Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu
Margrét Gunnarsdóttir
Ferðalög til Ítalíu og ferðatilboð þangað hafa aukist verulega á undanförnum árum. Hlaðvarpið ”Ítalía heillar” er tileinkað þér sem hefur nú þegar ferðast um landið eða hefur Ítalíu á óskalistanum. Ég heiti Magga — ég er menntaður tónmenntakennari og upplýsingafræðingur. Í hlaðvarpinu ætla ég að deila fróðleiksmolum fyrir ferðalanga um Ítalíu, Ítali, ítalska menningu, borgir og bæi, eyjar, héruð, fegurðina, sérviskuna og ótalmargt fleira en líka litlu augnablikunum sem sjaldnar eru dregin fram. Ítalía hefur verið hluti af lífi mínu í áratugi. Ég bjó þar fyrst sem skiptinemi, eignaðist fjölskyldu og vini fyrir lífstíð og leiðin hefur legið aftur og aftur til þessa fallega lands. Meðfram starfi mínu sem upplýsingafræðingur, varði ég mörgum sumarleyfum sem fararstjóri íslenskra ferðahópa á Ítalíu, þar sem nánast hver vegur, hvert stræti leiðir mann að einhverju ógleymanlegu. Heimildir fyrir efni þáttanna eru fengnar víða. Ég vitna í eigin reynslu, reynslusögur annarra, leiðbeiningar virtra ferðafrömuða og margt fleira. Njótið – ciao ciao.

8. Róm III - Skemmtileg torg, götur, söfn og frægir staðir í Róm. Hvernig forðastu langar biðraðir?
Í þessum þriðja og síðasta þætti um Róm, beinum við sjónum að borginni sjálfri – frægustu stöðunum, torgunum, götunum, mörkuðunum og matarmenningunni. Við heimsækjum meðal annars Colosseum, Forum Romanum, Pantheon, Vatíkanið, Péturskirkjuna og Trevi-gosbrunninn og fáum hagnýt ráð um miðakaup, biðraðir og hvernig best er að skipuleggja heimsóknir á vinsælustu staðina. En Róm er miklu meira en frægustu kennileitin. Við röltum um Piazza Navona, Campo de’ Fiori og Piazza di Spagna, skoðum fallegar götur, almenningsgarða og verslunarhverfi og leitum að stöðum þar sem hægt er að komast aðeins frá ferðamannastraumnum. Við lítum líka inn á markaði þar sem Rómverjar sjálfir versla og fáum hugmyndir að skemmtilegum kaupum. Matarmenningin fær að sjálfsögðu sinn sess: hvenær Rómverjar borða, hvernig þekkja má gott gelato og hvaða rómversku rétti vert er að prófa, svo sem carbonara, cacio e pepe og amatriciana. Að lokum kynnumst við nokkrum óvenjulegri hliðum borgarinnar – sjónhverfingum í kirkju, götulist og jafnvel kattagriðastað. Og kannski er besta ráðið einfaldast: að leggja kortið frá sér, ganga inn í hliðargöturnar og leyfa Róm að koma sér á óvart. **** Colosseo (Colosseum) www.colosseo.it Foro Romano (Forum Romanum) Miðar í Colosseo gilda í Foro Romano og Palatínhæð Altare della Patria (Vittoriano) https://vive.cultura.gov.it/it/altare-della-patria Vatíkanið https://www.museivaticanitickets.com/ Péturskirkjan https://booking.basilicasanpietro.va/en/idea/41280461/basilica Sixtínska kapellan https://www.museivaticanitickets.com/ Pantheon hofið https://direzionemuseiroma.cultura.gov.it/en/pantheon/ eða www.pantheonrome.it Circus Maximus (ókeypis) https://www.turismoroma.it/en/places/circus-maximus Kirkjur San Giovanni in Laterano https://www.basilicasangiovanni.va/en.html Santa Maria Maggiore – Maríukirkjan https://www.basilicasantamariamaggiore.va/it.html San Paolo fuori le mura – Pálskirkjan utan múranna https://basilicasanpaolo.org/ Santa Maria del Popolo https://santamariadelpopoloroma.it/ Sant’Ignazio di Loyola (kirkjan sem blekkir augað) https://chiesasantignazio.it/ Katakomburnar https://www.rome-museum.com/catacombs-of-rome.php Caracallaböðin https://www.turismoroma.it/en/places/baths-caracalla Castel St. Angelo https://castelsantangelorome.com/ Gyðingahverfið https://www.turismoroma.it/en/places/old-jewish-quarter Villa Borghese https://www.turismoroma.it/en/places/villa-borghese Trevi brunnurinn https://www.turismoroma.it/en/places/trevi-fountain Giardino degli Aranci (Appelsínugarðurinn) https://www.turismoroma.it/it/luoghi/parco-savello-o-giardino-degli-aranci Skemmtileg torg Piazza Navona https://www.turismoroma.it/en/places/navona-squarea del Popolo Piazza del popolo https://www.turismoroma.it/en/places/piazza-del-popolo Campo de‘ fiori https://www.turismoroma.it/en/places/campo-de%E2%80%99-fiori Piazza di Spagna https://www.turismoroma.it/it/luoghi/piazza-di-spagna Piazza della Madonna dei Monti https://www.turismoroma.it/en/places/piazza-madonna-dei-monti Piazza San Lorenzo í Lucina https://www.turismoroma.it/en/node/1620 Skemmtilegar götur í Róm Via dei Condotti Via della Conciliazione Via del Corso Via dei Coronari Via Giulia Via Urbana (Monti) Via del Boschetto (Monti) Áhugaverðir markaðir https://www.marketsofrome.com/ Mercato Trionfale (innimarkaður) https://www.mercatotrionfale.store/en Campo de‘ Fiori – elsti markaður Rómar https://www.marketsofrome.com/home/campo-de-fiori-market Porta Portese – aðal flóamarkaðurinn https://www.marketsofrome.com/home/porta-portese-market Via Ostiense - Notuð föt og antíkmunir https://www.marketsofrome.com/food-market/94-ostiense-market Via Sannio - Föt og fylgihlutir https://www.marketsofrome.com/piazza-mazzini-xmas-market/sannio Matur til að smakka Bucatini all’Amatriciana Cacio e Pepe Pizza Bianca Fiori di zucca Pasta alla carbonara Pizza alla Romana Gelato – ís Dæmi um vín: Frascati hvítvín og Cesanese del Piglio rauðvín Sikileyska bakaríið Antica Focacceria San Francesco, Piazza della Toretta 38/40 (skammt frá Piazza di San Lorenzo í Lucina). Götulist í Róm https://streetartmap.com/rome/ Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur Vefsíða: www.italiaheillar.is

7. Róm II - “Ekkert stress”– samgöngur, hverfi og góð ráð
Í þessum öðrum þætti um Róm færðu hagnýt ráð sem geta gert Rómarferðina einfaldari, öruggari og ánægjulegri. Þú færð að heyra um leiðir til að komast frá Fiumicino-flugvelli inn í borgina, meðal annars með Leonardo Express, FL1-lestinni, rútu eða leigubíl, og hvaða kostur hentar eftir staðsetningu gististaðar og fjölda ferðafélaga. Þú þarft sérstaklega að passa þig á reglum um lestarmiða sem geta leitt til sekta ef ekki er rétt staðið að málum. Við skoðum ólík hverfi Rómar og kosti þeirra, meðal annars Testaccio, Monti, Trastevere og Prati. Mikilvægt er að þú veljir gistingu með tilliti til samgangna, til dæmis nálægt Metro-línum A eða B. Við ræðum um vasaþjófa, algengar aðferðir þeirra og hvernig þú getur varið símann þinn, veski og töskur, sérstaklega í mannþröng, neðanjarðarlestum, strætisvögnum og við vinsæla ferðamannastaði eins og Trevi-gosbrunninn og Vatíkanið. Þú færð að heyra um almenningssamgöngur, Metro, strætisvagna og leigubíla, auk annarra leiða til að kynnast borginni. Þar koma við sögu Hop-on Hop-off vagnar, gönguferðir og golfbílaferðir, sem geta verið skemmtileg og þægileg leið um þröngar götur miðborgarinnar. Að lokum færðu einfalt en mikilvægt Rómarráð: taktu með þér góða vatnsflösku. Um miðborgina eru hundruð nasoni, drykkjarvatnsbrunna þar sem hægt er að fylla á hana ókeypis. ****** Flugvellir: Leonardo da Vinci (Fiumicino) og Ciampino Frá flugvelli og inn í borg Leonardo Express hraðlestin fer til Roma Termini, aðallestarstöð Rómar https://www.trenitalia.com/en/connections/leonardo-express.html FL1 lestin fer til Roma Tiburtina https://www.trenitalia.com/ SITbus https://www.sitbusshuttle.com/ Terravision bus https://www.terravision.eu/airport_transfer/bus-fiumicino-airport-rome/ KiBag Roma Termini – Farangursgeymsla Roma Termini https://www.kibag.it/en/deposito-bagagli-roma/deposito-bagagli-roma-termini/ Radical Storage - Farangursgeymsla https://radicalstorage.com/ Nokkur hverfi (rioni) í Róm: Testaccio Monti Trastevere Prati Esquilino ZTL - Zona a traffico limitato – Takmörkuð umferð – sérstök leyfi. Svæðið heitir Zona 30 Í Róm. Leigubílaöpp: FreeNow itTaxi Uber App fyrir miða í almenningssamgöngur MooneyGo Metro í Róm – neðanjarðarlestir Lína A og B Lína C Golfbílaferðir - margir möguleikar Dæmi: https://mybesttour.com/ Rómarrölt – Ingólfur Níels Árnason https://romarrolt.com/ Hljóðleiðsögn um Róm frá ferðafrömuðinum Rick Steves www.Ricksteves.com Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur Vefsíða: www.italiaheillar.is

7. Róm II - “Ekkert stress”– samgöngur, hverfi og vasaþjófatrikk
Í þessum öðrum þætti um Róm færðu hagnýt ráð sem geta gert Rómarferðina einfaldari, öruggari og ánægjulegri. Þú færð að heyra um leiðir til að komast frá Fiumicino-flugvelli inn í borgina, meðal annars með Leonardo Express, FL1-lestinni, rútu eða leigubíl, og hvaða kostur hentar eftir staðsetningu gististaðar og fjölda ferðafélaga. Þú þarft sérstaklega að passa þig á reglum um lestarmiða sem geta leitt til sekta ef ekki er rétt staðið að málum. Við skoðum ólík hverfi Rómar og kosti þeirra, meðal annars Testaccio, Monti, Trastevere og Prati. Mikilvægt er að þú veljir gistingu með tilliti til samgangna, til dæmis nálægt Metro-línum A eða B. Við ræðum um vasaþjófa, algengar aðferðir þeirra og hvernig þú getur varið símann þinn, veski og töskur, sérstaklega í mannþröng, neðanjarðarlestum, strætisvögnum og við vinsæla ferðamannastaði eins og Trevi-gosbrunninn og Vatíkanið. Þú færð að heyra um almenningssamgöngur, Metro, strætisvagna og leigubíla, auk annarra leiða til að kynnast borginni. Þar koma við sögu Hop-on Hop-off vagnar, gönguferðir og golfbílaferðir, sem geta verið skemmtileg og þægileg leið um þröngar götur miðborgarinnar. Að lokum færðu einfalt en mikilvægt Rómarráð: taktu með þér góða vatnsflösku. Um miðborgina eru hundruð nasoni, drykkjarvatnsbrunna þar sem hægt er að fylla á hana ókeypis. ****** Flugvellir: Leonardo da Vinci (Fiumicino) og Ciampino Frá flugvelli og inn í borg Leonardo Express hraðlestin fer til Roma Termini, aðallestarstöð Rómar https://www.trenitalia.com/en/connections/leonardo-express.html FL1 lestin fer til Roma Tiburtina https://www.trenitalia.com/ SITbus https://www.sitbusshuttle.com/ Terravision bus https://www.terravision.eu/airport_transfer/bus-fiumicino-airport-rome/ KiBag Roma Termini – Farangursgeymsla Roma Termini https://www.kibag.it/en/deposito-bagagli-roma/deposito-bagagli-roma-termini/ Radical Storage - Farangursgeymsla https://radicalstorage.com/ Nokkur hverfi (rioni) í Róm: Testacci Monti Trastevere Prati Esquilino ZTL - Zona a traffico limitato – Takmörkuð umferð – sérstök leyfi. Svæðið heitir Zona 30 Í Róm. Leigubílaöpp: FreeNow itTaxi Uber App fyrir miða í almenningssamgöngur MooneyGo Metro í Róm – neðanjarðarlestir Lína A og B Lína C Golfbílaferðir - margir möguleikar Dæmi: https://mybesttour.com/ Rómarrölt – Ingólfur Níels Árnason https://romarrolt.com/ Hljóðleiðsögn um Róm frá ferðafrömuðinum Rick Steves www.Ricksteves.com Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur Vefsíða: www.italiaheillar.is

6. Róm I - Marglaga, mótsagnakennd og lifandi borg
Í þessum fyrsta þætti af þremur um Róm er farið í svolítið óhefðbundið ferðalag um sögu borgarinnar, allt frá goðsögninni um Rómúlus og Remus til Rómar nútímans. Frá því að vera upphaflega einungis fáeinir kofar stækkaði Róm og varð miðja eins voldugasta heimsveldis sögunna. Borgin hnignaði eftir fall þess en reis aftur til vegs og virðingar á endurreisnartímanum. Í dag búa nærri þrjár milljónir manna innan um tæplega þrjú þúsund ára sögu. Við kynnumst borginni þar sem Colosseum, Forum Romanum, Vatíkanið og Trevi-gosbrunnurinn renna saman við iðandi mannlíf, umferð, kaffibari og rómverska matarmenningu. Róm er hávær, óreiðukennd, heillandi og full af mótsögnum – borg sem lofar ekki skilvirkni en á óþrjótandi sögur. Einnig er litið á ýmsa sérkennilega siði Rómverja til forna og þeir bornir saman við nútíma-Ítali. Þrátt fyrir tvö þúsund ára bil virðast ýmis einkenni lifa góðu lífi: félagslyndi, ástríðufull samskipti, sterkar matarhefðir og mikilvægi hins daglega mannlífs á torgum og kaffibörum. ****** Pecunia non olet – Peningar lykta ekki Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur Vefsíða: www.italiaheillar.is

5. Hvað er til ráða ef þú veikist á Ítalíu?
Í þessum þætti er farið yfir hvernig þú getur fengið aðstoð á Ítalíu, hvort sem um er að ræða væga kvilla eða neyðrartilvik. Fyrir brottför ættir þú að sækja um Evrópska sjúkratryggingakortið (EHIC) hjá Sjúkratryggingum Íslands, skoða þær tryggingar sem fylgja kreditkortinu þínu og mögulega fá þér góða ferðatryggingu. Fyrsti viðkomustaður fyrir minni háttar veikindi ætti oftast að vera apótek (Farmacia). Ítalskir lyfjafræðingar geta ráðlagt um lausasölulyf og vísað áfram til læknis ef þörf krefur. Sýklalyf færðu aðeins gegn lyfseðli. Við alvarleg veikindi eða slys skaltu fara á bráðamóttöku (Pronto Soccorso) eða hringja í neyðarnúmerið 112. Fyrir vandamál sem eru ekki alvarleg er hægt að hafa samband við læknavaktina, Guardia Medica, í síma 116117, eða nýta sér einkareknar læknastofur og fjarheilbrigðisþjónustu. Slík þjónusta er yfirleitt fljótlegri, en kostnaður fæst ekki alltaf endurgreiddur. ****** Evrópska sjúktratryggingakortið og staðfesting á sjúkratryggingu Vefsíða: https://island.is/s/sjukratryggingar SSN – Servizio Sanitario Nazionale – Opinber heilbrigðisþjónusta á Ítalíu Imodium – lausasölulyf gegn niðurgangi Pronto Soccorso – bráðamóttaka í opinbera kerfinu Símanúmer sem gildir í mörgum héruðum til að fá samband við Guardia Medica: 116117 (0039 116117) Guardia Medica – Læknavakt Guardia Medica turistica – læknavakt fyrir ferðamenn Farmacia – apótek Farmacia di turno – vakthafandi apótek Fjarheilbrigðisþjónusta: Doctorsinitaly.com og pyllola.com Parla inglese, per favore? – Talið þér ensku? Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur Vefsíða: www.italiaheillar.is

4. Lago di Garda – Gardavatnið og töfrar þess sem heilla ferðalanga
Lago di Garda – Lake Garda – Gardavatnið Gardavatn (Lago di Garda), stærsta vatn Ítalíu. Lýst er einstakri fegurð vatnsins, þar sem snævi þaktir Alpatoppar mæta pálmatrjám, ólífutrjálundum og Miðjarðarhafsgróðri og skapa landslag sem á sér engan líka annars staðar í Evrópu. Komið er víða við og m.a. fjallað um bæina Sirmione, Malcesine, Limone sul Garda og Riva del Garda. Gardavatn er miklu meira en fallegur áfangastaður: það er staður þar sem náttúra, saga, menning og daglegt líf renna saman og skapa ógleymanlega upplifun sem fær gesti til að koma aftur og aftur. ****** Vefslóðir Tímatöflur fyrir strætisvagna við Gardavatn https://www.visitgarda.com/en/Bus-timetables/ Tímatöflur fyrir ferjur við Gardavatn https://www.navigazionelaghi.it/en/tickets-and-timetables-lake-garda/ Þorpshátíðir við Gardavatn https://www.europlan.it/en/blog/lake-garda-local-festivals-a-blend-of-music-food-traditions Skemmtigarðurinn Gardaland http://www.gardaland.it/en/home.php Ristorante Franco e Adriana, Pieve di Ledro https://francoeadriana.it/ Vínbúgarður rétt hjá Arco – Madonna delle Vittorie https://www.madonnadellevittorie.it/ Bæir sem fjallað er um: Sirmione Grotte di Catullo: https://museilombardia.cultura.gov.it/en/museums/grotte-di-catullo-e-museo-archeologico-di-sirmione/ Malcesine https://www.funiviedelbaldo.it/en/timetables-and-fares-malcesine-monte-baldo-cable-cars Limone sul Garda Riva del Garda Orð og hugtök Notte di fiaba - Ævintýranótt Sagra – sagre: Þorpshátíð et. – Þorpshátíðir ft. Riposo/siesta – hvíldin eftir hádegisverð La passeggiata – kvöldgangan Vindarnir Pelér og Ora Dæmi um skoðunarferðir: Feneyjar Verona Lago di Ledro Gardaland Arco Vínsmökkun: Madonna delle Vittorie Matur og vín Ferskvatnsfiskarnir carpione og coregone Carne salada (marinerað nautakjöt) Polenta Carbonèra Garda DOP ólífuolía Vínin Lugana og Bardolino. Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur Vefsíða: www.italiaheillar.is

3. Ítalía III – Þekkirðu götubrellur vasaþjófanna?
Hér færðu að kynnast helstu mistökum sem ferðamenn gera á Ítalíu og hvernig þú getur forðast þau til að njóta ferðarinnar betur. Nokkrar óvæntar reglur geta komið þér á óvart. Til dæmis geturðu fengið háa sekt ef þú borðar hjá frægum minnismerkjum, dýfir fótum í gosbrunna eða gengur í óviðeigandi skóm á gönguleiðum Cinque Terre. Einnig er mikilvægt að bera alltaf vegabréf eða önnur gild skilríki á sér. Þátturinn varar við algengum ferðamannabrellum, svo sem „ókeypis“ armböndum, undirskriftasvindli og vasaþjófum. Einnig færðu að heyra um ýmis konar falinn kostnað sem margir gera sér ekki grein fyrir og hagnýt ferðaráð. **** Questura – lögreglustöð Zanzare – moskítóflugur Eh, pazienza! – Svona er lífið (pazienza = þolinmæði) Coperto / pane e coperto. Þjónusta til borðs / brauð og þjónusta til borðs. Servizio incluso - þjónusta innifalin Bancomat – hraðbanki Tassa di soggiorno – ferðamannaskattur Il conto, per favore – Reikninginn, takk Ferragosto – 15. Ágúst Chiuso per ferie – lokað vegna sumarleyfa Climatizzato – loftkæling Riposo – hvíldartími Gelato – ís La dolce vita – hið ljúfa líf Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur Vefsíða: www.italiaheillar.is

TRAILER - Ítalía heillar
Kynning á hlaðvarpinu Ítalía heillar. Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur Vefsíða: www.italiaheillar.is

2. Ítalía II - Væntingar og veruleiki. Af hverju heillast ferðalangar af Ítalíu?
Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu Í þessum þætti er farið yfir það sem gott er fyrir þig að vita áður en lagt er af stað til Ítalíu. Fjallað er um muninn á væntingum og veruleika og hvernig þú getur notið landsins betur með smá undirbúningi og réttu hugarfari. Þú kynnist ítalskri matarmenningu, þar sem einfaldleiki og gæðahráefni ráða ríkjum, og kaffivenjum sem geta komið ferðamönnum á óvart. Einnig er rætt um akstur á Ítalíu, ZTL-umferðarsvæði, bílaleigur og hvers vegna lestir eru oft betri kostur en bíll. Sérstök áhersla er lögð á að muna að stimpla pappírsmiða í svæðislestir og fylgjast með mögulegum verkföllum. Þátturinn fjallar einnig um ítalskt tungumál, fjölbreyttar mállýskur, list, hönnun og hinn afslappaða lífsstíl sem einkennir landið. Farið er yfir nokkur atriði sem koma mörgum á óvart, svo sem þjónustugjöld á veitingastöðum, klæðaburð í kirkjum og mismunandi salernisaðstöðu. Með opnum huga, smá þolinmæði og góðum undirbúningi verður ferðin bæði auðveldari og eftirminnilegri. ****** ZTL – Zona a traffico limitato. Afmörkuð svæði í borgum og bæjum þar sem bílar þurfa sérstakt leyfi til að aka. Miðsvæðis. Sciopero – scioperi: Verkfall – verkföll. scioperi.mit.gov.it – Upplýsingasíða hins opinbera á Ítalíu varðandi verkföll Dialetto – mállýska Buongiorno – Góðan dag Grazie – takk Riposo – ítalska útgáfan af “siesta” Coperto - þjónustugjald fyrir brauð og borðþjónustu. Acqua naturale – Venjulegt vatn Acqua frizzante – Sódavatn Öryggisnúmer 112 – Almenna neyðarnúmerið. Ítalska útgáfan af 112 á Íslandi. 113 – Lögreglan 115 – Slökkviliðið. 116 – Vegaaðstoð. Ítalska útgáfan af FÍB, kölluð ACI. 118 – Neyðartilfelli tengd heilsu, sjúkrabílar, skyndihjálp. Va bene – Allt í lagi Questura - Lögreglustöð Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur Vefsíða: www.italiaheillar.is

1. Ítalía I - Ertu að skipuleggja ferð til Ítalíu?
Ítalía heillar – hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu. Í þessum fyrsta þætti Ítalía heillar segir Magga frá því hvernig áhugi hennar á Ítalíu kviknaði þegar hún fór sautján ára gömul sem skiptinemi til landsins. Hún deilir eigin reynslu með þér og gefur hagnýt ráð fyrir þig sem ert mögulega að skipuleggja Ítalíuferð. Fjallað er um hvernig velja megi áfangastaði, kosti þess að ferðast utan mesta sumarhitans og hvers vegna „slow travel“ getur veitt þér meiri upplifun. Einnig er þér bent á að forðast akstur í stórborgum, varast ZTL-svæði og gefa þér tíma til að kynnast minni bæjum og héruðum. Þú færð að heyra um fjölbreytileika Ítalíu, sögu hennar, tuttugu héruð, San Marínó og Vatíkanið, auk þess sem rætt er um ítalska matarmenningu, ást þjóðarinnar á fegurð, bella figura og la dolce vita. ****** ZTL – Zona a traffico limitato. Afmörkuð svæði í borgum og bæjum þar sem bílar þurfa sérstakt leyfi til að aka. Miðsvæðis. Slow travel - Hæglætisferðamennska Il bel paese – Hið fallega land Una bella figura – Falleg ásýnd La dolce vita – Hið ljúfa líf Si puó fare – Þetta er hægt / Þetta er mögulegt Hlaðvarpið er í boði á Youtube með texta: https://youtu.be/u27LkWpKdvQ?si=3NtSiIMbwZWQ-YiN Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur Vefsíða: www.italiaheillar.is