Hljómkviðan – Hlaðvarp Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Sinfóníuhljómsveit Íslands | Iceland Symphony Orchestra

Tónlist

Í Hljómkviðunni er hlustendum veitt fjölbreytt innsýn í starfsemi Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Rætt er við fólk sem tengist hljómsveitinni á einn eða annan hátt. Hugað er að sögu sveitarinnar, ýmsum hliðum starfseminnar og auðvitað tónlistinni sjálfri. Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur ríflega 100 tónleika á ári hverju af ýmsum toga og tekur á móti breiðum hópi áheyrenda. Leyfðu þér að hrífast með og kynntu þér tónleika sveitarinnar á vefnum sinfonia.is og á samfélagsmiðlum.

Barbara Hannigan - aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Barbara Hannigan - aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands

8sep

Barbara Hannigan er tekin við sem nýr aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands og hún er spennt fyrir því nýja hlutverki. „Ég  er mjög þakklát fyrir að fá að eyða næstu þremur árum með þessum hópi tónlistarmanna í þessum dásamlega tónleikasal í þessu undraverða landi,“ segir Barbara í spjalli við Guðna Tómasson framkvæmdastjóra SÍ í nýjum þætti Hljómkviðunnar, hlaðvarpi hljómsveitarinnar. Í þættinum ræðir Barbara meðal annars um píanistann Bertrand Chamayou sem er staðarlistamaður hljómsveitarinnar á þessu starfsári og kemur fram tvívegis á tónleikum í Hörpu í þessari viku. Hann leikur píanókonsert Ravels á fimmtudag og heldur sólótónleika í Norðurljósum á föstudag á vegum hljómsveitarinnar.  Þátturinn er að þessu sinni á ensku.  Barbara Hannigan has taken up her position as the new Chief Conductor and Artistic Director of the Iceland Symphony Orchestra, and she is very excited about her new role. “I am very grateful for the opportunity to spend the next three years with this group of musicians, in this wonderful concert hall, in this remarkable country,” says Barbara in a conversation with Guðni Tómasson, Managing Director of the Iceland Symphony Orchestra, in a new episode of Hljómkviðan, the orchestra’s podcast.Here, Barbara also discusses pianist Bertrand Chamayou, who is the orchestra’s Artist-in-Residence for this season and will perform twice in Harpa this week. He will play Ravel’s Piano Concerto on Thursday and give a solo recital in Norðurljós on Friday, presented by the orchestra. This episode is presented in English.

Hugi Guðmundsson - staðartónskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2026-27

Hugi Guðmundsson - staðartónskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2026-27

31ágú

Hugi Guðmundsson er nýtt staðartónskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Í nýrri Hljómkviðu, hlaðvarpi hljómsveitarinnar, segir Hugi frá tveimur verkum sem leikin verða eftir hann á starfsárinu. Það fyrra heitir Undark og verður á efnisskrá upphafstónleika hljómsveitarinnar sem fara fram undir yfirskriftinni Attacca! fimmtudagskvöldið 3. september. Tónleikarnir eru þeir fyrstu sem Barbara Hannigan stjórnar sem aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi Sinfóníuhlljómsveitar Íslands. Í spjalli við Guðna Tómasson segir Hugi frá nærandi samstarfi sínu við Barböru Hannigan um sköpun tónverkanna.

Mahler 8 - Rætt við Svanhildi Óskarsdóttur

Mahler 8 - Rætt við Svanhildi Óskarsdóttur

19maí

Undir lok maí, nánar tiltekið 29. og 30. maí, flytur Sinfóníuhljómsveit Íslands áttundu sinfóníu Gustavs Mahler en þetta verður í fyrsta sinn sem þetta stórvirki verður flutt á Íslandi. Hljómsveitin verður með stærsta móti, myndarlegur kór á sviðinu ásamt barnakór og einsöngvararnir verða átta talsins. Það er Eva Ollikainen, aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi SÍ, sem stjórnar flutningi en tónleikarnir eru lokatónleikar hennar í því hlutverki. Til að hita upp fyrir þessa stórtónleika tökum við Svanhildi Óskarsdóttur tali en hún mun segja gestum frá á sérstakri tónleikakynningu sem fer fram kl. 18 þann 29. maí í Norðurljósum. Það er Vinafélag SÍ sem stendur fyrir kynningunni. Hér í Hljómkviðunni er það Guðni Tómasson sem ræðir við Svanhildi um verkið. Missið ekki af Mahler 8 undir lok maí hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands. Seinni tónleikarnir eru hluti af Listahátíð í Reykjavík sem hefst þann daginn.

Daníel Bjarnason ræðir um plötuna The Grotesque & The Sublime

Daníel Bjarnason ræðir um plötuna The Grotesque & The Sublime

20feb

Daníel Bjarnason tónskáld og hljómsveitarstjóri ræðir um plötuna The Grotesque & The Sublime. Platan kemur út 27. febrúar næstkomandi hjá bandaríska útgáfufyrirtækinu Sono Luminus og inniheldur þrjú verk eftir Daníel í flutningi Sinfóníuhljómveitar Íslands undir stjórn Daníels sjálfs.

Jón Arnar talar um konsert Sir James MacMillan

Jón Arnar talar um konsert Sir James MacMillan

26jan

Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á Myrkum músíkdögum í ár, 29. janúar næstkomandi, hljómar básúnukonsert eftir skoska tónskáldið Sir James MacMillan sem jafnframt stjórnar tónleikunum. Einleikari í konsertinum er Jón Arnar Einarsson, leiðari básúnudeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Tónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar er ein elsta tónlistarhátíð landsins, stofnuð árið 1980 af Tónskáldafélagi Íslands og hefur Sinfóníuhljómsveit Íslands verið þátttakandi á hátíðinni frá upphafi. Myrkir músíkdagar standa yfir dagana 29. janúar - 1. febrúar 2026.

Mugison tekinn tali

Mugison tekinn tali

28okt2025

Guðni Tómasson ræðir við tónlistarmanninn Mugison í tilefni tónleika hans og Sinfóníuhljómsveitar Íslands 6. & 7. nóvember næstkomandi.

Ólafur Kjartan Sigurðarson – staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2024-25

Ólafur Kjartan Sigurðarson – staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2024-25

4apr2025

Ólafur Kjartan Sigurðarson baritónsöngvari er staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands á yfirstandandi tónlistarári. Hér ræðir Guðni Tómasson framkvæmdastjóri SÍ við Ólaf um líf í söng.

Guðný Guðmundsdóttir – Sinfónían í 75 ár

Guðný Guðmundsdóttir – Sinfónían í 75 ár

28mar2025

Sigurður Ingvi Snorrason ræðir við Guðnýju Guðmundsdóttur sem var konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands um áratuga skeið.

Joe Ognibene – Sinfónían í 75 ár

Joe Ognibene – Sinfónían í 75 ár

21mar2025

Sigurður Ingvi Snorrason ræðir við Joe Ognibene hornleikara í Sinfóníuhljómsveit Íslands sem leiddi horndeildina um árabil.

Helga Hauksdóttir – Sinfónían í 75 ár

Helga Hauksdóttir – Sinfónían í 75 ár

13mar2025

Sigurður Ingvi Snorrason  ræðir við Helgu Hauksdóttur sem var fiðluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands og síðar tónleikastjóri hennar.

Þér gæti líka líkað...