Hlaðvarp

Skagahraðlestin

Björn Þór Björnsson

18 þættir2 hlustanirSíðast uppfært 27.12.2023

Skagahraðlestin er hlaðvarpsþáttur framleiddur af stuðningsmönnum ÍA í knattspyrnu. Um borð í Skagahraðlestina munu koma ýmsir viðmælendur sem tengjast félaginu á einn eða annan hátt.

Mynd fyrir þáttinn Teitur Þórðarson – Þjálfarinn hjá Skagahraðlestin

Teitur Þórðarson – Þjálfarinn

27. desember, 2023

Jólaþáttur Skagahraðlestarinnar 2023 er viðtal við Teit Þórðarson í tveimur hlutum. Í síðari hlutanum er fjallað um þjálfarann Teit Þórðarson. Þjálfaraferill Teits spannar rúm 30 ár þar sem hann þjálfaði í Svíþjóð, Noregi, Eistlandi, Íslandi, Kanada og næstum…

Mynd fyrir þáttinn Teitur Þórðarson – Leikmaðurinn hjá Skagahraðlestin

Teitur Þórðarson – Leikmaðurinn

18. desember, 2023

Jólaþáttur Skagahraðlestarinnar 2023 er viðtal við Teit Þórðarson í tveimur hlutum. Í fyrri hlutanum er fjallað um leikmanninn Teit Þórðarson og í þeim síðari þjálfarann. Leikmannaferill Teits er fyrir margt merkilegur.

Mynd fyrir þáttinn Fleiri örsögur hjá Skagahraðlestin

Fleiri örsögur

11. nóvember, 2020

Við höldum áfram að segja örsögur úr sögu ÍA líkt og í síðasta þætti. Fjallað verður um umdeildan Íslandsmeistaratitil árið 1958, dómaraleikinn fræga árið 1992 og Bjarnamarkið svo eitthvað sé nefnt. Viðmælendur: Sturlaugur Haraldsson og Andri Júlíusson.

Mynd fyrir þáttinn Örsögur hjá Skagahraðlestin

Örsögur

2. október, 2020

ÍA hefur verið í fremstu röð í íslenskri knattspyrnu í 70 ár. Á ýmsu hefur gengið en viðfangsefni þáttarins eru nokkur einkennileg mál í sögu félagsins. Svaðilför á sjó, ólöglegir leikmenn og fleira.

Mynd fyrir þáttinn George Kirby hjá Skagahraðlestin

George Kirby

23. júlí, 2020

George Kirby hafði mikil áhrif á knattspyrnuna á Akranesi. Hann gerði Skagamenn að Íslandsmeisturum 1974, 1975 og 1977 og að bikarmeisturum 1978 og 1982. Ferli hans hjá ÍA lauk þá á sorglegan hátt þegar ÍA féll úr efstu deild árið 1990.

Mynd fyrir þáttinn Bikarbullið hjá Skagahraðlestin

Bikarbullið

10. júlí, 2020

Árið 1997 fór fram afar einkennilegur leikur í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar. Viðmælendur: Steinar Adolfsson, Pálmi Haraldsson, Ellert Jón Björnsson, Hjálmur Dór Hjálmsson, Jóhannes Gíslason og Sæmundur Víglundsson.

Mynd fyrir þáttinn Bakarinn – Seinni hluti hjá Skagahraðlestin

Bakarinn – Seinni hluti

26. júní, 2020

Bakarinn, Gunnar Sigurðsson, var í forystu knattspyrnunnar á Akranesi hátt í þrjátíu ár. Það gekk á ýmsu á þessum tíma en það hefur gustað um Gunnar alla tíð og hann hefur verið umdeildur. Í viðtalinu verða hæðir og lægðir hans á ferlinum ræddar.

Mynd fyrir þáttinn Bakarinn – Fyrri hluti hjá Skagahraðlestin

Bakarinn – Fyrri hluti

13. júní, 2020

Bakarinn, Gunnar Sigurðsson, var í forystu knattspyrnunnar á Akranesi hátt í þrjátíu ár. Það gekk á ýmsu á þessum tíma en það hefur gustað um Gunnar alla tíð og hann hefur verið umdeildur. Í viðtalinu verða hæðir og lægðir hans á ferlinum ræddar.

Mynd fyrir þáttinn Uppgjör hjá Skagahraðlestin

Uppgjör

27. september, 2019

Í þættinum fyrir síðasta heimaleik Skagans er knattspyrnuárið gert upp á skemmtilegan hátt. Reynt verður að fanga stemninguna í kringum liðið og stiklað á því helsta sem gekk á.

Mynd fyrir þáttinn Minningar hjá Skagahraðlestin

Minningar

16. september, 2019

Í níunda þætti Skagahraðlestarinnar fengum við þrjá Skagamenn, þau Hörð Helgason, Ellu Maríu Gunnarsdóttur og Sverri Mar Smárason til að segja okkur frá sínum eftirminnilegustu minningum tengdum Knattspyrnufélagi ÍA.