Ljósmæðrarýmið

Hafdís og Oddný

Börnin

Tvær ljósmæður skapa öruggt rými fyrir hrátt spjall um allt sem við kemur fæðingum og fá til sín gesti til að deila sínum fjölbreyttu fæðingarsögum. Rauði þráðurinn er jákvæð upplifun af fæðingu. Okkur finnst að það megi heyrast meira í þeim! Við trúm því að þessar umræður geti styrkt konur í undirbúningi fyrir sína eigin fæðingu ❤️

#20 Arna Ýr

#20 Arna Ýr

16júl

Arna Ýr, íþróttakona, fyrirtækjaeigandi, fyrrverandi fegurðardrottning og almennur brasari og fiðrildi eins og hún lýsir sjálf segir frá öllum fæðingunum sínum í löngu og skemmtilegu máli.  Allar 3 er ólíkar en þó með sameiginlegum rauðum þræði, S E I G L A. Arna er mögnuð kona og það er heiður að fá að hlusta á hana segja frá fæðingunum sínum, hún er hreinskilin opin og hrá í þessum þætti. Getur hver sem er leyft sér að stefna að upplifunum eins og Örnu, fæðing utan sjúkrahúss með fyrsta barn, bað fæðingar og auðvitað blómafæðingarlaugin fræga?  Er það óraunhæft eða á færi allra með góðum undirbúningi að eiga góða fæðingarupplifun? Ræðum þetta og margt fleira í þætti dagsins

#19 Foreldrajátningar

#19 Foreldrajátningar

9júl

Hefur þú gleymt að þú varst að keyra um með ungabarn í aftursætinu? Engar áhyggjur, það höfum við líka gert, og flestir hlustendur okkar líka! Endilega skelltu þessum í eyrun ef þú vilt eyða foreldra samviskubiti dagsins, enda erum við flest í sama rugli.

#18 Fæðingarsögur Dýrleifar - Hvernig áföll geta haft áhrif á fæðingarferlið

#18 Fæðingarsögur Dýrleifar - Hvernig áföll geta haft áhrif á fæðingarferlið

2júl

Í þessum einstaka þætti segir Dýrleif okkur af svo mikilli einlægni og innsýn frá sínar tveimur ólíku fæðingum og hvernig það var að vera sjálf ljósmóðir þegar kom að því að fæða. Dýrleif deilir líka reynslu sinni af því hvernig áföll úr fortíðinni komu óvænt upp á yfirborðið í fyrri fæðingunni og hvað hún gerði til að geta átt ánægjulega seinni fæðingu. Þetta er þáttur sem við höfum beðið spenntar eftir að taka upp og við vonum að sagan hennar Dýrleifar geti veitt ykkur innblástur. Njótið vel 🤎 Vertu með okkur á Instagram: ⁠⁠⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠

#17 TW: Missir snemma á meðgöngu, reynslusaga Oddnýjar

#17 TW: Missir snemma á meðgöngu, reynslusaga Oddnýjar

25jún

Missir snemma á meðgöngu er mun algengari en flestir gera sér grein fyrir. Samt upplifa margar konur sig einar í þessari reynslu og sorginni sem fylgir. Í þessum einlæga þætti deilir Oddný, annar þáttastjórnanda Ljósmæðrarýmisins, sinni eigin reynslu af missi á 12. viku meðgöngu. Hún segir frá fyrstu einkennunum, greiningunni, lyfjameðferðinni, líkamlega ferlinu við missinn og þeim bjargráðum sem hún nýtti í þeim aðstæðum. Við ræðum einnig sorgarferlið sem fylgir því að missa barn snemma á meðgöngu. Þegar þú þarft að kveðja litla krílið þitt og þá framtíð sem þú varst búin að sjá fyrir þér og plana lífið í kringum. Þessi þáttur er fyrir þig ef þú hefur upplifað fósturlát, misst snemma á meðgöngu, ert að ganga í gegnum missi núna eða vilt skilja betur reynslu þeirra sem hafa þurft að kveðja litla krílið sitt snemma á meðgöngu. Vertu með okkur á Instagram: ⁠⁠⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠

#16 Fæðingarsögur Írisar Rutar sem upplifði allar þrjár tegundir keisara

#16 Fæðingarsögur Írisar Rutar sem upplifði allar þrjár tegundir keisara

18jún

Íris Rut þriggja barna móðir í úthverfi, kennari og fellihýsa áhugakona, segir okkur frá keisarafæðingunum sínum. Hún fór í gegnum allar 3 tegundir keisara, bjöllu, bráða og skipulagðan. Hún fer vel yfir hvernig fæðingarnar hófust og hvað varð til þess að fæðingarnar hennar voru keisarafæðingar, dregur upp fallega mynd af því þegar keisarar eru besta mögulega útkoman fyrir konu og barn þegar þörf er á. Hún ræðir upplifun sína af fæðingunum, andrúmsloftinu á skurðstofunni og aumingja manninn sinn sem var bitinn í magann, af henni. Vertu með okkur á Instagram: ⁠⁠⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠

#15 Hvar vorum við og hvert erum við að fara?

#15 Hvar vorum við og hvert erum við að fara?

11jún

Við erum mættar aftur eftir stutta pásu! Ferskari en nokkru sinni fyrr. Hvert fórum við? Hvert erum við að fara með hlaðvarpið? Pælingar: Af hverju heyrum við og sjáum lang mest af hryllingssögum um fæðingu en sjaldan góðu sögurnar? Af hverju ákváðum við að synda svolítið gegn straumnum og skapa vettvang fyrir jákvæðar fæðingarupplifanir? 🎧 Njóttu vel! Vertu með okkur á Instagram: ⁠⁠⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠

#14 Forstig fæðingar - Hvað gerist þegar fæðingin er að byrja?

#14 Forstig fæðingar - Hvað gerist þegar fæðingin er að byrja?

3apr

Er þetta að byrja… eða ekki alveg strax? Í þessum örþætti talar Oddný um eitt ruglingslegasta og oft vanmetnasta stig fæðingarinnar: forstigið. Þegar líkaminn er að undi rbúa sig fyrir fæðingu, en ekkert er alveg komið í gang ennþá. Verkir geta komið og farið, orðið þéttari og dottið svo niður. Tilfinning um að eitthvað sé að gerast en þú veist ekki alveg hvað. Rætt er um:– hvernig forstigið getur litið út – hvað er að gerast í líkamanum á þessu stigi– hvað er eðlilegt – hvað þú getur gert á þessu stigi til að vinna með líkamanum þínum Þetta er þáttur fyrir þig sem vilt skilja líkamann þinn betur og treysta ferlinu. Vertu með okkur á Instagram: ⁠⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠

#13 Ljósmæður yappa + fæðingarsaga

#13 Ljósmæður yappa + fæðingarsaga

26mar

Í þessum þætti tókum við gott spjall. Við svöruðum spurningum sem hlustendur hafa sent inn og fórum út í alls konar pælingar tengdar starfinu. Þetta er meðal annars það sem við ræðum: Fetal ejection reflex Fylgjulos Af hverju við fórum í ljósmóðurfræði Hvað er skemmtilegast við vinnuna okkar Spangardeyfingu, er alltaf hægt að biðja um hana Við endum svo á að lesa upp innsenda fæðingarsögu Léttur, einlægur og notalegur þáttur með smá fræðslu, smá spjalli og svo rúsínu í pylsuendanum. Við skemmtum okkur mjög vel og vonum að þið gerið það líka <3 Vertu með okkur á Instagram: ⁠⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠

#12 Örþáttur - Að missa vatnið

#12 Örþáttur - Að missa vatnið

23mar

Legvatnið fer… Hvað gerum við næst? Hvað þýðir það þegar vatnið fer áður en samdrættir hefjast? Hvernig ættum við að bregðast við og hvað gerist næst? Allt þetta og meira um farið vatn í þessum örþætti ljósmæðrarýmisins. Vertu með okkur á Instagram: ⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠ ⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠ ⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠

#11 Fæðingarsaga Sólbjartar

#11 Fæðingarsaga Sólbjartar

19mar

Sólbjört elskar að tala um fæðingar og við elskuðum að tala við hana um hennar fæðingu. Hún missti vatnið, verandi GBS beri og fór í gangsetningu í kjölfarið - sem endaði vitanlega með barni, þó að henni hafi ekki alltaf liðið eins og það myndi gerast neitt í náinni framtíð. Hlustið og njótið! Fylgist með okkur á Instagram: ⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠ ⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠ ⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠ Sólbjört Sigurðardóttir

Þér gæti líka líkað...