Návígi

navigi

Sports

Efnistökin í Návígi eru knattspyrnutengd í víðum skilningi. Í þessari seríu eru þættirnir sex og er komið víða við. Margir þekktir viðmælendur koma við sögu og málin krufin til mergjar. Óhætt er að fullyrða að þarna verða sagðar sögur sem munu vekja almenna athygli. Þessi þáttaröð er einskonar ’spin off’ sería frá sjónvarpsþáttaröðinni A&B sem var sýnt á Stöð 2 Sport vorið 2025. Þema hvers þáttar eru eftirfarandi: Þáttur 1: AKRANES Þáttur 2: Bjarki Gull & Mennskan Þáttur 3: Bjarki Gull & Mennskan 2 Þáttur 4: Arnar vs Óskar Þáttur 5: Arnar vs Óskar 2 Þáttur 6: GERÐ ÍÞRÓTTAHEIMILDAÞÁTTA Umsjón: Gulli Jóns & Hjörtur Hjartar

ÁSKORUN (S02/E10)

ÁSKORUN (S02/E10)

24júl2025

NÁVÍGI (S02/E10) ÁSKORUN Tíundi þáttur af Návígi er kominn í loftið.    Samstarfsaðilar Návígi eru: N1 - ASKJA - LANDSBANKINN - IKEA

Hilmar Björnsson (S02/E09)

Hilmar Björnsson (S02/E09)

17júl2025

NÁVÍGI (S02/E09) Hilmar Björnsson  Níundi þáttur af Návígi er kominn í loftið.   Hilmar Björnsson er reyndasti framleiðandi landsins í gerð íþróttaefnis.   Meðal efnis: Boltinn með Guðna Bergs  KF Nörd - þáttaröðin sem átti að halda í áskrifendur Hjörvar Hafliðason fer á stóra sviðið á RÚV Áfallið að missa enska boltann árið 2004 Veðjar á unga menn sem vilja gera þátt um atvinnumennina okkar Konur fá stærra pláss á RÚV  Þetta og fleira áhugavert í níunda þætti Návígis! Samstarfsaðilar Návígi eru: N1 - ASKJA - LANDSBANKINN - IKEA

Þóra Tómasdóttir - Helga Lára safnstjóri RÚV - Þórhallur Gunnarsson (S02/E08)

Þóra Tómasdóttir - Helga Lára safnstjóri RÚV - Þórhallur Gunnarsson (S02/E08)

10júl2025

NÁVÍGI (S02/E08) Þóra Tómasar - Helga Lára safnstjóri RÚV - Þórhallur Gunnarsson Áttundi þáttur af Návígi er kominn í loftið. Þóra Tómasdóttir fylgdi eftir kvennalandsliðinu í knattspyrnu frá 2007-2009 og gerði heimildamyndina Stelpurnar okkar. Þóra fjallar um gerð myndarinnar, menntun sína í heimildaþáttagerð og hina ólæknandi bakteríu að vilja miðla og  segja sögur.   Helga Lára Þorsteinsdóttir er safnstjóri Rúv. Hún fræðir okkur um hlutverk og stöðu safnsins og nefnir dæmi um merka fundi safnsins síðasta vetur.  Að lokum ræðir reynsluboltinn Þórhallur Gunnarsson um stöðu sjónvarpsþáttagerðar og varpar ljósi á gríðarlegar vinsældir hlaðvarpa um þessar mundir.  Samstarfsaðilar Návígi eru: N1 - ASKJA - LANDSBANKINN - IKEA

Freyr Árnason (S02/E07)

Freyr Árnason (S02/E07)

4júl2025

NÁVÍGI (S02/E07) Freyr Árnason  Freyr Árnason fer fyrir framleiðslufyrirtækinu Obbosí ehf sem hefur klippt og séð um eftirvinnsluna á stóru seríum Stöðvar 2 Sport (Sýn) síðastliðin ár.  Freyr er einnig hægri hönd Emmsjé Gauta til margra ára og komið m.a. að Julevenner jólasýningu hans.  Knattspyrnulið FH er það lið sem gerir bestu myndböndin fyrir samfélagsmiðla og þar er Freyr sem fer fyrir öflugu teymi sem framleiðir þau.   Meðal efnis: Hugmyndin á bakvið góðgerðartreyju FH sem hefur slegið í gegn.  Steve Dagskrá í sjónvarpi.  13 tónleikar á 13 dögum. Tónleikaferð Emmsjé Gauta árið 2018.  Sjónvarpsþáttaraðir sem hann framleiddi fyrir FH 2018-2020.  Hvað gerði Pavel Ermolinski fyrir Jón Arnór sjónvarpsþættina ? Hvað eru næstu verkefni sem hann er að vinna að ? Þetta og margt margt fleira. Samstarfsaðilar Návígi eru: N1 - ASKJA - LANDSBANKINN - IKEA

Garðar Örn & Siggi Már (S02/E06)

Garðar Örn & Siggi Már (S02/E06)

26jún2025

NÁVÍGI (S02/E06) Garðar Örn & Siggi Már Þetta og margt margt fleira.  Umsjón: Gulli Jóns  Samstarfsaðilar Návígi eru: N1 - ASKJA - LANDSBANKINN - IKEA

NÁVÍGI (S02/E05) Arnar Gull vs Óskar Hrafn (ballið byrjar)

NÁVÍGI (S02/E05) Arnar Gull vs Óskar Hrafn (ballið byrjar)

19jún2025

NÁVÍGI (S02/E05) Arnar Gull vs Óskar Hrafn (ballið byrjar) sérstakur gestur: Gummi Ben  Í þætti fimm gerum við upp einvígi Arnars og Óskars á árunum 2021-2023. Upp úr sauð í leikjum Breiðabliks og Víkinga á þessum árum, oftar einu sinni og oftar en tvisvar.  Þeir félagar sendu hvor öðrum pillur í viðtölum í hvert sinn sem færi gafst.  Við ræðum bæði við Arnar og Óskar um þessi ár. Gerðu þessi átök þá að betri þjálfurum? Var þeim illa við hvorn annan? Saknar Óskar þess að hafa Arnar ekki í Bestu deildinni? Umsjón: Gulli Jóns og Hjörtur Hjartar N1 - ASKJA - LANDSBANKINN - IKEA

NÁVÍGI (S02/E04) Arnar Gull vs Óskar Hrafn (fyrri hluti)

NÁVÍGI (S02/E04) Arnar Gull vs Óskar Hrafn (fyrri hluti)

19jún2025

Arnar Gull vs Óskar Hrafn (fyrri hluti) Sérstakur gestur: Gummi Ben  Fjórði þáttur í nýrri seríu af Návígi er kominn í loftið. Nýtt þema; Arnar Gunnlaugs og Óskar Hrafn. Flestir þekkja þeirra slag sem þjálfarar Breiðabliks og Víkings en færri vita að fyrst lágu leiðir þeirra saman fyrir rúmum 35 árum. Farið verður yfir þeirra sögu sem andstæðingar á vellinum bæði í yngri flokkum sem og í meistaraflokki. Þá skoðum við fyrstu skref þeirra félaga í þjálfun, Arnar hjá ÍA  og Óskar hjá Gróttu.  Meðal efnis:   Úrslitaleikur ÍA-KR í 3. flokki 1989  Óskar vs A&B í meistaraflokki 1992 Arnar og Bjarki byrja óvænt í þjálfun 2006 Óskar Hrafn og ótrúlegur uppgangur Gróttu Umsjón: Gulli Jóns og Hjörtur Hjartar Samstarfsaðilar Návígi eru: N1 - ASKJA - LANDSBANKINN - IKEA

NÁVÍGI (S02/03) Bjarki Gull & mennskan II

NÁVÍGI (S02/03) Bjarki Gull & mennskan II

12jún2025

BJARKI GULL & MENNSKAN II Þáttur þrjú í nýrri seríu af Návígi.  Bjarki Gunnlaugs er gestur þáttarins og heldur áfram að ræða sína reynslu úr atvinnumennsku í fótbolta. Þetta er seinni þátturinn með Bjarka þar sem við einblínum meira á hans feril í og sérstaklega veru hans hjá Preston þar sem ungur knattspyrnustjóri David Moyes var að stíga sín fyrstu skref.  Umsjón: Gulli Jóns og Hjörtur Hjartar N1 - ASKJA - LANDSBANKINN - IKEA

NÁVÍGI  (S02/E02)  Bjarki Gull & mennskan

NÁVÍGI (S02/E02) Bjarki Gull & mennskan

4jún2025

BJARKI GULL & MENNSKAN Þáttur tvö nýrri seríu af Návígi. Nú verður slegið í klárinn!  Að þessu sinni er umboðsmaðurinn og fyrrverandi knattspyrnuhetja, Bjarki Gunnlaugsson gestur þáttarins. Bjarki ræðir atvinnumennsku í fótbolta í víðum skilningi, bæði sína eigin og annarra. Óhætt er að segja að Bjarki hafi farið á flug og því nauðsynlegt að skipta spjallinu upp í tvo þætti. Sá fyrri er hér. Umsjón: Gulli Jóns og Hjörtur Hjartar N1 - ASKJA - LANDSBANKINN - IKEA

NÁVÍGI  (S02/E01) Akranes

NÁVÍGI (S02/E01) Akranes

28maí2025

Nýtt hlaðvarp á gömlum grunni! Kominn er í loftið nýr og brakandi ferskur þáttur af Návígi- vel virtu hlaðvarpi sem fyrst leit dagsins ljós árið 2018. Umsjónarmaður, sem fyrr, er Gunnlaugur Jónsson en í þessari seríu er honum til halds og trausts, Hjörtur Hjartarson. Sú sería sem er á leið á öldur ljósvakans er einskonar hliðarverkefni frá sjónvarpsþáttaseríunni, A&B sem nýverið var sýnd á Stöð 2 og sló heldur betur í gegn. Í það minnsta var það upphaflega konseptið. Það stækkaði hinsvegar og fór í margar óvæntar áttir. Meira um það síðar. Fyrsti þátturinn heitir Akranes. Þar er farið um víðan völl og saga ÍA, Akraness, tvíburanna og meðreiðarsveina rifjuð upp. Við heyrum í fjölmörgum kempum sem færa okkur 20, 30 og jafnvel 40 ár aftur í tímann.  N1 - ASKJA - LANDSBANKINN - IKEA

Þér gæti líka líkað...