Korter í kosningar er hlaðvarp um kosningarnar framundan og er sniðið fyrir fólk sem vill fylgjast vel með þegar það er korter í kosningar. Þáttastjórnendur eru Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Ólafsson. Fyrirspurnir: maggi@maggi.is

Hver er tímalínan ef við segjum JÁ til að SJÁ?
Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, komu í höfuðstöðvar Korter i kosninga og upplýstu um tímalínuna framundan ef þjóðin segir Já í lok ágúst. Hvað þýðir upptaka Evru og hvers vegna ætti hin óákveðni þriðjungur landsmanna að segja Já í haust?

Áfram Ísland?
Season 2 hefst með látum með tveimur fyrrverandi þingmönnum sem hvorugir vilja fara í aðildarviðræður 29. ágúst nk. Þeir Sigurður Kári Kristjánsson og Birgir Ármannsson fara yfir málin og færa rök fyrir þvi hvers vegna þeir ætla að kjósa nei í ágúst.

Engin risaeðlubein takk
Lokaþáttur Korter í kosninga þegar við kveðjum sveitarstjórnarkosningar. Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar og Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalistaflokksins kíktu við og fóru hressilega yfir málin. Uppáhalds moment í kosningabaráttunni. Stemmarinn í nýju borgarstjórninni. Hver er partýmálaráðherra borgarstjórnar? Hróshringur Péturs. Engin risaeðlubein og engin hjólhýsabyggð.

Gamlar sálir í nýrri borgarstjórn
Nítjándu aldar mennirnir Friðjón Reynir Friðjónsson og Stefán Pálsson fóru yfir meirihlutasáttmálann, hlutverk og sjálfsmynd varaborgarfulltrúa, Bestu deildina og HM í fótbolta. Er meirihlutasáttmálinn zero-sum game eða vinna allir? Hvernig verður kjörtímabilið og tekur Miðflokkurinn stjórnarformennsku í Orkuveitunni? Hver verður aðstoðarmaður borgarstjóra og hvort verður golfvöllurinn í Viðey 9 eða 18 holur?

Sætasta stelpan á ballinu
Sandra Hlíf Ocares og Stein Olav Romslo, nýr borgarfulltrúi mættu til leiks. Nýr meirihluti og nýir borgarfulltrúar taka formlega við völdum í dag. Hver verður í hvaða hlutverkum? Hvernig mun samgöngusáttmáli þróast? Verður verkefnalisti.is vinsælasta heimasíða landsins? Hvað gerðist í Hafnarfirði og er betra að ráð bæjarstjóra en að hafa hann pólitískan? Enor endurskoðun, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin.

Korter yfir kosningar
Hróðugur Maggi og tapsár Pétur fóru yfir málin. Sjálfstæðisflokkurinn með stórsigur út um allt land. Hvaða meirihlutar verða myndaðir? Hvaða mál verða tækluð strax? Hvað klikkaði hjá Samfylkingunni í Reykjavík? Hvað þýðir þessi niðurstaða fyrir stjórnmálalandslagið í heild? Enor endurskoðun, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin.

Hildur & Pétur
Hildur Björnsdóttir og Pétur H. Marteinsson. Oddvitar stærstu flokkanna komu til okkar. Sammála um sumt, alls ekki allt. Hluti samgöngusáttmála þarfnast endurskoðunar að mati Hildar. Hvar byrjum við á leikskólamálunum? Pétur segir mörg mistök hafi verið gerð í núverandi meirihluta. Spennandi þáttur af Korter í kosningar, þeim síðasta korter í kosningar. Enor endurskoðun, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin eru styrktaraðilar Korter í kosninga.

Teppalögð Reykjavík
Freyr Eyjólfsson og Áslaug Hulda Jónsdóttir mættu til okkar í upphafi kosningaviku og með sterkar skoðanir á öllu. Á Sjálfstæðisflokkurinn að auglýsa meira? Er Samfylkingin ekki að svara nógu miklu? Ætlar Viðreisn að starfa til hægri? Mun einhver starfa með Miðflokki? Er Einar Þorsteins í meðbyr? Er Flokkur fólksins að ofnota gervigreindina? Er Vinstrið búið að toppa? Enor endurskoðun, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin eru samstarfsaðilar Korter í kosninga.

Kosningaspámenn Íslands
Bogi Ágústsson og Ólafur Þ. Harðarson - frægasta tvíeyki landsins síðan Halli og Laddi mættu í stúdíóið. Hver verður næsti borgarstjóri? Hvaða flokkar ná inn og hver græðir á því? Hversvegna má ekki telja atkvæði á meðan kjörstaðir eru ennþá opnir og af hverju geta þingmenn ekki bara breytt kosningalögum? Korter í kosningar verða í beinni 14. maí á Ölver. Miðasala á stubb.is. Enor endurskoðun, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin eru samstarfsaðilar Korter í kosningar.

15 dagar í kosningar
Svo margar spurningar í helgarþættinum. Halda Sósíalistar áfram að vinna oddvitakeppnina? Hver er stefna flokkana og fer hún saman við veruleikann? Hvaða flokkur er með besta slagorðið? Er að sjóða uppúr í Kópavogi? Vinnur Viðreisn til hægri í Reykjavík og vinstri í Kópavogi? Munu hálmstrá Framsóknar breyta einhverju? Hvað er þetta tígrisdýr sem allir eru að tala um? Er hægt að gervigreinda sig í gegnum kosningabaráttu og vinna? Enor endurskoðun, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin eru samstarfsaðilar Korter í kosningar.



