Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Deilt um skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum
Í dag beinum við sjónum okkar að skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum - sem nokkuð hefur verið deilt um í vikunni. Rætt er við Arnald Sölva Kristjánsson, formann fjármálaráðs og lektor í vinnumarkaðshagfræði.
Þar sem pappírsslóðin endar: Börn voru vistuð í Bakkakoti í trássi við lög 2005
Börn voru vistuð á fósturheimilinu Bakkakoti í Landeyjum árið 2005 án þess að eigendur Bakkakots hefðu haft leyfi til þess frá sveitarfélaginu að taka að sér fósturbörn. Þetta var brot á nýjum barnaverndarlögum sem samþykkt voru árið 2004. Þegar þetta komst upp bannaði félagsþjónustan í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu eiganda Bakkakots, Þóru Bernódussdóttur, að taka að sér fleiri fósturbörn. Þessar upplýsingar koma fram í gögnum um starfsemi Bakkakots frá Þjóðskjalasafninu sem fréttastofa fékk frá safninu. Í gögnunum er að finna síðustu fyrirliggjandi samskipti sveitarfélagsins við Þóru í Bakkakoti um fósturheimilið. Rætt er við lögmann Bakkakotsmannanna, Bjarka Heiðar Bjarnason um þessi gögn og stöðuna á Bakkakotsmálinu í dag eftir umfjöllun fréttaskýringaþáttarins Kveiks um ofbeldið á heimilinu í febrúar. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Saga og sálfræði vítaspyrnunnar
Í þætti dagsins beinum við sjónum okkar að vítaspyrnum - sögu og sálfræði vítaspyrnunnar - bæði í ljósi helgarinnar og heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu sem hefst í næstu viku. Rætt er við Stefán Pálsson, sagnfræðing og sparkspeking, og Daða Rafnsson, íþróttasálfræðing. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Ört stækkandi risi Jóns Ásgeirs kaupir 25 fasteignir af kaupfélagi
Í byrjun mánaðarins var sagt frá því að Kjörbúðin í Bolungarvík, sem er í eigu smásölufyrirtækisins Dranga, myndi loka. Degi áður en þessi frétt var sögð sendu Drangar frá sér tilkynningu um að fyrirtækið ætlaði sér að kaupa 25 fasteignir af dótturfélag Kaupfélags Suðurnesja víða um allt. Ein af þessum eignum er fasteignin á Bolungarvík sem hefur hýst starfsemi Kjörbúðarinnar. En hvað liggur á bak við þessi viðskipti hjá Dröngum og Kaupfélagi Suðurnesja? Rætt er við Auði Daníelsdóttur, forstjóra Dranga, og Sigurbjörn Gunnarsson, stjórnarformann Kaupfélagsins á Suðurnesjum, um það. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Endurskoðun samgöngusáttmála í kjölfar kosninga
Við höldum áfram umræðu um sveitarstjórnarmál í þætti dagsins - og beinum nú sjónum að mögulegum breytingum á framkvæmdum sem tengjast samgöngum á höfuðborgarsvæðinu - en þau mál voru mikið rædd í aðdraganda kosninga og breytingum lofað. Rætt er við Þorstein R. Hermannsson, framkvæmdastjóra Betri samgangna. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Héraðsdómurinn í plastbarkamálinu og tregða sænska ríkisins til að greiða skaðabætur
Einn af uppljóstrurunum í plastbarkamálinu svokallaða í Svíþjóð, Oscar Simonson brjóstholsskurðlæknirinn og blaðamaðurinn Bosse Lindqvist furða sig á því að sænska ríkið hafi ekki haft frumkvæði að því að greiða skaðabætur í málinu. Þeir eru til viðtals vegna dómsins sem féll í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðustu viku. Þar fékk eftirlifandi eiginkona fyrsta plastbarkaþegans, Andemariams Beyene, Mehrawit Tesfaslase, viðurkennda skaðabótaskyldu íslenska ríkisins gegn henni og sonum þeirra þremur. Mehrawit segist vera þakklát fyrir dóminn og viðurkenningu á skaðabótaskyldunni en að hingað til hafi hún hvorki engið afsökunarbeiðni né bætur frá sænska ríkinu. Rætt er við Mehrawit og þá Oscar og Bosse um dóminn í Reykjavík og sænskt og alþjóðlegt samhengi plastbarkamálsins sem talið er eitt stærsta hneykslismál í læknavísindum samtímans. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Óvissa um samning milli Írana og Bandaríkjamanna
Í þætti dagsins er sjónum beint að samningi milli Írana og Bandaríkjamanna. Rætt er við Gísla Jónsson, sérfræðing hjá Geislavörnum ríkisins, Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka, og Kjartan Orra Þórsson, sérfræðing í málefnum Írans.
Sagan af þyrlu Jims Ratcliffes og rörinu á kókómjólkinni
Hvaða áhrif hefur það á lítið samfélag eins og Vopnafjörð á Austfjörðum þegar einn ríkasti maður heims hefur stundað fjárfestingar þar í áratug? Þarna er rætt um Jim Ratcliffe, milljarðamæringinn enska, sem er sennilega bæði ríkasti og þekktasti athafnamaður sem hefur stundað fjárfestingar á Íslandi. Samkvæmt lista tímaritsins Forbes er hann í 153 sæti yfir ríkustu menn í heimi. Hann á eignir upp á rúmlega 2200 milljarða króna. Ratcliffe er leigutaki Hofsár og Selár í Vopnafirði og eins landeigandi fjölda jarða við árnar og víðar á norðausturhorni landsins. Rætt er við Bjart Aðalbjörnsson, rúmlega þrítugan Vopnfirðing og sveitastjórnarmann til átta ára, og Rögnvald Þorgrímsson, formann Ungmennafélagsins Einherja á Vopnafirði, um um samfélagsleg áhrif Ratcliffes í sveitinni. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Þjóðarsátt þá og nú
Við höldum áfram að ræða vexti og verðbólgu í þætti dagsins - en það kom líklega fáum á óvart að peningustefnunefnd Seðlabanka Íslands hækkaði stýrivexti út 7,5 í 7,75 prósent í gær - enda í takt við spár greiningardeilda - og meiri þungi hefur færst í umræðuna um nýja þjóðarsátt. Við ræðum þjóðarsáttina 1990 og stöðuna núna við Guðmund Hálfdanarson, prófessor í sagnfræði, og Vilhjálm Birgisson, formann Starfsgreinasambandsins. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Þýskt stórfyrirtæki kaupir þrjá dýraspítala á Íslandi
Þýska stórfyrirtækið Altano keypti þrjá dýraspítala á Íslandi í fyrra. Þetta eru dýraspítalarnir Í Glæsibæ í Skagafirði, Lögmannshlíð á Akureyri og Drösull í Kópavogi. Altano hefur á keypt fjölmarga dýraspítala víðs vegar um heiminn á liðnum árum. Altano á í dag meira en 100 dýraspítala víða um heiminn og er með um 2600 starfsmenn. Fyrirtækið er í eigu svissnesks fjárfestingarsjóðs. Af hverju hefur Altano áhuga á Íslandi og dýraspítölum á Íslandi? Einhverjir bændur á Norðurlandi hafa spurt sig að þessu. Rætt er við dýralækninn Gest Pál Júlíusson um Altano en hann er einn af þeim dýralæknum sem hefur selt hlut sinn í dýraspítala til þýska fyrirtækisins. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson


