Hlaðvarp

Samfélagið

RÚV

464 þættir32 hlustanirSíðast uppfært 26.2.2026

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is

Mynd fyrir þáttinn Sálfæði snúbúa og þvottahús spítalanna hjá Samfélagið

Sálfæði snúbúa og þvottahús spítalanna

26. febrúar, 2026

Í þessum síðasta þætti Samfélagsins veltum við fyrir okkur snúbúum – einstaklingum sem flytja til útlanda og snúa svo aftur. Karítas Hrundar Pálsdóttir, doktor í ritlist, hefur rannsakað snúbúa og svokallaðar snúbúabókmenntir.

Mynd fyrir þáttinn Reykjavík Grapevine, Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis og May Morris hjá Samfélagið

Reykjavík Grapevine, Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis og May Morris

25. febrúar, 2026

Rekstur dagblaðsins Reykjavík Grapevine er í járnum. Dagblaðið, sem kemur út á ensku, einu sinni til tvisvar í mánuði og hefur gert frá árinu 2003, hefur neyðst til að segja upp þremur blaðamönnum, en biðlar nú til almennings að halda því á lífi.

Mynd fyrir þáttinn Barnaverndarkerfið og ferðaþjónusta í Grænlandi hjá Samfélagið

Barnaverndarkerfið og ferðaþjónusta í Grænlandi

19. febrúar, 2026

Barnaverndarkerfið hefur verið mikið til umræðu. Tómas Hrafn Sveinsson formaður umdæmisráðs barnaverndar Reykjavíkur ræddi við Fanneyju Birnu Jónsdóttur um stöðu barnaverndar í dag, uppbyggingu og gang kerfisins og feril málanna sem koma inn á borð…

Mynd fyrir þáttinn Gervigreind forritar gervigreind, virk efri ár og vetrarklippingar hjá Samfélagið

Gervigreind forritar gervigreind, virk efri ár og vetrarklippingar

18. febrúar, 2026

Við byrjum þáttinn á gervigreindinni. Eyrún Magnúsdóttir gervigreindarfréttaritari Samfélagsins ætlar að kíkja til okkar og segja okkur frá því sem ber hæst í gervigreindarumræðunni þessa dagana.

Mynd fyrir þáttinn Ávaxtaflugur, grænlenskur atvinnurekstur og kaffinördismi hjá Samfélagið

Ávaxtaflugur, grænlenskur atvinnurekstur og kaffinördismi

12. febrúar, 2026

Í byrjun þáttar fáum við til okkar Valgerði Jakobínu Hjaltalín, nýdoktor við Háskóla Íslands, til að fræða okkur um ávaxtaflugur. Svo heimsækjum við Christian Keldsen, framkvæmdarstjóra Sulisitsisut, félag atvinnurekenda í Grænlandi.

Mynd fyrir þáttinn Bitcoin á niðurleið, listnám háskólastigi á Akureyri og fiskiflugan hjá Samfélagið

Bitcoin á niðurleið, listnám háskólastigi á Akureyri og fiskiflugan

11. febrúar, 2026

Verð á rafmyntinni Bitcoin hefur sveiflast duglega niður á við síðustu mánuði. Í síðustu viku rifjuðum við upp samtal sem við áttum fyrir nokkrum árum við hagfræðinginn Björgvin Inga Ólafsson um rafmyntina, sem þá hafði risið mjög hátt.

Mynd fyrir þáttinn Afleiðingar ofbeldis í æsku, Grænland árið 1976 og Bitcoin sveiflur hjá Samfélagið

Afleiðingar ofbeldis í æsku, Grænland árið 1976 og Bitcoin sveiflur

5. febrúar, 2026

Rætt við þær Bryndísi Björk Ásgeirsdóttur, prófessor í sálfræði við Háskólann í Reykjavík og Þóru Sigfríði Einarsdóttur, sérfræðingur í klínískri barnasálfræði með áfallasálfræði sem undirgrein, um áföll og ofbeldi sem börn verða fyrir í æsku sem og þau úrræði…

Mynd fyrir þáttinn Eyðibyggðir, dagur í lífi stelpu í 9. bekk og Grænland árið 1976 hjá Samfélagið

Eyðibyggðir, dagur í lífi stelpu í 9. bekk og Grænland árið 1976

4. febrúar, 2026

Fræðimenn á ýmsum fræðasviðum Háskóla Íslands vinna nú að umfangsmikilli rannsókn sem ber heitið Eyðibyggðir miðalda á Íslandi. Þar mætast sagnfræðin og fornleifafræðin meðal annars og varpa nýju ljósi á hvernig samfélag og byggð þróuðust á Íslandi á…

Mynd fyrir þáttinn Almyrkvi á sólu, gervigreind í Davos og dagskrárbreytingar á Rás 1 hjá Samfélagið

Almyrkvi á sólu, gervigreind í Davos og dagskrárbreytingar á Rás 1

30. janúar, 2026

Almyrkvi á sólu verður sjáanlegur frá Íslandi þann tólfta ágúst. Það er í fyrsta sinn síðan 1954 sem hægt verður að sjá almyrkva hér á Íslandi. Hann mun sjást á vestasta hluta landsins, og má búast við að fólk flykkist að til að verða vitni af þessum atburði.

Mynd fyrir þáttinn Vinnumansal, bráðnun jökla og umhverfismál hjá Samfélagið

Vinnumansal, bráðnun jökla og umhverfismál

29. janúar, 2026

Þrældómur nútímans er yfirskrift málþings sem ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International heldur í næstu viku. fjallað verður um hvernig vinnumansal birtist okkur á Íslandi og á heimsvísu.