýtt 🤍 📖 Söguspor og bókin „Mamma, sagan þín" ✨ Þessi þáttur er í boði 👟 Skór.is & Alfreð: Kynntu þér Hæfnileitina! ♡ Þátturinn er tekinn upp í Tekk stúdíói. 📱 Fylgdu Vörumerki á bakvið tjöldin á Instagram @vorumerki

07 | Aníta Hirlekar - Tískubransinn og valdamiklir viðskiptavinir
Aníta Hirlekar, margverðlaunaður íslenskur fatahönnuður, ræðir sinn einstaka feril sem hefur leitt hana að því að hanna fyrir risastór erlend merki og klæða áhrifamesta fólk landsins. Við fáum að heyra um það þegar forsetinn okkar, Halla Tómasdóttir, hafði samband við Anítu á 📲Messenger þegar hana langaði í kjól og hvernig það þróaðist í samstarf þeirra á milli. Við ræðum tískubransann sem er harður heimur, hönnunarstuld, jafnvægið á milli þess að skapa og reka verslun. Við ræðum einnig um sköpunarferlið, sjálfstraust og ferlið við að finna eigin stíl, auk þess sem Aníta gefur ungum hönnuðum góð ráð. 💡 Þáttur sérstaklega fyrir þá sem hafa ekki fundið sig í hefðbundnu námi, eða eru að stíga sín fyrstu skref í hönnun, list eða frumkvöðlastarfi. Fyrir alla sem elska tísku og fallega hönnun og vilja fá fágæta innsýn inn í heim íslenskrar fatahönnunar. Aníta Hirlekar ✨ Þessi þáttur er í boði 👟 Skór.is & Alfreð. Kynntu þér Hæfnileitina! ♡ Þátturinn er tekinn upp í Tekk stúdíói. 📱 Fylgdu Vörumerki á bakvið tjöldin á Instagram @vorumerki


