Meginlandið

Evrópuhreyfingin

SamfélagiðLandið

Meginlandið er hlaðvarp Evrópuhreyfingarinnar í stjórn Helgu Völu Helgadóttur og Páls Rafnar Þorsteinssonar. Þau bjóða til sín góðum gestum til að ræða það sem er efst á baugi í Evrópumálum, heima og að heiman.

Meginlandið XVII: BREXIT

Meginlandið XVII: BREXIT

19júl

Hvað varð til þess að meirihluti Breta kaus með útgöngu úr ESB og hvernig vegnar landinu eftir hana? Kristján Guy Burgess alþjóðatjórnmálafræðingur er gestur Meginlandsins að þessu sinni og fjallar um eitt afdrifaríkasta augnablik í sögu ESB - þegar Bretar gengu út úr sambandinu.

Meginlandið XVI: Réttindi neytenda

Meginlandið XVI: Réttindi neytenda

12júl

Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, er gestur Meginlandsins þessa vikuna. Stór hluti af íslenskri neytendalöggjöf er kominn frá ESB og vandséð að réttindi neytenda væru varin ef ekki væri fyrir þátttöku Íslands í EES samstarfinu. Breki fer rækilega yfir þetta í þættinum.

Meginlandið XV: Sjálfstæði Íslandinga með Guðna Th. Jóhannessyni

Meginlandið XV: Sjálfstæði Íslandinga með Guðna Th. Jóhannessyni

5júl

Hr. Guðni Th. Jóhannesson fyrrverandi forseti lýðveldisins er gestur Meginlandsins að þessu sinni. Sjálfstæðið og fullveldið eru helstu umræðuefni þáttarins en Guðni fer rækilega yfir sögu þjóðarinnar þegar kemur að þeim málum, í samhengi við þorskastríðin, Kalda stríðið og þátttöku Íslands í stofnunum á alþjóðavettvangi.

Meginlandið XIV: Sjávarútvegurinn

Meginlandið XIV: Sjávarútvegurinn

28jún

Að þessu sinni siglum við út á fiskimiðin í kringum landið. Gestur þáttarins er Úlfar Hauksson stjórnmálafræðingur og sjómaður, með sérþekkingu á sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins.

Meginlandið XIII: Efnahagsmálin

Meginlandið XIII: Efnahagsmálin

7jún

Meginlandið að þessu sinni er helgað efnahagsmálum og er gestur þáttarins, Guðrún Johnsen, hagfræðingur og prófessor í fjármálum. Við förum yfir nýja skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum, sem unnin var af erlendum sérfræðingum, við spyrjum Guðrúnu út í kosti og galla óstöðugs gjaldmiðils, áhrif krónunnar á stöðu heimila og lítilla og meðalstórra fyrirtækja og síðast en ekki síst spyrjum við Guðrúnu út í það hvort það hafi verið íslenska krónan sem bjargaði okkur út úr hruninu.

Meginlandið XII: Að kíkja í pakkann

Meginlandið XII: Að kíkja í pakkann

31maí

Gestur þáttarins er Dr. Margrét Einarsdóttir prófessor og sérfræðingur í Evrópurétti við Háskólann í Reykjavík. Í þættinum ræða þær Helga Vala saman um það hvernig mögulegur samningur Íslands við Evrópusambandið gæti litið út.

Meginlandið XI: Evrópudagurinn

Meginlandið XI: Evrópudagurinn

10maí

Það var á þessum degi árið 1950 sem Robert Schuman, þáverandi utanríkisráðherra Frakklands lýsti yfir fyrirhugaðri stofnun Kola- og stálbanalags, sem miðaði að því að samhæfa kola- og stáliðnað í sex Evrópuríkjum. Og þar með hófst sú vegferð sem síðan átti eftir að verða að Evrópusambandinu. Við tölum gjarnan um að þessi vefgerð sé drifin áfram af ákveðinni hugsjón – Evrópuhugsjónni. En til þess að hjálpa okkur að kryfja þá hugsjón og þær hugmyndastefnur sem hafa mótað Evrópu samtímans, höfum við fengið til okkar góðan gest: Guðmund Hálfdánarson, sem er prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands og fyrrverandi forseti Hugvísindasviðs. Hann er sérfræðingur í stjórnmálasögu Evrópu og hefur m.a. rannsakað og ritað um þjóðhyggju og þjóðernishyggju.

Meginlandið X: Samstarf Íslands við Evrópu

Meginlandið X: Samstarf Íslands við Evrópu

3maí

Evrópuumræðan er á fleygiferð og nýjar upplýsingar um Evrópusambandið birtast okkur daglega. Gestur þessa þáttar Meginlandsins er reynslubolti í stjórnmálum og jafnframt einn af virkustu greinahöfundum um Evrópumál. Þorsteinn Pálsson, fv. forsætis- og fjármálaráðherra, sjávarútvegs- sem og dómsmálaráðherra fer yfir fortíð og framtíð samstarfs Íslands og Evrópu í skemmtilegu og upplýsandi spjalli.

Meginlandið IX: Allt um ESB

Meginlandið IX: Allt um ESB

12apr

Gestur þáttarins er Dr. Eiríkur Bergmann, prófessor við Háskólann á Bifröst sem hefur stundað rannsóknir á alþjóðamálum um áratugaskeið og meðal annars skrifað bókina Frá Evróvisjón til Evru.

Meginlandið VIII: Aðildarviðræður

Meginlandið VIII: Aðildarviðræður

29mar

Gestur þáttarins er Ragnheiður Elva Þorsteinsdóttir lektur við Háskólann á Akureyri og sérfræðingur í stjórnskipunarrétti. Í umræðunni hefur borið á misskilningi um það hvernig aðildarviðræður fara fram og við hvern Ísland er að semja. Yfir þetta er rækilega farið í þættinum.

Þér gæti líka líkað...