Hlaðvarp
Segðu mér sögu
Storytel Iceland
10 þættir|51 hlustanir|Síðast uppfært 8.1.2020
Skemmtilegir og vandaðir viðtalsþættir sem sannir bókaunnendur ættu ekki að láta fram hjá sér fara. Hallgrímur Thorsteinsson kynnir hlustendur fyrir höfundum vinsælustu bóka Storytel, lesurunum á bak við tjöldin og hvað það er sem fer í…
Segðu mér sögu
8. janúar, 2020Hinn landsþekkti leikari Guðmundur Ólafsson er jafnframt vinsæll rithöfundur og sá eini sem tvisvar hefur hlotið Íslensku barnabókaverðlaunin. Í fyrra skiptið 1986 fyrir bókina Emil og Skundi og það síðara 1998 fyrir Heljarstökk afturábak.
Segðu mér sögu
8. janúar, 2020Berglind Björk Jónasdóttir veit fátt jafn nærandi og að sökkva sér ofan í góða bók. „Það er ekkert sem færir mann nær núvitundinni en að týna sér í upplestri“ segir hún.
Segðu mér sögu
8. janúar, 2020Arnar Jónsson steig fyrst á leiksvið hjá Leikfélagi Akureyrar 10 ára gamall. Faðir hans var formaður leikfélagsins og mamma hans, sem var frábær eftirherma, seldi miða í leikhúsið á heimilinu.
Segðu mér sögu
8. janúar, 2020Miðaldasagnaheimur Söndru B. Clausen í seríunni Hjartablóð, ljósblár með sögulegu ívafi, er á ýmsa lund nýstárlegur. En sögur hennar af Magdalenu Ingvarsdóttur, fjölskyldu hennar úr Smálöndum Sviþjóðar, ástum hennar og örlögum fyrir 400 árum, eru um leið…
Segðu mér sögu
8. janúar, 2020Ein gagnlegasta hljóðbókin á Storytel fyrir þá þá sem unna landinu og Íslandssögunni hlýtur að vera bók fræðaþularins Jóns R. Hjálmarssonar: Landnámssögur við þjóðveginn í flutningi Hinriks Ólafssonar.
Segðu mér sögu
8. janúar, 2020Storytel fagnar því að hafa fengið Steinunn Ólínu Þorsteinsdóttur í raðir flytjenda. Það er ekki bara að þessi magnaða leikkona hafi veitt okkur næma hlutdeild í sigrum og sorgum fólks með persónutúlkun sinni á leiksviðinu, í kvikmyndum og sjónvarpi í gegnum…
Segðu mér sögu
8. janúar, 2020Davíð Logi Sigurðsson er fjórði gestur Halla Thorst í Segðu mér sögu. Davíð Logi hefur starfað sem blaðamaður og í utanríkisráðuneytinu, en í bókum sínum fléttar hann sagnfræði og skáldskap saman á listilegan hátt.
Segðu mér sögu
7. janúar, 2020Bækur Sólveigar Pálsdóttur um Guðgeir lögreglumann hafa slegið í gegn á undanförnum árum, en sú nýjasta, Refurinn, kom út árið 2018 við frábærar undirtektir lesenda, Sólveig les sjálf útgáfuna hér á Storytel.
Segðu mér sögu
7. janúar, 2020Jóhann Sigurðarson er einn af ástsælustu leikurum þjóðarinnar. Frammistaða hans hefur hrifið jafnt gesti Þjóðleikhússins sem og börn heima í stofu sem dolfallin hafa heyrt hann bregða sér í allra kvikinda gervi í talsettu barnaefni.
Segðu mér sögu
7. janúar, 2020Yrsa Sigurðardóttir er fyrsti gesturinn í Segðu mér sögu með Halla Thorst. Viðtalið var tekið í Iðnó í haust á glæpasagnahátiðinni Iceland Noir, þar sem Yrsa hefur verið ein helsta driffjöðurin.