Hlaðvarp Myntkaupa

Myntkaup

Tækni

Hlaðvarp Myntkaupa er nýtt hlaðvarp sem fjallar um allt tengt bitcoin og hvað er að gerast í hinum síbreytilega heimi rafmynta. Við fáum til okkar góða gesti og fjöllum um málefni sem tengjast rafmyntum. Myntkaup er vinsælasti staðurinn fyrir Íslendinga til að stunda viðskipti með Bitcoin og aðrar rafmyntir. Rúmlega 4% Íslendinga nota Myntkaup til þess að kaupa og selja bitcoin. Þú finnur okkur á myntkaup.is eða með því að sækja Myntkaup appið í App Store eða Google Play store.

Góðar verðbólgutölur í USA gefa Bitcoin byr í seglin

Góðar verðbólgutölur í USA gefa Bitcoin byr í seglin

18júl

Vikan hófst á mjög góðum verðbólgutölum í USA og markaðir tóku við sér. Segja má að það sem hafi fylgt á eftir hafi þó dempað viðbrögðin talsvert, en Kevin Warsh, seðlabankastjóri í USA, sagði að of snemmt væri að tala um fullnægjandi grundvöll fyrir vaxtalækkanir. Þá hefur versnandi ástand í átökum Bandaríkjanna og Írans leitt til áhyggna af því að olíuverð hækki á ný sem gæti hleypt verðbólgunni aftur upp. Áfram heldur jákvæð þróun við að færa raunheimaeignir á bálkakeðjur. Citadel Securities fjárfestir í einu stærsta cryptofyrirtæki heims. Þetta og margt fleira í þessum þætti.

Óvissuástand skapast á ný milli Írans og USA - Bitcoin reynir að halda sér yfir 60k

Óvissuástand skapast á ný milli Írans og USA - Bitcoin reynir að halda sér yfir 60k

11júl

Í þessum þætti ræða þeir félagar um það helsta sem gerst hefur frá því að þeir spjölluðu saman síðast. Er vopnahléi lokið milli USA og Írans? Það virtist mega lesa út úr orðum forseta Bandaríkjanna, en málið er kannski ekki svo einfalt eins og fjallað er um í þættinum. Áfram halda vandræði Saylor og Strategy, en Strategy seldi rúmlega 3500 BTC í tapi. Þá vakti umfjöllun Viðskiptablaðsins athygli Kjartans og ekki síst það sem blaðið fjallaði ekki um í tengslum við CASP starfsleyfi á grundvelli MiCA. Þetta og margt fleira í þessum þætti.

Lokafrestur MiCA liðinn í Evrópu - Hvaða áhrif hefur það?

Lokafrestur MiCA liðinn í Evrópu - Hvaða áhrif hefur það?

4júl

Í þessum þætti fara þeir félagar yfir það helsta á markaðnum. Í upphafi mánaðar leið lokafrestur samkvæmt MiCA löggjöfinni í Evrópu. Það þýðir að þjónustuveitendur sýndareigna (rafmyntakauphallir) verða að hafa starfsleyfi sem slíkir (CASP) til að mega veita viðskiptavinum þjónustu innan ESB og EES. Töluvert hátt hlutfall af áður starfandi þjónustuveitendum hefur ekki tekist að tryggja sér starfsleyfið innan frestsins og ber þar helst að nefna stærstu rafmyntakauphöll heims, Binance. Farið er yfir nokkur grundvallaratriði sem fylgja MiCA og hvaða þýðingu þetta hefur fyrir neytendur. Einnig er bókahorn og margt fleira í þessum þætti.

Samtal við Magnús Karl Ásmundsson, hagfræðing

Samtal við Magnús Karl Ásmundsson, hagfræðing

27jún

Í þessum þætti mætti góður gestur í sitt fyrsta skipti í hlaðvarpið. Magnús Karl Ásmundsson er hagfræðingur að mennt, en starfar sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins Tímaveru. Magnús fer yfir víðan völl, en fjallar meðal annars um mörg grundvallaratriði hagfræðinnar, Bitcoin, hagkerfið og hvernig lífið og þroskinn sem fylgir því fær mann til að átta sig á að stundum er raunveruleikinn flóknari en svo að hægt sé að leysa öll heimsins vandamál með því að beita einfaldri hugmyndafræði. Þetta og margt fleira í þessu skemmtilega spjalli.

Nýr seðlabankastjóri USA slær á þunga strengi - Rauðu flöggin halda áfram að versna hjá Strategy

Nýr seðlabankastjóri USA slær á þunga strengi - Rauðu flöggin halda áfram að versna hjá Strategy

21jún

Í þessum þætti er rætt um það helsta sem gerst hefur á mörkuðum. Kevin Warsh, nýskipaður seðlabankastjóri Federal Reserve, fjallaði um í fyrstu ræðu sinni sem seðlabankastjóri hvernig hann sér fyrir sér breytt hlutverk seðlabankans gagnvart mörkuðum. Til þessa hafa fjárfestar treyst á leiðbeinandi stef frá seðlabankastjóra og jafnframt treyst því að seðlabankinn myndi alltaf grípa inn í þegar markaðir hafa lækkað verulega, að hleypa lífi í markaðinn með lækkun vaxta og öðrum tilslökunum. Warsh sagði að fjárfestar skyldu ekki treysta á slík inngrip. Þá halda áhyggjur af Michael Saylor, Strategy og Stretch áfram að aukast og í vikunni fór gengi Stretch, sem á almennt að haldast sem næst genginu 100, niður í 82. Samhliða þessu er Saylor að dreifa óábyrgu myndefni sem gefur til kynna að það að fjárfesta í Stretch sé ávísun á fjárhagslegt öryggi. Þetta og margt fleira í þessum þætti.

Verðbólga heldur áfram að aukast í USA - Örlög Clarity Act orðin tvísýn?

Verðbólga heldur áfram að aukast í USA - Örlög Clarity Act orðin tvísýn?

13jún

Verðbólga jókst um 0,5% á ársgrundvelli milli mánaða í USA og nýjum seðlabankastjóra þar í landi virðist ansi þröngur stakkur sniðinn gagnvart breytingu stýrivaxta. Þá hafa líkur lækkað verulega á veðmálamörkuðum á því að Clarity frumvarpið verði samþykkt á þessu ári og eru þær nú metnar á um 50%. Fjallað er talsvert um þessi atriði, en sömuleiðis fjallar Björn ítarlega um þróun og sögu síðustu tveggja bjarnarmarkaða og varpar fram spurningunni hvort eitthvað megi læra af sögunni. Þetta og margt fleira í þessum þætti.

Þrettán dagar af samfelldu útflæði úr kauphallarsjóðum keyrir BTC undir 60k

Þrettán dagar af samfelldu útflæði úr kauphallarsjóðum keyrir BTC undir 60k

6jún

Í þessum þætti er rætt um stöðuna á crypto mörkuðum sem er vægast sagt uggvænleg um þessar mundir. Látlaust útflæði hefur verið úr kauphallarsjóðum eða um 4,4 milljarðar dollara á 13 dögum. Samhliða því hefur Fear and Greed mælikvarðinn hrapað niður á við og mælist nú 15, eða sem öfgakennd hræðsla. Sömu sögu, og reyndar verri, er að segja um aðrar helstu rafmyntir markaðarins. Tímar sem þessir reyna á jafnvel reyndustu fjárfesta og spurningin sem allir þátttakendur ættu að spyrja sig er einfaldlega: Hef ég trú á þessu fyrirbæri til framtíðar?

Útflæði úr kauphallarsjóðum eykst verulega - Bitcoin nálgast 70k

Útflæði úr kauphallarsjóðum eykst verulega - Bitcoin nálgast 70k

30maí

Í þessum þætti er rætt um það helsta á mörkuðum. Crypto markaðurinn heldur áfram að síga niður sem verður að teljast nokkur vonbrigði í ljósi þess að S&P500 vísitalan heldur áfram góðri siglingu. Áfram er óbreytt staða á Clarity frumvarpinu, þ.e. ekki er annað að segja en að reiknað er með því að frumvarpið verði tekið til afgreiðslu öldungardeildarinnar á næstunni. Þá er einnig fjallað talsvert um Ethereum og ýmsar vendingar þar á bæ í bókahorninu.

Bitcoin missir dampinn og strögglar við að komast yfir 80k á ný

Bitcoin missir dampinn og strögglar við að komast yfir 80k á ný

23maí

Í þessum þætti er rætt um það helsta sem gerst hefur á mörkuðum. Ekkert nýtt er að segja um Clarity-frumvarpið en væntingar standa áfram til þess að það verði lagt fyrir öldungardeildina á næstunni. Útflæði heldur áfram úr BTC og ETH kauphallarsjóðum, en innflæði er sterkt í XRP, SOL og HYPE kauphallarsjóðina. Þá búa fjárfestar sig undir aukna táknvæðingu á eignamörkuðum. Þetta og margt fleira í þessum þætti.

Verðbólgutölur valda vonbrigðum - Clarity frumvarpið færist nær lagasetningu

Verðbólgutölur valda vonbrigðum - Clarity frumvarpið færist nær lagasetningu

16maí

Í þessum þætti er farið yfir viðburðaríka viku. Vikan hófst á slæmum fréttum, en verðbólga í Bandaríkjunum virðist vera að aukast umfram spár og bjartsýni fjárfesta um stýrivaxtalækkanir þar í landi fer minnkandi. Ekki bætti úr skák að 13. maí var sá dagur sem mest útflæði var úr BTC kauphallarsjóðum, meira en 630 milljónir dollara. Hins vegar bárust stór tíðindi úr öldungardeildinni en Clarity frumvarpið var afgreitt úr bankanefnd öldungardeildarinnar með 15 atkvæðum gegn 9. Í kjölfarið þykja líkurnar hafa aukist allverulega á að lagasetning sé innan seilingar og virðist markaðurinn fastlega gera ráð fyrir því að frumvarpið verði að lögum í nánustu framtíð. En hvað þýðir það nákvæmlega fyrir rafmyntamarkaðinn? Þetta og margt fleira er rætt í þessum þætti.

Þér gæti líka líkað...