Spjöllum saman um morð, mannshvörf, raðmorðingja og dularfull dauðsföll sem eru bæði leyst eða óleyst mál! Nýr þáttur kemur út alla miðvikudaga. Þú finnur okkur á facebook og instagram: Morðskúrinn. www.pardus.is/mordskurinn

Tiffany Campbell og Melissa Chilton
Árið 1996 höfðu vinkonurnar Tiffany og Melissa báðar starfað á ljósabekkjastofu sem var sérstaklega fyrir karlmenn - en þar gátu þeir sótt sér auka þjónustu sem ekki bauðst á hefðbundnum ljósabekkjastofum. En það var þar sem að lík þeirra beggja áttu eftir að finnast einn góðan veður dag en þær höfðu báðar verið stungnar til bana. Við tók rannsókn sem að leiddi lögreglu í margar áttir og enn er mörgum spurningar ósvarað. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Heimaskipulag Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn

Orrin og Orson West
Orrin og Orson voru tvær bræður sem höfðu fljótlega eftir fæðingu verið færðir í fósturkerfið sökum vanrækslu heima fyrir. Þeim var komið fyrir í fóstri hjá Jacqueline og Trezell West og þar átti lífið aldeilis að byrja. Fjölskyldan flutti frá Bakersfield til California City, en ekki löngu eftir það voru strákarnir tilkynntir týndir. Að sögn Trezell höfðu þeir verið úti í garði að leika sér þegar þeir hurfu, líklegast í gegnum hliðið í garðinum. Rannsókn lögreglu leiddi til tímalínu dularfullra atburða sem átti eftir að láta þá vilja breyta stefnu rannsóknarinnar. Þátturinn er í boði Define The Line en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum. Þátturinn er í boði Heimaskipulag en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt á heimasíðu og í verslun.

Sherita Williams
Þegar hin 16 ára gamla Sherita Williams skilaði sér ekki heim úr snyrtitíma þá vöknuðu upp spurningar hjá foreldrum hennar. Sherita var öllu jafna mjög samviskusöm stelpa en átti það þó til að biðja foreldra sína um örlítið meira frelsi svo þau héldu ró sinni. En daginn eftir stóð þeim ekki á sama og úr varð leit. Þátturinn er í boði Heimaskipulag Define the Line Sport Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn

Krim börnin
Krim hjónin ákváðu að ráða inn barnfóstru þar sem fjórða barn þeirra var á leiðinni og það var nóg að gera hjá þeim, en sú ákvörðun átti eftir að reynast þeim ansi dýrkeypt. Þátturinn er í boði - Define The Line - Heimaskipulag

Helen McCourt
Þann 9. febrúar árið 1988 var hin 22 ára gamla Helen McCourt að drífa sig heim að borða kvöldmat því hún átti planað stefnumót með kærastanum sínum. Þennan dag hafði hún sérstaklega beðið móður sína um að hafa matinn tilbúinn þegar hún kæmi heim og var því afar óvenjulegt þegar Helen seinkaði. Fljótt var þó ljóst að Helen var ekki sein, hún var horfin. Þátturinn er í boði Define the Line Heimaskipulag Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn

Rey Rivera
Árið 2006 hafði Allison, eiginkona Rey, ferðast út úr bænum í vinnuferð. Þegar hún ætlaði að heyra í eiginmanni sínum til að láta hann vita að hún væri komin á leiðarenda þá fékk hún engin svör. Morguninn eftir stóð henni ekki lengur á sama og ákvað að aka heim og þar með tilkynna hvarf hans. Sex dögum síðar fannst bíllinn hans lagður nálægt Belvedere hótelinu í Baltimore og ekki leið á löngu þar til lík hans kom til með að finnast innan þess svæðis. HEIMASKIPULAG: Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt inni á www.heimaskipulag.is DEFINE THE LINE: Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt inni á www.definetheline.is

Keeshae Jacobs
Keeshae Jacobs var 21 árs gömul þegar hún kvaddi mömmu sína kvöld eitt og sagðist ætla út að hitta vin. Keeshae hafði þennan dag rifist við kærastann sinn og var mamma hennar ekkert hissa á að hún vildi finna sér eitthvað skemmtilegt að gera. Það lág fyrir að hún ætlaði að gista en þegar næsti dagur rann upp og ekkert bólaði á Keeshae þá fóru áhyggjur að vakna. Við tók langt og flókið ferli sem skilaði fáum svörum. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Heimaskipulag

Elyse Pahler
Elyse var 15 ára þegar hún var aðeins farin að óhlýðnast reglum foreldra sinna. Eitt kvöld, eins og svo mörg önnur, setti hún kodda undir sængina og læddist út en kvöldið 22. júlí 1995 var frábrugðið öðrum kvöldum þar sem hún kom ekki til með að skila sér heim. Áskriftarleiðin okkar kostar 1.390kr.- á mánuði og inniheldur yfir 200 aðgengilega þætti -> www.pardus.is/mordskurinn Þátturinn er í boði: - Define The Line en kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt inni á www.definetheline.is - Heimaskipulag en kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt inni á www.heimaskipulag.is

Gillian "Jill" Meagher
Jill Meagher hafði ákveðið að skella sér út á lífið með vinnufélögum í tilefni afmælis eins þeirra. Barinn sem hún kom til með að eyða kvöldinu á var í minna en km fjarlægð frá heimili hennar sem hentaði vel, endaði gat hún bara gengið heim. Jill átti þó aldrei eftir að skila sér heim. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Heimaskipulag Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn

Joleen Cummings
Joleen Cummings var farsæl hárgreiðslukona í Fernandina Beach, Flórída, allt til maí 2018 þegar hún hvarf sporlaust. Bíllinn hennar kom til með að finnast yfirgefinn ekki langt frá stofunni og beindist rannsókn fljótt að aðila sem var ekki sá sem hann sagðist vera. - Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt á www.definetheline.is - Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt á www.heimaskipulag.is



