Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Þjóðhátíðarlögin og grasasnarnir í Jackass
Í þessum þætti af Fram og til baka skoða Felix og Nanna hátíðir víða um land. Franskir dagar á Fáskrúðsfirði fagna 30 ára afmæli og í tilefni þess heyrðu þau í Alberti Eiríkssyni og ræddu hátíðina. Þau fengu til sín Bergsvein Arilíusson og fóru yfir árin með Pöpum sem koma fram á bæjarhátíðinni Hjarta Hafnarfjarðar um helgina. Það styttist í þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og í tilefni þess tóku umsjónarmenn snúning á þjóðhátíðarlögum. Þá kíkti til þeirra Margrét Júlía Ingimarsdóttir, eyjakona, sem hefur aldrei látið sig vanta í dalinn og ræddi meðal annars hvað gerir gott þjóðhátíðarlag. Að lokum fengu þau til sín blaðamanninn og menningarrýninn Magnús Jochum Pálsson sem fór með þeim yfir nýjustu og mögulega síðustu myndina í Jackass kvikmyndabálknum.
Heimsmeistaramótið og hátíðir um land allt
Umsjónarmenn Fram og til baka kynntu sér hátíðir á landinu og ræddu við Áskel Heiðar Ásgeirsson, framkvæmdastjóra Landsmóts hestamanna sem fer fram þessa helgina á Hólum í Hjaltadal. Þá fengu þau til sín söngdívurnar Selmu og Hönsu sem ræddu samstarfið í gegnum árin og sumardjassinn á Jómfrúnni. Heimsmeistaramótið í fótbolta er á allra vörum þessa dagana og til þess að ræða fótboltann kíkti meðal annars Kári Tulinius, fótboltanörd, til þeirra í stúdíó sem hefur verið að skrifa skemmtilega fótboltapistla fyrir Guardian. Að lokum kíkti blaðamaðurinn Erla María Markúsdóttir við sem hefur fylgst grannt með heimsmeistaramótinu og rýndi meðal annars í töskusafn Erlings Haaland.
Afmæli Bandaríkjanna og nýr umsjónarmaður
Á fjórða júlí hófst nýr kafli í sögu Fram og til baka þegar þátturinn lengdist um rúma klukkustund og nýr umsjónarmaður Nanna Guðrún Sigurðardóttir settist við hljóðnemann með Felix. Gestur þáttarins, Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, þekkir vel til í Bandaríkjunum og sagði af kynnum sínum af landi og þjóð. Þá vitnaði hún í hina 250 ára gömlu sjálfstæðisyfirlýsingu. Svo hringdu umsjónarmenn út um landið í Jóhannes Kristbjörn sem var með ísbíllin á Dalvík og Guðbjörgu Ríkey sem er að fara að gifta sig í Kjósinni. Fulltrúi þáttarins á erlendri grundu, Malín Eyfjörð Ægisdóttir var svo á línunni frá Hróarskeldu
Fimman í frí og sumarstemmning
Fram og til baka er í sumarskapi og Fimman var send í frí fram í lok ágúst. En Felix er á sínum stað og fylgist vel með því sem er að gerast um landið og miðin. Við heyrðum af því sem gerðist á deginum, hringdum í Hilmar Oddsson og heyrðum nýtt lag með Melchior. Svo var rætt um Sumarjazz á Jómfrúnni og beina útsendingu RÚV frá tónleikum Tómasar R Einarssonar og Bogomil Font í dag.
Egill Andrason og árin sem mótuðu hann
Sviðslistamaðurinn og tónlistarmaðurinn Egill Andrason hefur vakið mikla athygli fyrir ljúfa framkomu og dugnað á undanförnum árum og þeir sem fylgjast með leikhúsi upplifa að hann sé eiginlega í öllum verkum! Egill fann sér samt tíma til að koma í fimmu og tala um fimm ártöl sem mótuðu hann. Samtalið fór víða og árunum fylgdi tónlist. Í síðari hluta þáttarins hringdi Felix í dúx ME, Ínu Berglindi Guðmundsdóttur, en hún er líka tónlistarkona og hefur nýlega sent frá sér sitt fyrsta frumsamda lag. Svo kíktum við á það sem gerðist á deginum.
Sigurður Flosason og kennararnir
Kennarar eru Sigurði Flosasyni tónlistarmanni hugleiknir en hann hefur mörgum kennt í gegnum árin. Fimman hans fjallaði um kennara sem hafa haft djúp áhrif á líf hans og leikurinn berst frá lúðrasveitum og Tónmenntaskólanum í Reykjavík til Bandaríkjanna, Indiana og New York. Svo heiðrum við afmælisbörn dagsins og skoðum hvað gerðist á deginum
Hreimur Örn smurði samlokur til að sjá stjörnurnar
Hreimur Örn Heimisson er einn vinsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar og gleður enn með nýrri tónlist og spilamennsku um allt land. Hreimur gaf sér tíma til að kíkja í morgunkaffi í Fram og til baka og tala um fimm tónleika sem höfðu djúp áhrif á líf hans. Sagan berst úr Landeyjunum þar sem Sálin var í heimsókn um víðan völl og endar á tónleikum með Paramore í London. Í síðari hluta þáttarins kemur Jakob E Jakobsson vert á Jómfrúnni í heimsókn en Sumardjazzinn dásamlegi er að fara í gang í dag og RÚV ætlar að fylgjast vel með í sumar.
Lára Sóley listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík
Húsvíkingurinn Lára Sóley Jóhannsdóttir er komin með mikla reynslu af stjórnun menningarviðburða þrátt fyrir ungan aldur og starfar nú sem listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík. Hennar fyrsta hátíð er einmitt að byrja í dag og Lára Sóley kom í fimmu í tilefni dagsins. Þar ræddi hún fimm listviðburði sem hafa haft áhrif á líf hennar og það fór frá Tónlistarveislu á Húsavík yfir í Víking Heiðar á Proms Svo hringdum við í Samúel Jón Samúelsson en hann á stórt tónverk með 500 krakka lúðrasveit á opnunarhátíð Listahátíðar í dag
Finnbogi Pétursson myndlistarmaður
Finnbogi Pétursson var valinn myndlistarmaður ársins á dögunum og þótti sýning hans í Hveragerði, Skjálfti, skara fram úr. Í umsögn dómefndar sagði: "Finnbogi vann hugmyndina að verkinu með tengdaföður sínum, jarðskjálftafræðingnum Ragnari Stefánssyni, sem jafnan var kallaður skjálfti. Þeir hugðust vinna með jarðfræðilega virkni Hveragerðis, meðal annars með tæki sem Ragnar hafði þróað. Áður en hugmyndin að sýningunni var fullunnin lést Ragnar en til að heiðra minningu hans kom Finnbogi eldrauðu duftkeri fyrir í rýminu og vísar þannig í nærveru ástvinar." Finnbogi kemur í fimmu og talar um fimm vörður í lífinu sem breyttu öllu.
Jakob van Oosterhout, stjarnan í Ormstungu
leikarinn Jakob van Oosterhout hefur aldeilis slegið í gegn í Ormstungu í Þjóðleikhúsinu en hann kemur líka við sögu í 20 og eitthvað á RÚV og mun leika aðalhlutverk í söngleiknum Með allt á hreinu í sumar. Jakob kom í skemmtilega fimmu en hún fjallaði um fimm hljóðfæri lífs hans og sögurnar voru margar og skemmtilegar.


