Viltu finna milljón?

viltufinnamilljon

Viltu finna milljón eru fjármála- og fræðsluþættir á Stöð 2. Þáttarstjórnendur eru Hrefna og Arnar Þór Ólafsson.

7.Þáttur - Keppendur leysa frá skjóðunni (Höskuldarviðvörun)

7.Þáttur - Keppendur leysa frá skjóðunni (Höskuldarviðvörun)

5mar

Kæru hlustendur! Þá er það lokaþátturinn og úrslitin eru ljós! Við tökum keppendur tali og förum yfir farinn veg. Við viljum nýta tækifærið og þakka kærlega fyrir áhorf og áheyrn þessa þáttaröðina. Þangað til næst!

6.Þáttur - Bergur Ebbi ræðir peninga og framtíðina

6.Þáttur - Bergur Ebbi ræðir peninga og framtíðina

26feb

Þessi þáttur var aldrei að fara að verða neitt annað en stórkostlegur með Bergi Ebba í slagtogi! Bergur er mikill hugsuður og leggur fram áhugaverðar pælingar í þessum þætti um neyslu íslendinga, gervigreind og framtíð peninga eins og þeir leggja sig. Ekki voga ykkur að missa af þessum! Þátturinn er í boði: Aukakrónur  Bónus Aurbjörg Félag lykilmanna Eignaumsjón

5.Þáttur Gerður í Blush: "Aldrei ákveða fyrirfram að fólk sé ekki tilbúið að borga fyrir eitthvað!"

5.Þáttur Gerður í Blush: "Aldrei ákveða fyrirfram að fólk sé ekki tilbúið að borga fyrir eitthvað!"

19feb

Við fengum til okkar hana Gerði Huld í mjög svo innblástursríkt spjall um tekjur, rekstur og hugarfar. Hún hefur lifað tímana tvenna þegar að kemur að rekstri en hún stofnaði sitt aðeins 21 árs og hefur ekki litið um öxl síðan. Ef þú vilt fá vikuskammt af innblæstri á rúmum klukkutíma, þá er þetta þáttur fyrir þig! Þátturinn er í boði: Aukakrónur  Bónus Aurbjörg Félag lykilmanna Eignaumsjón

4. Þáttur - Fasteignamarkaður ásamt Páli Pálssyni og Björku Pálsdóttur

4. Þáttur - Fasteignamarkaður ásamt Páli Pálssyni og Björku Pálsdóttur

12feb

Í þætti dagsins tökum við fyrir fasteigna- og lánamarkaðinn eins og hann leggur sig með tveimur sérfræðingum. Annar þeirra er hlustendum góðkunnur en Páll Pállson eigandi Pálsson fasteignasölu mætir til okkar annað árið í röð en ásamt honum fengum við til okkar hana Björk Pálsdóttur íbúðarlánaráðgjafa. Áhugavert spjall við fólk sem þekkir leikinn þegar að kemur að fasteignum!  Þátturinn er í boði: Aukakrónur  Bónus Aurbjörg Félag lykilmanna Eignaumsjón

3.þáttur - Georg Lúðvíksson: "Fjármálahegðun og erfðir eru nátengd fyrirbæri"

3.þáttur - Georg Lúðvíksson: "Fjármálahegðun og erfðir eru nátengd fyrirbæri"

5feb

Við fengum til okkar einn helsta sérfræðing landsins í persónulegum fjármálum, hann Georg Lúðvíksson, en í lok síðasta árs kom út bókin Sálfræði peninganna í þýðingu hans og Kristrúnar Tinnu Gunnarsdóttur. Georg hefur komið víða við og stofnaði meðal annars Meniga, en er nú að hefja nýja og spennandi vegferð Spesía, sem kynnt verður til leiks á næstu misserum. Fróðlegur og upplýsandi þáttur að vanda þennan fimmtudaginn og að sjálfsögðu hvetjum við alla sem hafa áhuga á heilbrigðum peningavenjum að leggja við hlustir! Þátturinn er í boði: Aukakrónur  Bónus Aurbjörg Félag lykilmanna Eignaumsjón

2.Þáttur - Lína Birgitta ræðir kaupfíkn og rekstur

2.Þáttur - Lína Birgitta ræðir kaupfíkn og rekstur

29jan

Gestur okkar í dag er Lína Birgitta Sigurðardóttir sem stóð ung frami fyrir möguleikanum á að lýsa sig gjaldþrota. Hún glímdi við kaupfíkn frá ungum aldri, en hefur í dag tekist að byggja upp magnaðan feril sem áhrifavaldur, hlaðvarpari og frumkvöðull en í dag rekur hún fyrirtækið Define the line sem hefur náð talsverðri útbreiðslu og er á spennandi tímamótum. Lína er sönnun þess að þó að allt sé í rúst í fjármálunum þá er hægt að snúa því við! Skylduhlustun fyrir alla sem hafa áhuga á góðum árangurssögum! Þátturinn er í boði: Aukakrónur  Bónus Aurbjörg Félag lykilmanna Eignaumsjón

1.Þáttur - Nína Björg sálfræðingur: "Við viljum alltaf það sama og nágranninn"

1.Þáttur - Nína Björg sálfræðingur: "Við viljum alltaf það sama og nágranninn"

22jan

Þá hefjum við seríu 2 af Viltu finna milljón hlaðvarpinu! Í dag kom til okkar hún Nína Björg sem er menntaður sálfræðingur og hefur lagt sérstaka áherslu á þá sálfræðilegu þætti sem liggja á bakvið peninga. Áhugavert spjall, þar sem við förum um víðan völl á þessum stórmerkilega anga sálfræðarinnar! Einnig skyggnumst við á bakvið tjöldin við gerð þáttanna og gefum bestu ráðin eins og áður. Eitthvað fyrir alla í dag! Þátturinn er í boði: Aukakrónur  Bónus Aurbjörg Félag lykilmanna MyIgloo

7.þáttur - Spjall við keppendur og uppgjör (Höskuldarviðvörun)

7.þáttur - Spjall við keppendur og uppgjör (Höskuldarviðvörun)

8maí2025

Þá er komið að lokaþættinum sem verður helgaður keppendum okkar. Því miður voru Kristjana og Daníel vant við látin en Jóhann & Askur og Ólafur & Guðrún mættu eldhress. Nú þegar keppni er lokið spyrjum við þau um reynslu þeirra úr þáttunum og lífið eftir keppnina. Takk kærlega fyrir áhorfið og hlustunina í þessari þáttaröð og við sjáumst í þeirri þriðju!  Umsókn fyrir næstu seríu fer fram hér: https://stod2.is/vfm - Þetta gæti breytt lífi ykkar!

6.þáttur - Halldór Kristinsson forstöðumaður hlutabréfa hjá Landsbréfum

6.þáttur - Halldór Kristinsson forstöðumaður hlutabréfa hjá Landsbréfum

1maí2025

Við fengum til okkar hann Halldór Kristinsson sjóðsstjóra og forstöðumann hlutabréfa hjá Landsbréfum og fórum yfir víðan völl í fjárfestingum.

5.þáttur - Björn Berg: Forðastu að stofna framtíðarsjóð í nafni barnsins

5.þáttur - Björn Berg: Forðastu að stofna framtíðarsjóð í nafni barnsins

14apr2025

Það eru fáir eins fróðir um persónuleg fjármál og sjálfur Björn Berg sem mætti til okkar og úr varð tæpur klukkutími af umræðum um hin ýmsu málefni. Við ræddum allt frá framtíðarreikningum barna til lífeyrismála og því er þessi þáttur fyrir fólk á öllum aldri. Sannkölluð virðissprengja í þætti dagsins! Þátturinn er í boði: Aukakrónur  Bónus Aurbjörg  Pálsson fasteignasala  Hopp