Krakkaheimskviður

RÚV

Fréttir

Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar. Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir

SUMAR: Pöndudiplómasía

SUMAR: Pöndudiplómasía

12júl

Hvers vegna eru pöndur mikilvægar í samskiptum milli landa og hvað er eiginlega dýradiplómasía? Við rifjum upp það sem við lærðum um þessa ofurkrúttlegu sendiherra í vetur í þætti dagsins.

SUMAR: AirBNB-bann

SUMAR: AirBNB-bann

5júl

Sumarið er tími ferðamanna en mörg hafa skoðanir á því hvar og hvernig þeir dvelja á fjölförnum stöðum. Við rifjum upp umfjöllun um AirBNB-bann í Barcelona í þætti dagsins.

SUMAR: Samfélagsmiðlabann í Ástralíu

SUMAR: Samfélagsmiðlabann í Ástralíu

28jún

Breska þingið tilkynnti það fyrr í mánuðinum að það íhugaði samfélagsmiðlabann fyrir börn undir 16 ára aldri. Lög af sama tagi tóku gildi í Ástralíu í desember, við rifjum upp þáttinn um þau í dag.

SUMAR: Saga Kóreu og K-Pop

SUMAR: Saga Kóreu og K-Pop

21jún

20. júní, var liðið heilt ár frá því að Netflix-myndin K-Pop Demon Hunters kom út. Af því tilefni ætlum við að rifja upp sögu Kóreu og K-Pop frá því í haust.

Sögulegur almyrkvi á sólu í sumar

Sögulegur almyrkvi á sólu í sumar

14jún

Í þessum síðasta þætti Krakkaheimskviða fyrir sumarfrí fræðist Karitas um almyrkvann sem verður sýnilegur frá Íslandi í ágúst. Stjörnu-Sævar er gestur þáttarins og segir okkur allt um sólmyrkva. Hvers vegna þarf maður sérstök sólmyrkvagleraugu og hvernig tengist norræn goðafræði sólmyrkvum? Allt um það í þætti dagsins!

Stærsta HM í fótbolta sögunnar

Stærsta HM í fótbolta sögunnar

7jún

Í þessum þætti Krakkaheimskviða ræðir Karitas við íþróttafréttamanninn Eddu Sif Pálsdóttur um HM karla í fótbolta, breytingar sem gerðar hafa verið á mótinu, nýliðana og spennandi leiki framundan.

Breytingar í Hollywood

Breytingar í Hollywood

31maí

Í þessum þætti Krakkaheimskviða eru breytingar í Hollywood í brennidepli. Hvað er samruni og samkeppni? Allt um yfirvofandi kaup Paramount á Warner Bros. í þætti dagsins.

Feneyjatvíæringurinn

Feneyjatvíæringurinn

24maí

Í þessum þætti Krakkaheimskviða dveljum við á Ítalíu þar sem Feneyjartvíæringurinn fer fram um þessar mundir. Dagskrárgerðarmaðurinn Kristján Guðjónsson veit allt um málið.

17. maí og þjóðhátíðardagar um víða veröld

17. maí og þjóðhátíðardagar um víða veröld

17maí

Í þessum þætti Krakkaheimskviða heldur Karitas upp á þjóðhátíðardag Noregs sem er í dag. Við skoðum líka aðra þjóðhátíðardaga, hvers vegna þeir eru þegar þeir eru og um hvað þeir snúast.

Eurovision og Attenborough

Eurovision og Attenborough

10maí

Í þessum þætti Krakkaheimskviða dveljum við í heimi sjónvarpsins. Gísli Marteinn Baldursson er gestur þáttarins og ræðir við Karitas um Eurovision sem hefst á þriðjudaginn. Í seinni hluta þáttarins kynnumst við fjölmiðlamanninum David Attenborough sem varð 100 ára á föstudaginn.

Þér gæti líka líkað...