Fantasýn

fantasyn

Sports

Það er betra að vera með Sýn þegar þú spilar Fantasy Premier League. Fantasýn er Fantasy Premier League hlaðvarp Sýnar, heimili enska boltans á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Albert Þór Guðmundsson og Sindri Kamban.

Lokauppgjör

Lokauppgjör

26maí

Þá eru tímabilinu lokið og Albert og Sindri mættu í stúdíóið til að horfa yfir farin veg.

38. umferðum síðar

38. umferðum síðar

22maí

Þeir segja að þetta sé ekki búið fyrr en feita konan syngur, og þrátt fyrir að Arsenal hafi orðið sófameistarar í síðustu umferð þá hefur hún ekki upp raust sína fyrr en á næstkomandi sunnudag.

Tími til kominn að taka sénsa.

Tími til kominn að taka sénsa.

14maí

Nú þegar það eru bara tvær umferðir eftir af tímabilinu ræddu Albert og Sindri um hvaða lið hefðu eitthvað til að spila uppá og hvað lið væru mætt á ströndina.

Þessi tvöfalda umferð er tálsýn

Þessi tvöfalda umferð er tálsýn

6maí

Tvöföld umferð er yfirleitt fagnaðarefni í fantsy-heimum en er komandi tvöfalda umferð tálsýn ein?

Allt í járnum á öllum vígstöðvum (Bombuspecial)

Allt í járnum á öllum vígstöðvum (Bombuspecial)

29apr

Albert fékk engan annan en Gunnar Hilmar Kristinsson eða Gunna bombu í settið til að taka stöðuna á milli 34. og 35. umferðar.

Við fengum ekki að João Pedro

Við fengum ekki að João Pedro

23apr

Nú er umferð 33. að baki og eftir situr að takast á við þynnkuna sem kemur í umferð 34. en þar leynast gullin tækifæri til að skjóta sér upp töfluna.

Stórasta umferð í heimi.

Stórasta umferð í heimi.

14apr

Þá er Albert mættur aftur og ekki seinna vænna því loksins er komið að því, stærsta umferð tímabilsins er handan við hornið. Sex lið spila tvöfalda umferð og því nauðsynlegt að taka "deep dive" á það.

Lognið á undan storminum.

Lognið á undan storminum.

8apr

Eftir langt landsleikjahlé tökum við upp þráðinn og rýnum í stöðuna fyrir umferð 32. Líkt og salt og pipar fara umferðir 32 og 33 saman, svo við horfum einnig fram á veginn og metum möguleikana þar. Hvernig ætlar þú að stilla upp chip-strategíunni? Gestastjórnandi er Daníel Franz Davíðsson, markaðsfulltrúi HSÍ og fantasý spekúlant.

Einn dagur í einu.

Einn dagur í einu.

18mar

Nú þegar óvissan er alltumlykjandi varðandi hvenær verða tvöfaldar umferðar er mikilvægt að taka einn dag í einu, og gott að hafa bandið á okkar áreiðanlegasta manni, Bruno Fernandes.

What to Expect When You're Expecting

What to Expect When You're Expecting

12mar

Deadline fyrir næstu umferð er laugardaginn 14. mars. kl 13:30. Aron Fantabragðabróðir mætti í stúdíóið til að þessa að spá í spilin í fjarveru Alberts.

Þér gæti líka líkað...