Spursmál

Ritstjórn Morgunblaðsins

PólitíkFréttir

Spursmál er nýr og beinskeyttur umræðuþáttur á mbl.is Þar eru stóru mál samfélagsins krufin með afdráttarlausum hætti undir stjórn Stefáns Einars Stefáns­sonar sem fær til sín valinkunna gesti í settið alla föstudaga kl. 14. Fylgstu með lifandi, fjölbreyttri og kraftmikilli umræðu í Spursmálum á mbl.is.

#141. - Uppgjörið

#141. - Uppgjörið

1sep

Meirihluti kjósenda hafnaði því að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Að baki er löng og ströng barátta þar sem andstæðar fylkingar bárust á banaspjótum. En hver er staðan að átökum loknum? Þessu hyggjast blaðamennirnir Andrea Sigurðardóttir og Andrés Magnússon svara í aukaþætti Spursmála sem fer í loftið klukkan 14:00. Þau hafa leitt fréttaumfjöllun Morgunblaðsins og mbl.is síðustu mánuði þar sem ljósi hefur verið varpað á kosti og galla mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Í síðari hluta þáttarins mætir Óli Björn Kárason fyrrverandi ritstjóri og alþingismaður í þáttinn og ræðir nýjustu tíðindi af fjölmiðlamarkaði en í gær var tilkynnt um það að kvöldfréttatími Stöðvar 2 og síðast Sýnar hefði lagt upp laupana eftir 40 ára úthald. Hvað þýðir þetta fyrir frjálsa fjölmiðlun í landinu og af hverju eiga fjölmiðlar jafn erfitt uppdráttar og raun ber vitni?

#140. - Titringur á lokametrum baráttunnar

#140. - Titringur á lokametrum baráttunnar

28ágú

Nú er innan við sólarhringur í að kjörstaðir opni um allt land og það styttist óðum í að úrslit fáist í einu stærsta pólitíska þrætumáli síðari ára á Íslandi. En hver verður niðurstaðan? Þeirri spurningu munu þau Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður formanns Miðflokksins og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar reyna að svara í Spursmálum dagsins. Í fréttum vikunnar verður rætt við þá Loga Bergmann Eiðsson og Jón Júlíus Karlsson en þeir halda úti hinu geysivinsæla hlaðvarpi Seinni níu. Þar verður óhjákvæmilega rætt um fráfall Haraldar Noregskonungs en einnig önnur tíðindi af innlendum og erlendum vettvangi. Áður en rætt verður við þessi tvö tvíeyki mun Ingibjörg Davíðsdóttir, fyrrverandi sendiherra Íslands í Noregi mæta í Spursmál og ræða fráfall konungs og ríkisarfann sem nú hefur sest í hásætið í Ósló, Hákon VIII. Í lok þáttar verður rætt við Sigríði Maríu Egilsdóttur, lögmann í New York og fyrrverandi varaþingmann Viðreisnar. Hún hefur skipt um skoðun í Evrópusambandsmálum. Hún hyggst segja nei á morgun og fyrir því eru mjög forvitnilegar ástæður sem hún verður spurð út í.

#139. - Gangi Ísland inn, þá verður ekki aftur snúið

#139. - Gangi Ísland inn, þá verður ekki aftur snúið

24ágú

Hilmar Veigar Pétursson stýrir Fenris Creations, áður CCP. Hann var sannfærður um að Ísland ætti að ganga í ESB. Nú hefur hann skipt um skoðun. Hann lýsir ástæðum þess í aukaþætti af Spursmálum. Hann flutti ræðu í liðinni viku á vettvangi samtakanna Áfram Ísland þar sem sjónum var beint að nýsköpunarfyrirtækjum á Íslandi og möguleikum slíkra fyrirtækja innan eða utan ESB. Ræðan hlaut mikla athygli enda hafði Hilmar Veigar talað skarpt fyrir því á árinu 2014 að halda ætti áfram aðildarviðræðum við ESB og taka upp evru í stað krónunnar. Um svipað leyti flutti Hilmar Veigar til Bretlands þar sem hið svokallaða BREXIT var nýlega um garð gengið. Hann segir að reynslan þaðan kenni að ef Ísland gangi einu sinni til liðs við ESB verði aldrei þaðan snúið að nýju. Hann mun einnig fara yfir það í viðtalinu hvernig hann telji að það að „kíkja í pakkann“ muni taka athygli frá brýnum úrlausnarefnum í íslensku samfélagi og koma í veg fyrir að þjóðin grípi ótrúleg tækifæri, ekki síst á sviði hugverkaiðnaðarins.

#138. - 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi

#138. - 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi

21ágú

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands er gestur Stefáns Einars Stefánssonar í beinni útsendingu í Spursmálum. Þar mun hann gera upp baráttuna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst, næstkomandi. Ólafur Ragnar hefur ekki farið leynt með afstöðu sína gegn Evrópusambandinu og hefur verið gagnrýninn á mögulega aðild Íslands að ESB. Segir hann slíkan könnunarleiðangur ótímabæran, enda sé Íslandi, líkt og Noregi og Sviss, betur borgið utan sambandsins og án upptöku á evru.  Í þáttinn mæta einnig hagfræðingarnir Konráð Guðjónsson og Þorsteinn Þorgeirsson til að ræða kosti og galla mögulegrar ESB-aðildar fyrir íslenskt efnahagslíf, áhrif upptöku á evru og stöðu vinnumarkaðarins í því samhengi.

#137. - Böðull látinn laus og kjarasamningar í uppnámi

#137. - Böðull látinn laus og kjarasamningar í uppnámi

14ágú

Á sama tíma og þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB stendur fyrir dyrum styttist í að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði verði endurskoðaðir. Hvað ætlar verkalýðshreyfingin að gera? En atvinnurekendur? Þeim spurningum verður reynt eftir fremsta megni að svara í Spursmálum dagsins þar sem Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins mætast og fara yfir stöðuna. Ljóst er að verðbólgan mælist langt yfir því marki sem samið var um árið 2024. Í þættinum verður einnig rætt við Óskar Magnússon, lögmann, rithöfund og bónda á Sámstaðabakka í Fljótshlíð og Sigríði Á. Andersen, þingmann Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra. Þau verða meðal annars spurð út í nýjustu vendingar í máli áhafnarinnar á Bandero sem gerði óskunda inni í íslenskri lögsögu fyrir skemmstu og einnig verður vöngum velt yfir því hvernig það gat komið til að böðullinn Angjelin Sterkaj sem varð manni að bana með hrottafengnum hætti í Rauðagerði árið 2021 er laus úr íslensku fangelsi og farinn til heimalands síns, Albaníu.

#136. - Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur?

#136. - Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur?

7ágú

Engin þjóð hefur stofnað til umsóknar að Evrópusambandinu með þeim hætti sem íslensk stjórnvöld vilja gera nú. Hvað ætlast forystumenn ríkisstjórnarinnar fyrir í málinu?Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og alþingismaður hefur fjallað ítarlega um yfirvofandi umsóknarferli Íslands og ræðir það í Spursmálum dagsins. Hann var meðal annars formaður utanríkismálanefndar Alþingis þegar Íslendingar samþykktu EES-samninginn fyrir sína parta.Auk Björns mæta stjórnendur hlaðvarpsins, Komið gott, á vettvang og ræða fréttir vikunnar. Það eru þær Kristín Gunnarsdóttir og Ólöf Skaftadóttir. Þar verður Evrópuumræðan sannarlega fyrirferðarmikil en sennilega munu hvalveiðar og átök við Íslandsstrendur einnig bera á góma.

#135. - Hverju búast menn við í aðildarsamningi?

#135. - Hverju búast menn við í aðildarsamningi?

31júl

Hvers væntir Já til að sjá-hreyfingin í aðildarsamningi við Evrópusambandið þegar hann liggur fyrir? Þeirri spurningu verður beint að Jónasi Hagan, fjárfesti og einum stofnenda hreyfingarinnar í Spursmálum dagsins.Þar mætir hann Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi en hún hefur ákveðnar hugmyndir um það hvað Evrópusambandið muni leggja upp með þegar kemur að stærstu auðlind þjóðarinnar í kringum landið.Þá mun Andrés Magnússon, blaðamaður og fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu mæta til leiks og ræða fréttir vikunnar. Þar verður sjónum meðal annars beint að hlutverki fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu sem þeirrar sem fram fer þann 29. ágúst. Eiga fjölmiðlar að vera hlutlausir í umfjöllun sinni?

#134. - Hart tekist á um vexti og atvinnuleysi

#134. - Hart tekist á um vexti og atvinnuleysi

29júl

Dagur B. Eggertsson, alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri segir gríðarlegan velferðarábata felast í því að taka upp evru á Íslandi. Vitnar hann meðal annars til 12 ára gamallar skýrslu í því efni. Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs og hagfræðingur segir skýrsluna úrelta. Þau takast á um efnið og hvaða tækifæri felist mögulega í því að Ísland gangi í Evrópusambandið í aukaþætti Spursmála sem sendur er út á mbl.is klukkan 10:00 í dag. Unnin að beiðni ASÍ og fleiri 2014. Skýrslan sem um ræðir og varð umtalsefni eftir að Dagur birti grein á visir.is þar sem hann vitnaði til hluta niðurstaðna hennar, var unnin af Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands árið 2014 að beiðni Alþýðusambands Íslands og nokkurra atvinnurekendasamtaka. Þar eru kostir upptöku evru tíundaðir, meðal annars í ljósi þess gríðarlega verkefnis sem stóð fyrir dyrum um að koma Íslandi út úr fjármagnshöftum. Stjórnvöld Íslands á árunum 2009-2013 höfðu heykst á því verkefni og það var ekki fyrr en með ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem lausn fékk á þeim málum með tröllauknum samningum við kröfuhafa föllnu bankanna. Ásdís Kristjánsdóttir brást við skrifum Dags og sagði stöðu efnahags- og peningamála allt aðra á Íslandi í dag en árið 2014. Grundvallarbreytingar hefðu verið gerðar á kerfinu sem hafi komið Íslandi á beinu brautina. Hún varar við inngöngu í ESB og upptöku evru og segir að með því missi Ísland mikilvægt hagstjórnartæki úr höndum.

#133. - Hefði Kerecis orðið til innan Evrópusambandsins?

#133. - Hefði Kerecis orðið til innan Evrópusambandsins?

24júl

Guðmundur Fertram Sigurjónsson er meðal gesta Spursmála þennan föstudaginn og ræðir þar af hverju hann leggst gegn aðildarviðræðum við ESB en hann flutti ræðu á fundi samtakanna Áfram Ísland sem haldinn var á Selfossi á miðvikudaginn síðastliðinn.Hann býr yfir alþjóðlegri reynslu og hefur starfað við uppbyggingu fyrirtækja í Bandaríkjunum, ýmsum ríkjum Evrópu og á Nýja-Sjálandi.Hver staðan á Kerecis?Í þættinum verður hann einnig spurður út í stöðuna á Kerecis sem rekur framleiðslustarfsemi sína á Ísafirði en fyrirtækið var selt til danska lækningavöruframleiðandans Coloplast fyrir þremur árum á nærri 180 milljarða króna.Íslenskt atvinnulíf, sjávarútvegur og ESBÍ þættinum verður einnig rætt við þá Hjálmar Vilhjálmsson sem situr í stjórn Já til að sjá og Hermann Guðmundsson sem er meðal stofnfélaga Áfram Ísland. Hjálmar er framkvæmdastjóri hjá útgerðarfélaginu Brimi og verður hann meðal annars spurður út í álitamál tengd íslenskum sjávarútvegi ef Ísland gengur í ESB. Hermann er forstjóri Kemi. Hvorugur þeirra kemur þó til samtals um þessi mál sem fulltrúi fyrirtækisins sem þeir starfa hjá heldur sem einstaklingar sem vilja beita sér fyrir málefnalegri umræðu um mögulega aðild Íslands að ESB.

#132. - Á ríkið eitt að selja fólki áfengi

#132. - Á ríkið eitt að selja fólki áfengi

21júl

Er ríkisvaldið eini aðilinn sem getur með viðunandi staðið að áfengissölu hér á landi? Er það ógn við lýðheilsu og heilbrigðiskerfið ef einkaaðilum er falið það verk? Hér mætast þeir Kári Stefánsson, læknir og stofnandi Íslenskrar erfðagreiningar og Arnar Sigurðsson stofnandi og eigandi áfengisverslunarinnar Santé.

Þér gæti líka líkað...