Hlaðvarp

Pyngjan

Pyngjan

266 þættir28 hlustanirSíðast uppfært 28.2.2025

Pyngjan er viðskiptamiðað hlaðvarp þar sem fréttir, fróðleikur og vandaðar umfjallanir eru í fyrirrúmi. Þættirnir koma út á föstudögum og eru sem ljós í enda ganganna hjá hinum almenna launþega og vansæla millistjórnanda.

Mynd fyrir þáttinn Föstudagskaffið: Finale (Takk, en bless) hjá Pyngjan

Föstudagskaffið: Finale (Takk, en bless)

28. febrúar, 2025

Sendu okkur skilaboð! Kæra Pyngjusamfélag! Allt tekur enda og þar er Pyngjan engin undantekning. Þetta hafa verið 3 ánægjuleg ár en nú, eftir 268 þætti, mætast þeir Addi og Iddi í hinsta sinn fyrir aftan míkrófóninn.

Mynd fyrir þáttinn Ársreikningar: Finale - SKEL & Lifandi vísindi hjá Pyngjan

Ársreikningar: Finale - SKEL & Lifandi vísindi

21. febrúar, 2025

Sendu okkur skilaboð! Þá er komið að síðasta ársreikningaþætti Pyngjunnar og því þriggja ára vegferð að ljúka. Það kom því ekkert annað til greina en að taka fyrir House of SKEL en svo þurftum við auðvitað að leita í ræturnar og gefa út þátt í anda…

Mynd fyrir þáttinn Föstudagskaffið: Pabbi má ég kíkja í Járnfjallið? hjá Pyngjan

Föstudagskaffið: Pabbi má ég kíkja í Járnfjallið?

14. febrúar, 2025

Sendu okkur skilaboð! Kæru vinir Pyngjunnar. Þetta mun verða okkar næstsíðasta Föstudagskaffi og því er vel við hæfi að hafa það í lengri kanntinum. Þessi þáttur er gjörsamlega stappaður af viðskipti og vitleysu. Eigið yndislega helgi!

Mynd fyrir þáttinn Ársreikningar: Isavia hjá Pyngjan

Ársreikningar: Isavia

7. febrúar, 2025

Sendu okkur skilaboð! Kæru hlustendur Pyngjunnar! Þá er komið að næstsíðasta ársreikningaþættinum okkar og það er enn eitt ríkisapparatið. Þó lítur út fyrir að vel sé haldið á spöðunum hjá Isavia, ólíkt mörgum öðrum eignum í eigu ríkisins. Saga er sjón ríkari!

Mynd fyrir þáttinn Föstudagskaffið: Let's talk about Tom (Time to say goodbye) hjá Pyngjan

Föstudagskaffið: Let's talk about Tom (Time to say goodbye)

31. janúar, 2025

Sendu okkur skilaboð! Já þið heyrðuð rétt, kæru vinir. Pyngjan er á leið í frí - langt frí! Við munum þó dæla í ykkur P-vítamíni út febrúar svo í guðanna bænum verið með okkur þangað til.

Mynd fyrir þáttinn Ársreikningar: Brim hjá Pyngjan

Ársreikningar: Brim

24. janúar, 2025

Sendu okkur skilaboð! Í dag tökum við fyrir sögu og rekstur Brims sem er eitt stærsta útgerðarfélag landsins. Iddi droppar alvöru value bombum hægri, vinstri, enda sérfræðingur í þessum efnum.

Mynd fyrir þáttinn Föstudagskaffið: Besta mögulega ár launþegans er gengið í garð hjá Pyngjan

Föstudagskaffið: Besta mögulega ár launþegans er gengið í garð

17. janúar, 2025

Sendu okkur skilaboð! Kæru hlustendur Pyngjunnar! Við óskum ykkur góðrar helgar og gleðilegs árs. Ef þú ert launþegi er ekkert nema launað frí í vændum svo ekki fara að stofna þinn eigin rekstur á þessu ári. Góðar stundir.

Mynd fyrir þáttinn Ársreikningar: Tandur hjá Pyngjan

Ársreikningar: Tandur

10. janúar, 2025

Sendu okkur skilaboð! Hið hreinasta hreinlæti er næst á dagskrá. Bjarni Ármanns virðist sjá í framtíðina og er ótvíræður keisari hreinlætis á Íslandi. Við förum yfir söguna, næyjasta ársreikning og fleira til í dag. Góða helgi.

Mynd fyrir þáttinn Föstudagskaffið: Saga hlutabréfa á Íslandi með Þórði Pálssyni hjá Pyngjan

Föstudagskaffið: Saga hlutabréfa á Íslandi með Þórði Pálssyni

3. janúar, 2025

Sendu okkur skilaboð! Það hlaut að koma að því! Geitin sjálf, Tóti Páls kíkti á okkur upp í Seðlabanka Kópavogs og settist á bakvið míkrófóninn.

Mynd fyrir þáttinn Föstudagskaffið: 2024 uppgjör ásamt Helga Frímannssyni hjá Pyngjan

Föstudagskaffið: 2024 uppgjör ásamt Helga Frímannssyni

27. desember, 2024

Sendu okkur skilaboð! Við fengum til okkar fyrrum hlutabréfamiðlarann Helga Frímannsson sem hefur vakið mikla og verðskuldaða athygli fyrir greiningar á hlutabréfum á launþegaforritinu LinkedIn á árinu.