Með lífið í lúkunum

HeilsuErla

HeilsaMenntun

Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt. Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.

Það er ekki til hættulaus kyrking! María Hjálmtýsdóttir. (Heilsumoli 46)

Það er ekki til hættulaus kyrking! María Hjálmtýsdóttir. (Heilsumoli 46)

15júl

Í þessum heilsumola kom hún María Hjálmtýsdóttir kynjafræðikennari í spjall til Erlu til að ræða um nýtt átak og vitaundavakningu varðandi hættu kyrkinga, en átakið ber sama heiti og hlaðvarpið og vakti því sérstakan áhuga minn. Samtök og stofnanir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa haft vaxandi áhyggjur af kyrkingartökum hin síðari ár, bæði sem hluta af öðru ofbeldi en líka sem hluta af kynlífi þar sem klámáhrifa gætir. Slík valdbeiting er iðulega kynbundin, þ.e. karlar eða drengir að kyrkja konur eða stúlkur.  Ranghugmynda gætir um að eitthvað sé til sem heitir öruggar kyrkingar en nýlegar rannsóknir leiða í ljós meiri hættu við að þrengja að blóðflæði til heilans en áður hefur verið talið. Hver einasta sekúnda sem flæði blóðs er heft hefur áhrif á heilann og lítið átak þarf til að valda skemmdum (töluvert minna átak en þrýstingurinn við venjulegt handaband). Það geta orðið alvarlegar skemmdir á heila þótt engin ummerki sjáist og alvarleikinn kemur jafnvel ekki ljós fyrr en mörgum dögum síðar. Í hálsinum eru viðkvæm bein og beingerð brjósk sem geta brotnað við þrýsting án þess að það sé sýnilegt eða uppgötvist strax. Að kyrkja aðra manneskju er alltaf hættuspil og getur haft mjög alvarlegar afleiðingar hvort sem það er meðvitað eða ómeðvitað ofbeldi, kynferðislegt eða ekki. Stígamót, Samtök um kvennaathvarf, Bjarkarhlíð- miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, Vitund – samtök gegn kynbundnu ofbeldi, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Félag kynjafræðikennara hafa blásið til samfélagsmiðlaátaks til að vekja athygli á þessum hættum, miðla nýjustu þekkingu og hvetja til fræðslu og umræðu. Átakið ber heitið „Með lífið í lúkunum” og miðlar staðreyndum um hættu kyrkingartaka. Með lífið í lúkunum fór af stað 22. júní og verður kynnt fyrir öllum aldurshópum en þess ber að geta að ungt fólk á Íslandi hefur sérstaklega kallað eftir meiri fræðslu um kynhegðun og kynbundið ofbeldi. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

122. Spilafíkn er dauðans alvara. (Kvíði, þunglyndi, skömm og sjálfsvígshugsanir). Börkur Reykjalín Brynjarsson

122. Spilafíkn er dauðans alvara. (Kvíði, þunglyndi, skömm og sjálfsvígshugsanir). Börkur Reykjalín Brynjarsson

10júl

Nýlega settumst við Börkur Reykjalín Brynjarsson niður og ræddum um kvíða og þunglyndi, burnout, spilafíkn, skömm, sjálfsvígshugsanir og fleira.  Hann segir í viðtalinu á einlægan hátt frá fallegri en sorgleg lífsreynslu þegar hann leitaði til Píeta samtakanna eftir að lífið hafði leikið hann grátt. Berki finnst mikilvægt að ræða opinskátt um hlutina í stað þess að byrgja þá inni og fela. Það er skömmin sem dregur allt of marga til dauða en einungis 10% þeirra sem eru með spilafíkn leita sér aðstoðar.  Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins:  💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir mikið með vörum frá New Nordic.  🌱  -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?  🐘  -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

121. Það velur enginn að vera með offitu. (Sjúkdómurinn offita, megrunarmenning, matarsuð, átkastaröskun og fordómar). Rut Eiríksdóttir

121. Það velur enginn að vera með offitu. (Sjúkdómurinn offita, megrunarmenning, matarsuð, átkastaröskun og fordómar). Rut Eiríksdóttir

27jún

í þættinum ræðir Erla við Rut Eiríksdóttur hjúkrunarfræðing um sjúkdóminn offitu.  Rut segir frá megrunarmenningu í æsku, erfiðum bróðurmissi og hvers vegna hún stofnaði SFO samtök fólks með offitu. Þær stöllur ræða um skilgreininguna á sjúkdómnum, hlutverk erfða og umhverfis, matarsuð, átkastaröskun og fordóma. Rut hefur glímt við offitusjúkdómin frá barnæsku og alin upp í megrunarmenningu. Aðeins þrettán ára gömul þróaði Rut með sér átröskun og eftir að hafa barist áfram í áraraðir og prófað alla megrunakúra undir sólinni, leitaði hún sér hjálpar og fór í efnaskiptaaðgerð sem bjargaði heilsu hennar.  Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins:  💙 -HEILSUHILLAN. Breytingarskeið? Femarelle sem fyrsta meðferð.  🌱  -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?  🐘  -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

Djúpslökun 2 (Heilsumoli 45)

Djúpslökun 2 (Heilsumoli 45)

19jún

Ég fékk ósk um að gera Djúpslökun án undirspils/tónlistar og varð að sjálfsögðu við þeirri beiðni.  Í amstri dagsins er nauðsynlegt að gefa sér tíma til þess að ,,hlaða batteríin" okkar reglulega, bæði andlega og líkamlega. Við pössum flest að ræftæki okkar séu hlaðin fyrir daginn enn munum við eftir því að hlaða okkur sjálf? Til eru margar leiðir til þess að ,,hlaða" sig en djúpslökun er afar áhrifarík leið til þess að öðlast innri ró og losa um spennu og eða streitu sem situr í líkamanum.  Þessi djúpslökun er rúmlega 30 mínútna leidd hugleiðsla sem er einföld en afar áhrifarík leið til að gleyma stað og stund, beina athyglinni inn á við, vera í meðvitund og auka vellíðan. Njótið vel! Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

120. Geðhvarfasýki og heilsa. (Geðrof, bataferli, umræða og fordómar). Anna María Jónsdóttir

120. Geðhvarfasýki og heilsa. (Geðrof, bataferli, umræða og fordómar). Anna María Jónsdóttir

12jún

Í þættinum ræðir Erla við Önnu Maríu Jónsdóttur um Geðhvarfasýki og heilsu en Anna María fór í sitt fyrsta geðrof fyrir um ári síðan. Hún segir okkur frá sjúkdómnum og bataferlinu og hvað það er mikilvægt að tala opinskátt um andlega sjúkdóma til þess að minnka fordóma. Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins:  💙 -HEILSUHILLAN. Breytingarskeið? Femarelle sem fyrsta meðferð.  🌱  -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?  🐘  -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

Hvað er hugrekki? Laufey Haraldsdóttir (Heilsumoli 44)

Hvað er hugrekki? Laufey Haraldsdóttir (Heilsumoli 44)

10jún

Þar sem að Hugrekki hefur verið mér ofarlega í huga síðan ég lauk námi mínu hjá Virkja og þau voru að byrja með hlaðvarpið Virkja spjallið, fékk ég leyfi til þess að deila þessum fallegu hugleiðingum Laufeyjar með ykkur.  „Virkja Spjallið“ er podcast um markþjálfun, meðvitund og mannlegan vöxt. Við ræðum uppbyggileg málefni, skoðum eiginleika markþjálfunar og veltum fyrir okkur hvernig við getum innleitt markþjálfahugarfarið í daglegt líf og starf.  Hlý og innihaldsrík spjöll fyrir þau sem vilja vaxa, tengjast sjálfum sér og öðrum og skapa meiri meðvitund í daglegu lífi. Að baki podcastinu stendur Virkja sem er markþjálfunarskóli, þar starfa hópur reyndra markþjálfa með ástríðu fyrir vexti, mannlegum tengslum og því að styðja fólk í að efla innri styrk sinn og meðvitund. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

119. The transformative power of strength. (Nutrition, macros, mental toughness, menopause and lifestyle). Pia Marangoni

119. The transformative power of strength. (Nutrition, macros, mental toughness, menopause and lifestyle). Pia Marangoni

5jún

In this insightful interview, Pia Marangoni shares her journey from banking to health and strength coaching, emphasizing the importance of personalized nutrition, resilience, and the transformative power of strength sports. Discover practical tips on pre- and post-workout nutrition, managing menopause and hormonal changes through lifestyle and living in alignment with your true self. Pia Marangoni’s Instagram The Fiercely Fueled Podcast A huge shoutout to the podcasts sponsors:  💙 -HEILSUHILLAN an Icelandic company that focuses on promoting and selling health and wellness products like Femarelle.  🌱  -SPÍRAN a cozy and beautiful restaurant in Iceland serving incredibly healthy, homemade food. It’s a place that truly nourishes your body and supports your health journey. My favourite on the menu these days is the rsalad that I designed in collaboration with Spíran. (Heilsusalat Heilsuerlu)  🐘  -VIRKJA the life coach school that changed my life. I learned so much about myself, and has helped me grow in every part of my life, as a mom, a wife, a person, and even as a podcaster.  💗 - ÞÍN FEGURÐ. Located in Hafnarfjörður, Iceland, it is a comprehensive beauty salon offering a wide range of professional treatments. The name uses the Icelandic words Þín (Your) fegurð (beauty). 💦  -UNGBARNASUND ERLU  (Erla's Baby Swimming) is my swim school. Based in Hafnarfjörður, it offers professional, varied, and friendly classes focusing on bonding, play and water safety for infants and children up to 2,5 years of age. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

118. Beinþynning er hinn þögli sjúkdómur. (Næring, hreyfing, þyngdarstjórnunaraðgerðir, lyf og beinþéttni).  Dr.Sigríður Björnsdóttir

118. Beinþynning er hinn þögli sjúkdómur. (Næring, hreyfing, þyngdarstjórnunaraðgerðir, lyf og beinþéttni). Dr.Sigríður Björnsdóttir

29maí

Í þættinum ræðir Erla við Sigríði Björnsdóttur, innkirtla- og efnaskiptalækni um beinheilsu, hvað ákvarðar beinþéttni og hvers vegna við töpum beinþéttni í kringum tíðahvörf, hinn þögla sjúkdóm sem beinþynning er og hvað við getum gert með lífstíl okkar til þessa að fyrirbyggja eða snúa við þeirri þróun.  Þær ræða einnig um áhrif ofþjálfunar, átröskunar, þyngdarstjórnunaraðgerða og lyfja á beinheilsu okkar og hversu mikilvægt það er að reyna að koma í veg fyrir að beinþéttni minnki til þess að tryggja góða almenna heilsu og góð og sterk bein alla ævi.  Sigríður stofnaði síðuna Beinheilsa.is þar sem hægt er að nálgast fræðslu, aðstoð, næringar ráðleggingar og æfingarmyndbönd. Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins:  💙 -HEILSUHILLAN. Nutrilenk- Vantar þig öflugan liðstyrk? 🌱  -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?  🐘  -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

117. How Challenges Fuel Growth. (Resilience, self-sabotage, self-love and building habits). Katie Boshko

117. How Challenges Fuel Growth. (Resilience, self-sabotage, self-love and building habits). Katie Boshko

25maí

In this inspiring interview, Katie shares her journey through injury, mental health, and resilience, offering deep insights into mindset, habits, and holistic health.  Discover how her experiences shaped her approach to coaching and life, emphasizing the importance of self-love, connection, and perseverance. She also shares practical strategies to enhance your well-being, performance, and self-love through stories and expert advice, helping you build habits for a fulfilling life.  Follw Katie on Instagram  A huge shoutout to the podcasts sponsors:  💙 -HEILSUHILLAN an Icelandic company that focuses on promoting and selling health and wellness products like Nutrilenk.  🌱  -SPÍRAN a cozy and beautiful restaurant in Iceland serving incredibly healthy, homemade food. It’s a place that truly nourishes your body and supports your health journey. My favourite on the menu these days is the rsalad that I designed in collaboration with Spíran. (Heilsusalat Heilsuerlu)  🐘  -VIRKJA the life coach school that changed my life. I learned so much about myself, and has helped me grow in every part of my life, as a mom, a wife, a person, and even as a podcaster.  💗 - ÞÍN FEGURÐ. Located in Hafnarfjörður, Iceland, it is a comprehensive beauty salon offering a wide range of professional treatments. The name uses the Icelandic words Þín (Your) fegurð (beauty). 💦  -UNGBARNASUND ERLU  (Erla's Baby Swimming) is my swim school. Based in Hafnarfjörður, it offers professional, varied, and friendly classes focusing on bonding, play and water safety for infants and children up to 2,5 years of age. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

116. Við þurfum að finna veikleikana okkar til að finna hugrekkið. (Mia Magic, langveik börn, hugarfar og andleg heilsa). Þórunn Eva G. Pálsdóttir

116. Við þurfum að finna veikleikana okkar til að finna hugrekkið. (Mia Magic, langveik börn, hugarfar og andleg heilsa). Þórunn Eva G. Pálsdóttir

15maí

Viðmælandi þáttarins er hin dásamlega Þórunn Eva stofnandi Mía Magic. Þær Erla ræða um lífið og tilveruna, andlega heilsu, heilsubrest, langveik börn, hugarfar, hugrekki og margt fleira.  Hvað er Mia Magic? Það er íslenskt góðgerðarfélag sem einbeitir sér að því að gleðja og styðja langveik börn og foreldra þeirra. Félagið gefur út fræðslubækur um sjúkdóma og aðgerðir sem hjálpa börnum að skilja algenga sjúkdóma og inngrip á þeirra forsendum, svo sem Mía fær lyfjabrunn, Mía fer í blóðprufu og Mía lærir um sykursýki. Félagið sendir einnig út Míubox til að létta undir með fjölskyldum og veitir fagfólk viðurkenningu með Míuverðlaunum. Þórunn Eva var valinn Framúrskarandi ungur Íslendingur árið 2021 en fyrir framlag sitt til góðgerðarmála.   Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins:  💙 -HEILSUHILLAN. Nutrilenk- Vantar þig öflugan liðstyrk? 🌱  -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?  🐘  -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

Þér gæti líka líkað...