Hlaðvarp

Góðar sögur

Heklan og Markaðsstofa Reykjaness

32 þættir39 hlustanirSíðast uppfært 19.2.2025

Góðar, fyndnar, jafnvel sorglegar en umfram allt einlægar sögur af góðu fólki á Reykjanesi. Umsjón er í höndum Dagnýjar Maggýjar og Eyþórs Sæmundssonar.

Mynd fyrir þáttinn Elvar Már Friðriksson hjá Góðar sögur

Elvar Már Friðriksson

19. febrúar, 2025

Hann var lágvaxinn og seinn til í þroska sem lá þungt á honum á unglingsárum. Það fyllti hann eldmóð til þess að leggja ennþá harðar að sér og sanna sig.

Mynd fyrir þáttinn Jón Kalman hjá Góðar sögur

Jón Kalman

3. febrúar, 2025

Jón Kalman hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín og hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem einn helsti skáldagnahöfundur landsins og hafa bækur hans komið út á fjölmörgum tungumálum.

Mynd fyrir þáttinn Ingibergur Þór Jónasson hjá Góðar sögur

Ingibergur Þór Jónasson

18. janúar, 2025

Umhverfið í kringum heimaslóðirnar í Grindavík hefur alltaf verið griðarstaður fyrir Ingiberg Þór Jónasson ljósmyndara. Náttúran veitir honum hugarró og jafnvægi í lífsins ólgusjó. Hann fór fyrst á sjóinn um fermingaraldur og lærði þar heilmargt.

Mynd fyrir þáttinn Garðar Örn Arnarson hjá Góðar sögur

Garðar Örn Arnarson

23. desember, 2024

Örlögin höguðu því þannig að hann skráði sig í kvikmyndaskóla þegar hann var við það að stimpla sig út úr námi. Þrennum Edduverðlaunum síðar er Garðar Örn Arnarson einn afkastamesti kvikmyndagerðamaður Íslands og brautryðjandi þegar kemur að gerð íþróttaefnis…

Mynd fyrir þáttinn Una Steinsdóttir hjá Góðar sögur

Una Steinsdóttir

21. desember, 2024

Hún hefur ástríðu fyrir lífinu og þykir vænt um fólk. Una Steinsdóttir er einn af helstu stjórnendum Íslandsbanka og að baki fjölda landsleikja í handbolta. Henni finnst best að vera í sókn í lífinu, það þarf í það minnsta að vera gaman.

Mynd fyrir þáttinn Hólmfríður Árnadóttir hjá Góðar sögur

Hólmfríður Árnadóttir

15. september, 2021

Hún flutti til Suðurnesja fyrir fimm árum síðan og tók þar við stöðu skólastjóra Ssand, hún brennur fyrir velferðarmálum og er alveg einstaklega jákvæð. Við ræddum við Hólmfríði um lífið á Suðurnesjum, sakamálasögur, vegahlaup og að sjálfsögðu um pólitíkina.

Mynd fyrir þáttinn Birgir Þórarinsson hjá Góðar sögur

Birgir Þórarinsson

15. september, 2021

Hann þótti villingur og ekki líklegur til að verða guðfræðingur og virðulegur þingmaður. Það má segja að hann sé 19 aldar maður í hjarta. Hann er strandamaður, óðalsbóndi á Knarranesi á Vatnsleysuströnd þar sem eitt sinn varð til ríkisstjórn.

Mynd fyrir þáttinn Vilhjálmur Árnason hjá Góðar sögur

Vilhjálmur Árnason

10. september, 2021

Hann var flutningsmaður áfengisfrumvarpsins en sjálfur hefur hann aldrei byrjað að drekka. Hann er sveitastrákur sem endaði á Alþingi með viðkomu í lögreglunni.

Mynd fyrir þáttinn Oddný Harðardóttir hjá Góðar sögur

Oddný Harðardóttir

8. september, 2021

Hún verður alltaf samofin Garðinum enda býr hún þar enn á æskuheimili sínu. Þar var lífið oft erfitt í æsku Oddnýjar. Foreldrar hennar skildu þegar hún var táningur og heimilislífið var litað af drykkju föður hennar.

Mynd fyrir þáttinn Guðbrandur Einarsson hjá Góðar sögur

Guðbrandur Einarsson

6. september, 2021

Guðbrandur Einarsson verslaði fermingarfötin timbraður. Snemma náðu áfengi og kannabisefni sterkum tökum á lífi þessa unga manns sem dreymdi um að verða bóndi. Hann setti tappann í og sneri sér að tónlist, verkalýðsmálum og stjórnmálum.