Jón Ólafs á spjallinu

Jón Ólafsson

Samfélagið

Jón Ólafs á spjallinu er hlaðvarpsþáttur þar sem Jón ræðir við skemmtilegt og áhugavert fólk um lífið og tilveruna. Hann hefur um árabil verið með annan fótinn í fjölmiðlum meðfram tónlistinni og komið víða við. Fjölmiðlaferilinn hóf hann sem blaðamaður á Tímanum og þegar Rás 2 var stofnuð var Jón einn fjórmenninganna sem stýrðu fyrsta þættinum á stöðinni. Ekki leið á löngu þar til hann fór í sjónvarp og margir kannast við þættina Af fingrum fram sem svo breyttust í spjalltónleika í Salnum sem sér ekki fyrir endann á. Það er von Jóns að hlustendur verði margs vísari að lokinni hlustun.

37.þáttur: Gói

37.þáttur: Gói

11júl

Guðjón Davíð Karlsson (Gói) var aðeins 5 ára gamall þegar hann ákvað að verða leikari og í annarri tilraun komst hann inn í Leiklistarskólann.  Hann eyddi æsku- og unglingsárum í Þingholtunum og spilaði fótbolta með Megasi.   Gói var lagður í einelti sem barn einfaldlega af því að hann var prestssonur.  Hann segist hafa sloppið vel frá þessu af því hann átti svo góða vini.  Hann er þakklátur fyrir hlutskipti sitt og elskar að starfa í leikhúsinu.

36.þáttur: Pétur Pétursson

36.þáttur: Pétur Pétursson

3júl

Pétur Pétursson er einn besti knattspyrnumaður Íslandssögunnar og var með eindæmum fundvís á netmöskva andstæðinganna.  Hann lék sem atvinnumaður í Hollandi, Belgíu og á Spáni og lék og æfði með mörgum frábærum leikmönnum eins og Mario Kempes og Ruud Gullit svo dæmi séu nefnd.  Hann setti markamet með uppeldisfélagi sínu ÍA á Akranesi og átti frábæran tíma með KR.  Pétur starfaði um árabil sem ljósmyndari og rak eigin ljósmyndastofu.  Hann þjálfaði kvennalið Vals árin 2017-2024 sem hampaði ófáum titlunum undir hans stjórn.  Þrátt fyrir þennan afbragðs árangur fékk hann að lokum reisupassann.  Pétur er mikill áhugamaður um tónlist og hefur látið sig dreyma um að læra hljóðupptökur, bassa- og gítarleik þó ekkert hafi enn orðið af því.

35.þáttur: Gunnar Árnason

35.þáttur: Gunnar Árnason

25jún

Gunnar hefur verið í fremstu röð íslenskra hljóðmanna í áratugi og hefur byggt sér glæsilegt hljóðver í Vatnsendahverfi Kópavogs. Hann hljóðsetur m.a. kvikmyndir, sjónvarpsþætti og auglýsingar  og er margverðlaunaður.  Gunnar hefur prófað nánast allt á Íslandi tengt hljóðhönnun og ein eftirminnilegasta ráðningin er þegar hann hljóðblandaði sjálfan Páfann.  Hann segir Magnús Kjartansson vera sinn helsta örlagavald í bransanum og fyrir nokkrum árum gaf hann besta vini sínum nýra.

34.þáttur: Brynhildur Björnsdóttir

34.þáttur: Brynhildur Björnsdóttir

19jún

Brynhildur Björnsdóttir er leikkona, söngkona, mannfræðingur, bókmenntafræðingur, dagskrárgerðarkona, feministi og kattahaldari svo fáein dæmi séu nefnd.  Hún hefur svo sannarlega frá mörgu að segja enda reynt ýmislegt um ævina.  Þættir hennar, Hold, sem hún gerði fyrir Rás 1 hafa vakið mikla athygli.

33.þáttur: Björn Stefánsson

33.þáttur: Björn Stefánsson

11jún

Björn vakti fyrst athygli sem trommuleikari hljómsveitarinnar Mínus.  Hann kom öllum á óvart þegar hann ákvað að skella sér í leiklistarnám í Danmörku árið 2009.  Námið var hreint ekki auðvelt fyrir mann með óskilgreindan athyglisbrest auk þess sem það var á dönsku.  Eftirminnileg leikhlutverkin eru mörg en hann heldur mest upp á samleik þeirra Hjartar Jóhannssonar í Fjallabaki.  Alkóhólískt heimilishald hafði mikil áhrif á æsku- og unglingsár Björns sem er með bók í smíðum.

32.þáttur: Helga Möller

32.þáttur: Helga Möller

1jún

Helga Möller hefur oft verið nefnd Diskódrottning Íslands.  Samt voru þau Jóhann Helgason ekkert sérstakt áhugafólk um diskótónlist þegar þau sungu inn á fyrstu plötuna sem Þú & ég.   Hún kemur til dyranna eins og hún er klædd og hefur talað opinskátt í fjölmiðlum um mjög persónuleg málefni enda upplifað erfiða hluti eins og dótturmissi.  Helga á enn eftir að gera plötuna sem hana hefur alltaf langað til að gera.

31.þáttur: Guðmundur Pétursson

31.þáttur: Guðmundur Pétursson

20maí

Guðmundur varð landsfrægur í einu vetfangi þegar hann birtist landsmönnum í kosningasjónvarpinu aðeins 14 ára gamall.  Honum líkaði ekkert sérstaklega við að vera kallaður undrabarn eða snillingur en víst er að hæfileikar tónlistarmannsins eru einstakir.  Ungur missti hann móður sína og lærði að standa á eigin fótum og taka engu sem gefnu.

30.þáttur: Guðrún Gunnarsdóttir

30.þáttur: Guðrún Gunnarsdóttir

12maí

Guðrún hóf söngferil sinn sem meðlimur í MK-kvartettinum og í framhaldi tók svo vísnatónlistin við.  Hún leitaði á vit ævintýranna í Noregi áður en hún sneri aftur heim.  Við tóku ýmis söngverkefni og hún komst fljótt í röð okkar fremstu söngkvenna með sinni áheyrilegu rödd. Það lá fyrir henni að starfa í fjölmiðlum og hefur hún stýrt ýmsum þáttum á ljósvakamiðlum landsins.  Í dag er það "Mannlegi þátturinn" sem hún stýrir ásamt Gunnari Hanssyni á Rás 1.

29.þáttur: Andrea Jónsdóttir

29.þáttur: Andrea Jónsdóttir

28apr

Andrea hefur fjallað um tónlist á einn eða annan hátt í áratugi og oft nefnd Rokkamma Íslands.  Þegar hún heyrði Be Bop A Lula í fyrsta sinn varð hún heltekin af rokktónlist.  Hún ólst upp við Elvis, Bítlana og Hljóma og elti þá síðastnefndu á röndum landshorna á milli.  Hún starfaði lengi sem prófarkalesari á Þjóðviljanum og kunni vel við sig innan um kommana enda alin upp af félagshyggjufólki.  Andrea hefur starfað sem plötusnúður á Dillon í 26 ár og er hvergi nærri hætt, 77 ára gömul.

28.þáttur: Rúnar Freyr Gíslason

28.þáttur: Rúnar Freyr Gíslason

17apr

Um miðjan aldur var Rúnar Freyr búinn að brenna allar brýr að baki sér þrátt fyrir glæstan feril sem leikari og söngvari.  Við tók bataferli sem mun standa yfir út lífið að hans sögn.  Hann hefur heldur betur snúið við blaðinu, bætt ráð sitt  og gert sig gildandi á ýmsum sviðum m.a. hjá SÁA, RUV og sem fjölmiðlamaður.   Rúnar á mörg börn og eina dóttur sína hitti hann fyrst þegar hún var orðin 10 ára gömul.  Þessa dagana heimsækir hann fólk og vinnustaði enda í framboði til borgarstjórnar í Reykjavík.

Þér gæti líka líkað...