Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. netfang: mannlegi@ruv.is Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Gervigreind í kennslu með Námfús, histamínóþol kvenna á miðjum aldri og vísindaspjallið með Eddu
Það er fátt sem hefur verið rætt meira um undanfarin tvö ár en gervigreind og spurningarnar eru óteljandi, margt afskaplega spennandi og einni margt sem vekur ugg. En við kynntum okkur í dag hvernig gervigreindin getur virkað í skólum, bæði fyrir kennara og nemendur. Námfús er íslensk lausn fyrir leikskóla og grunnskóla sem er notuð bæði á Íslandi og Þýskalandi og unnið er að því að aðlaga lausnina fyrir framhaldsskóla. Skúli Thorarensen framkvæmdastjóri Námfús kom í þáttinn í dag við fengum hann til að útskýra fyrir okkur hvernig þetta virkar og hverjir möguleikarnir eru. Næringarþerapía á rætur að rekja til hugmyndafræði functional medicine, þar sem meginmarkmiðið er að styðja líkamann út frá rót vandans. Við ræddum við Sigríði Róbertsdóttur, eða Siggu Róberts, í þættinum í dag, en hún er næringaþerapisti sem lærði fræðin í Bretlandi. Hún segir að líkaminn hafi ótrúlega getu til að ná jafnvægi þegar hann fær réttan stuðning. Hún talaði meðal annars um það af hverju konur á miðjum aldri eru í meiri hættu á histamínóþoli. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag sagði hún okkur frá rannsókn á músum þar sem var í fyrsta skipti skoðað hvernig krabbamein og krabbameinslyf virka mismunandi á mismunandi aldurskeiðum þar sem líkaminn og ónæmiskerfi líkama okkar eru berskjaldaðri á efri árum en þegar við erum ung. Tónlistin í þættinum: Þetta loft / Sigurður Halldór Guðmundsson (Sigurður Halldór Guðmundsson) Það sýnir sig / Hjálmar (Sigurður Halldór Guðmundsson) Heiðlóan / Gísli Magna og Co. (Steingrímur M. Sigfússon) Kötturinn sem gufaði upp / Olga Guðrún Árnadóttir (Ólafur Haukur Símonarson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Leikhópurinn Lotta tuttugu ára og Guðbrandur Árni á Heilsuvaktinni
Leikhópurinn Lotta heldur upp á tuttugu ára afmælið í ár og sýning hópsins í sumar er Litaland sem segir frá grunnlitunum gulum, rauðum og bláum. Hver litur byggir sinn eigin heim í Litalandi og í upphafi eru samskipti milli heimanna lítil enda vill hver litur halda sig út af fyrir sig. Anna Bergljót Thorarensen er höfundur verksins og jafnframt stofandi leikhópsins. Hún kom í þáttinn í dag ásamt öðrum af tveimur leikstjórum, Þórunni Lárusdóttur. Svo var það Heilsuvaktin með Helgu Arnardóttur. Hvað einkennir heilbrigð og langlíf ástarsambönd og hvenær verða þau óheilbrigð? Hvaða máli skipta tengslin og nándin sem við fáum í æsku fyrir ástarsambönd okkar á fullorðinsárum og hvernig getur það komið fram á neikvæðan hátt ef örugg tengsl og nánd hafa ekki verið til staðar. Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur leitast við að svara þessum spurningum og fjölmörgu öðru um ástina í nýútkominni bók sinni Í augum þínum verð ég til. Helga ræddi við Guðbrand á Heilsuvaktinni í tilefni af því. Tónlistin í þættinum: Aftur heim til þín / Eyþór Ingi og Lay Low (Baldur Hjörleifsson og Jónína Guðrún Eysteinsdóttir) Hver er hann? / Leikhópurinn Lotta, Rósa Ásgeirsdóttir (Baldur Ragnarsson, texti Sævar Sigurgeirsson) Ósvikin ást / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Einverfa og kulnun kvenna, skjöl Jónasar frá Hriflu og Úlfar lesandi vikunnar
Á undanförnum árum hefur umræða um einhverfu kvenna aukist en þær fá oft ekki greiningu fyrr seint á ævinni. Í áratugi var einhverfa skilgreind út frá drengjum og stúlkur féllu utan rammans og fullorðnar konur enn frekar. Þegar greiningin kemur, oft á þrítugs- eða fertugsaldri og stundum eftir fimmtugt, lýsa margar konur henni eins og þar hafi þeim loksins verið gefin hin rétta skýring á eigin lífi. Skýringu á því hvers vegna ákveðnir hlutir voru alltaf erfiðari, hvers vegna félagsleg samskipti voru alltaf lýjandi og hvers vegna einföld dagleg verkefni gátu á stundum tekið alla orku frá þeim. Við ræddum við Vigdísi M Jónsdóttur sálfræðing í dag. Við fórum svo í heimsókn á Þjóðskjalasafnið og hittum þar fyrir Njörð Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörð. Hann sýndi okkur einkaskjöl sem Jónas Jónsson frá Hriflu lét geyma á safninu eftir að hann lét af störfum. Hann fór fram á það að skjölin skyldu vera lokuð frá afhendingu 1966 til 1.maí árið 1985, en þá hefði hann orðið 100 ára. Njörður sagði okkur frá þessum skjölum sem geymd eru í fimm öskjum á safninu, en þau voru talsvert persónuleg. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Úlfar Jökull Eyjólfsson nemandi í MR. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Úlfar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Himnaríki og helvíti e. Jón Kalman Þrúgur reiðinnar e. john steinbeck Gamli maðurinn og hafið e. Ernest Hemingway Behind the shades (ævisaga Bob dylans) e. Clinton Heylin. Náðarstund e. Hannah Kent Harry Potter bækurnar. Tónlistin í þættinum: Á ferðalagi / Ragnar Bjarnason (D. Darst, texti Ómar Ragnarsson) The Girl from Ipanema / Stan Getz og Astrud Gilberto (Carlos Antoni Jobim, Vinicius de Moraes & Norman Gimbel) Kóngur einn dag / KK og Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Sigtryggur Baldursson föstudagsgestu og espadrillur og sniglar í matarspjallinu
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var trymbillinn og tónlistarmaðurinn Sigtryggur Baldursson. Hann hefur verið í fjölda hljómsveita, Þeym, Kukl, Sykurmolarnir, svo er það auðvitað hliðarsjálf hans Bogomil Font, sem sungið hefur sig inn í íslensku þjóðarsálina, bæði með Milljónamæringunum og Greiningardeildinni. En með síðastnefndu sveitinni var hann að senda frá sér glænýtt lag af glænýrri plötu sem er væntanleg og við fengum að heyra það í þættinum. En við ferðuðumst líka með honum fram og aftur í tíma, frá Babylon í New York í Kópavoginn. Á handahlaupum sagði hann okkur til dæmis frá hljómsveitinni Hattímas, knattspyrnuferlinum, tilurð Bogomil Font og miklu fleiru í þættinum í dag. Svo kom Sigurlaug Margrét til okkar í matarspjallið og í dag voru það espadrillur, kjúklingar, sniglar og mátulega skítugir veitingastaðir sem voru ræddir. Tónlistin í þættinum: Sjóddu frekar egg / Bogomil Font og Greiningardeildin Í faðmi dalsins / Haukur Morthens (Bjarni J. Gíslason, texti Guðmundur Þórðarson) Gellur eru bestar / Bogomil Font og Greiningardeildin (Bragi Valdimar Skúlason) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐMUNDUR PÁLSSON