Heimskviður

RÚV

Fréttir

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Sumar-Heimskviður - Íþróttir

Sumar-Heimskviður - Íþróttir

18júl

Sumarið hefur líklega farið í áhorf á heimsmeistaramótið í fótbolta hjá mörgum og því fannst okkur við hæfi að helga þennan þátt íþróttum. Úrslitaleikurinn er á morgun og þá er hægt að stytta sér stundir með því til dæmis að velta því fyrir sér af hverju Kínverjar eru ekki betri í fótbolta en raun ber vitni. Það er áhugavert að fjögur af fimm fjölmennustu ríkjum heims taka ekki þátt í HM, Indland, Indónesía, Pakistan og jú Kína. Þrátt fyrir að hinn annálaði fótboltaáhugamaður og forseti landsins, Xi Jinping, hafi sett ævintýralegar fjárhæðir í að byggja fótboltaskóla, fótboltavelli, að þjálfa upp stjórstjörnur heima við og flytja þær inn sömuleiðis til að spila í ört stækkandi efstu deild kínverska boltans, þá er Kína hvergi nærri háleitum markmiðum sínum. Sem eru að komast á HM karla í fótbolta, halda mótið og vinna það – allt fyrir árið 2050. Eða það eru yfirlýstu markmiðin. Vafalaust vakir sömuleiðis fyrir forsetanum að gera Kína meira gildandi í allri pólitíkinni í kringum fótboltann. Eins og Sádar og Katarar hafa gert með glimrandi árangri. En hvers vegna er þessi fjölmenna þjóð ekki betri í einni vinsælu íþrótt heims. Oddur Þórðarson reynir að svara því. Það hafa fleiri stórmót sett svip sinn á árið, vetrarólympíuleikarnir fóru fram fyrr á árinu og þar gekk á ýmsu. Játningar um framhjáhald, fótbrot og ásakanir um svindl og typpastækkanir er meðal þess sem var í umræðunni. Bjarni Pétur Jónsson fjallar um mál Sydney Milani sem var meinuð þátttaka á leikunum eftir að sterar mældust í henni. Hún þvertekur fyrir að hafa tekið stera og segir efnin hafa mælst í henni vegna kærasta hennar, hann hafi tekið stera og hún hafi annað hvort fengið efnin í sig eftir sopa af drykk sem hann blandaði eða með sæði úr kærastanum.

Sumar-Heimskviður - Saga Palomu

Sumar-Heimskviður - Saga Palomu

11júl

Við höldum áfram með Sumar-Heimskviðurnar og rifjum upp mál frá liðnum vetri og þátturinn í dag er helgaður einu máli. Það er saga Palomu, sem við getum nú líklega ekki kallað annað en harmsögu. Paloma Shemirani, frá suðausturhluta Bretlands, var aðeins 23 ára þegar hún lést úr eitilfrumukrabbameini í fyrrasumar. Þegar hún greindist sjö mánuðum áður, voru taldar 80% líkur á að hún næði fullum bata með lyfjameðferð. Móðir hennar, Kate Shemirani, er þekkt í Bretlandi. Hún missti leyfi sitt sem hjúkrunarfræðingur í kórónuveirufaraldrinum fyrir að dreifa skaðlegum upplýsingum um Covid-19. Kate Shemirani tókst að sannfæra dóttur sína um að hafna lyfjameðferð og gangast frekar undir óvísindalegar meðferðir skottulækna. Hún tapaði því baráttu sinni við meinið. Dánardómstjóri í Bretlandi segir umsjá Kate Shemirani yfir dóttur sinni ófullnægjandi og skammarlega, en ekki glæpsamlega. Bróðir Palomu er ósáttur við niðurstöðuna. Í viðtali við Odd Þórðarson segir bróðirinn, sem heitir Gabriel, að hann kenni móður þeirra um andlát systur sinnar. Mamma þeirra hafi á grundvelli samsæriskenninga og vantrúar á heilbrigðiskerfið, sannfært hana um að hafna lyfjameðferð.

Sumar-Heimskviður - Sala Palomu

Sumar-Heimskviður - Breskur aðall

Sumar-Heimskviður - Breskur aðall

4júl

Við höldum áfram að rifja upp valin brot frá liðnum vetri og nú er komið að þeim sem fæðast með silfurskeið í munninum. Þó sum þeirra hafi þurft að skila henni. Það er allavega raunin með fyrra umfjöllunarefnið okkar í dag, manninn sem áður var kallaður Andrés prins, en nú Andrew Mountbatten Windsor eftir að hann var sviptur öllum sínum tiltlum og meðfæddri meðgjöf í lífinu. Anna Lilja Þórisdóttir segir okkur söguna alla. Svanasöngur Downton Abbey kom í kvikmyndahús fyrir áramót. Þetta var þriðja og síðasta rmyndin sem kom í kjölfar feykivinsælla sjónvarpsþáttaraða um Crowley fjölskylduna og aðra íbúa á öllum hæðum Downton Abbey. Þættirnir hafa unnið alþjóðleg verðlaun um allan heim, slegið áhorfsmet og persónurnar eiga sér margar fastan sess í hjörtum aðdáenda. Birta Björnsdóttir fjallar um þættina vinsælu.

Sumar-Heimskviður - Fréttaljósmyndir og framtíð fjölmiðla

27jún

World Press Photo fögnuðu 70 ára afmæli í fyrra og samtökin fóru í naflaskoðun í tilefni tímamótana. Við ræddum við Joumana El Zein Khoury, framkvæmdastjóra World Press Photo, fyrr í vetur. Við rifjum upp eftirminnilegustu fréttaljósmyndir sögunnar. Myndir sem breyttu heiminum. Svo eru það möguleg endalok almannaþjónustumiðla í Bandaríkjunum. Það er stefna bandaríkjastjórnar að draga úr umfangi þessara miðla sem reka staðbundnar útvarps- og sjónvarpsstöðvar um öll Bandaríkin. Núna séu komnir fjöldi sjálfstæðra miðla og það sé ekki aðeins úrelt fyrirkomulag að ríkið fjármagni miðlana heldur spilli það fyrir sjálfstæðri blaðamennsku. Hallgrímir Indriðason vann þessa umfjöllun í febrúar og ræddi við Ingibjörgu Þórðardóttur sem er fyrrverandi fréttastjóri BBC og CNN í Bandaríkjunum. Hún sagði umræðuna um að ríkismiðlar hafi of mikil áhrif á fjölmiðlamarkaðinn góða og gilda en hún eigi ekki við Bandaríkjunum. Almannaþjónustumiðlarnir, NPR og PBS, eigi ekki roð í stærstu einkamiðlana og hvarf þeirra hefði lítil eða engin áhrif á þá. En það myndi hins vegar gera fjölmiðlalandslandslagið bæði einhæfara og fátæklegra.

Þér gæti líka líkað...