Einmitt / Menn eins og við

Einar Bárðarson

SamfélagiðMenning & listirAndleg málefni

Menn eins og við er hlaðvarp fyrir alla sem hafa einhvern tímann haft sterka skoðun á kaffi, grilli, garðslöngu, gallabuxum eða einhverju öðru sem skiptir nákvæmlega engu máli... en virðist samt skipta ótrúlega miklu máli. Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason fara yfir lífið á miðjum aldri af húmor, sjálfsháði og forvitni. Hver þáttur er blanda af hversdagslegum vangaveltum, persónulegum sögum og endalausum umræðum um allt það sem enginn bað um – en allir eiga skoðun á. Nýir þættir birtast á 7–10 daga fresti.

Menn eins og við #18 Á einhver startkappla?

Menn eins og við #18 Á einhver startkappla?

18júl

Hvernig kennir maður notkun startkapla í gegnum síma án þess að valda slysi? Baldur reynir það – með misjöfnum árangri. Sláturóbótinn reynir á þolinmæðina og Einar reynir á móti að kenna Baldri hvernig á að velja almennilegt kaffi. Að venju fara umræðurnar víða þar sem hversdagsleg vandamál miðaldra karla fá óþarflega mikla athygli. Góð ráð eru gefin án ábyrgðar og niðurstöðurnar verða sjaldnast þær sem nokkur bjóst við. Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is   http://bpro.is

Einmitt special #17 Menn eins og við - Brúnkustigið "Mandarin Flare"

Einmitt special #17 Menn eins og við - Brúnkustigið "Mandarin Flare"

10júl

Í nýjasta þætti Menn eins og við taka Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason fyrir mikilvægustu spurningar sumarsins. Hvenær verður brúnkan að hinu alræmda Mandarin Flare? Eiga miðaldra karlar að fara í hand- og fótsnyrtingu? Og hvernig gengur 54 ára karlmanni að hætta loksins að naga á sér neglurnar eftir áratuga baráttu? Eins og svo oft áður fara umræðurnar víða, með tilheyrandi vandræðagangi og sjálfsháði sem aðeins menn á miðjum aldri virðast kunna. Létt spjall um tónleika, karlmennsku, sumarstemningu og allt það sem enginn kenndi okkur að vita þegar við urðum fullorðnir. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is  http://bpro.is

Einmitt special #16 Menn eins og við - Karlmennskan og slönguöfund

Einmitt special #16 Menn eins og við - Karlmennskan og slönguöfund

30jún

Í þessum þætti fagna Einar og Baldur fyrsta gróðurhúsinu frá BK Hönnun í garði Baldurs – en ný garðslanga stelur senunni og kveikir líklega fyrsta skráða tilfelli garðslönguöfundar á Íslandi. Þeir fara yfir Bergmál, umferðina yfir á Þingvelli, Skinny jeans-sjokkið þegar Just Björn mætti í þeim og af hverju Levi's 501 Loose Fit varð eina rétta svarið. Einnig ber á góma sextugsafmæli Stefáns Hilmarssonar, barnaafmæli að hætti Ásgeirs Kolbeinssonar og ýmislegt annað sem getur með engu móti bætt líf þitt – en gæti samt gert daginn aðeins skemmtilegri. Létt spjall um tónleika, karlmennsku, sumarstemningu og allt það sem enginn kenndi okkur að vita þegar við urðum fullorðnir. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is  http://bpro.is Samstarfsaðilar Menn eins og við http://biobu.is http://egc.is/ http://mammaveitbest.is http://fylgifiskar.is  http://kjotburid.is  http://heilsuhornid http://heilsuhornid/>.is http://goa.is www.ccep.is

Einmitt special #15- Menn eins og við -Það verður enginn í skinny jeans á Þingvöllum

Einmitt special #15- Menn eins og við -Það verður enginn í skinny jeans á Þingvöllum

20jún

Í þætti #15 af Menn eins og við velta þeir Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason fyrir sér öllum þeim spurningum sem miðaldra menn eru ekkert endilega stoltir af að spyrja upphátt. Bergmál og KALEO á Þingvöllum eru framundan og þeir félagar reyna að komast að því hvað menn eins og þeir eigi eiginlega að vera í, hvort einhver fari enn í skinny jeans, hvað þessir margumtöluðu gullmiðar raunverulega þýða og hvort það sé yfirhöfuð hægt að treysta íslenskri veðurspá þegar stórir útitónleikar eru annars vegar. Þá fara þeir einnig yfir frábæra tónleika Friðriks Dórs, ræða sumarið, tónleika, stemningu og þá staðreynd að það getur tekið furðu stuttan tíma að murka lífsviljann úr miðaldra mönnum í biðröðum eftir candyflossi, blöðrum og andlitsmálningu á 17. júní í Garðabæ. Létt spjall um tónleika, karlmennsku, sumarstemningu og allt það sem enginn kenndi okkur að vita þegar við urðum fullorðnir. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is  http://bpro.is Samstarfsaðilar Menn eins og við http://biobu.is http://egc.is/ http://mammaveitbest.is http://fylgifiskar.is  http://kjotburid.is  http://heilsuhornid http://heilsuhornid/>.is http://goa.is www.ccep.is

Einmitt special #14 - Menn eins og við – Allsber á Range Rover í lúgunni á Aktu Taktu

Einmitt special #14 - Menn eins og við – Allsber á Range Rover í lúgunni á Aktu Taktu

12jún

Í nýjasta þætti af Menn eins og við fara þeir Baldur Rafn Gylfason og Einar Bárðarson um víðan völl eins og þeim einum er lagið. Báðir misstu þeir af tónleikum Bubba um síðustu helgi og glíma enn við talsvert FOMO vegna þess. Á meðan situr Baldur fastur í framkvæmdum heima hjá sér þar sem garðverktakarnir hafa í raun tekið sumarið hans í gíslingu og hann er farinn að sýna öllum einkennum Stokkhólmsheilkennis gagnvart mönnum með gröfur og hellulagnir. Einar kynnir svo hina margrómuðu F350 reglu um heimilisfjárfestingar eftir að hafa eytt heilu kvöldi í að rannsaka kælibox af slíkri ástríðu að hann sannfærðist næstum um að hann þyrfti eitt – áður en hann komst að þeirri niðurstöðu að hann hefði nákvæmlega ekkert við það að gera. Svo segir Baldur sanna sögu af manni sem mætti allsber á Range Rover í lúguna hjá Aktu Taktu á Sæbrautinni til að panta sér ís. Afgreiðslumaðurinn var ekki undirbúinn fyrir þá upplifun og sagan verður vart endursögð án þess að hlæja. Sumarið, grasið, græjurnar, Bubbi, framkvæmdir, kælibox og allsberir menn í lúgum. Þetta er allt saman í nýjasta þætti af Menn eins og við. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is  http://bpro.is Samstarfsaðilar Menn eins og við http://biobu.is http://egc.is/ http://mammaveitbest.is http://fylgifiskar.is  http://kjotburid.is  http://heilsuhornid http://heilsuhornid/>.is http://goa.is www.ccep.is

Einmitt special #13 - Menn eins og við 13 "Typpi og toppur?"

Einmitt special #13 - Menn eins og við 13 "Typpi og toppur?"

2jún

Sumarið er komið og með því gróðurhús, slátturóbótar, veðurvélar, hárígræðslur og endalaus verkefni sem miðaldra menn ætla sér að klára en gera ekki. Baldur og Einar fara um víðan völl í enn einum þættinum af Menn eins og við þar sem tækninýjungar, sumarplön og karlmennskan sjálf fá að fara í gegnum litgreiningu lífsins. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is  http://bpro.is Samstarfsaðilar Menn eins og við http://biobu.is http://egc.is/ http://mammaveitbest.is http://fylgifiskar.is  http://kjotburid.is  http://pureshilajit.is http://pureshilajit.is/> http://goa.is http://goa.is/> www.ccep.is

Einmitt special #12 - Menn eins og við "Sumarkvíði, er það til?"

Einmitt special #12 - Menn eins og við "Sumarkvíði, er það til?"

16maí

Nú er það grillin sem taka mesta athyglina. Strákarnir sóttu sér ráð inni á pabbatips um hvernig sé best að þrífa gasgrillin fyrir sumarið. Þá kom hugtakið "sumarkvíði" upp í samtalinu og það var greint í döðlur. Einnig fá klósett með heitri setu, lúxusrúm og sumar heima hjá sér hefðbundna litgreiningu. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is  http://bpro.is Samstarfsaðilar Menn eins og við http://biobu.is http://egc.is/ http://mammaveitbest.is http://fylgifiskar.is  http://kjotburid.is  http://pureshilajit.is http://pureshilajit.is/> http://goa.is http://goa.is/> www.ccep.is http://www.ccep.is/>

Einmitt special #11 - Menn eins og við "Eiga karlar að pissa sitandi?"

Einmitt special #11 - Menn eins og við "Eiga karlar að pissa sitandi?"

8maí

Baldur glímir við afleiðingar hásinarslits á meðan Einar hefur verið í spænskri endurhæfingu frá íslenskum raunveruleika. Í þættinum ræða þeir meðal annars salerni með skol- og þurrkkerfum, hvort karlmenn eigi að pissa sitjandi, gróðurhúsadrauma, tómatarækt og slátturóbóta. Einnig fá Bjarni Benediktsson, Friðrik Dór og Auddi Blö sína hefðbundnu litgreiningu. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is  http://bpro.is Samstarfsaðilar Menn eins og við http://biobu.is http://egc.is/ http://mammaveitbest.is http://fylgifiskar.is  http://kjotburid.is  http://pureshilajit.is http://pureshilajit.is/> http://goa.is http://goa.is/> www.ccep.is http://www.ccep.is/>

121 Einar Þorsteins "Við sjáum öfgarnar aukast í borginni"

121 Einar Þorsteins "Við sjáum öfgarnar aukast í borginni"

7maí

Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar í Reykjavík og fyrrum Borgarstjóri er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum komandi kosningar og stöðu flokksins á Höfuðborgarsvæðinu, er erindi flokksins búið í borgaralegu samhengi eða er ennþá eftir spurn eftir rödd á miðjunni? Aðalbakhjarlar Einmitt eru: bkhonnun.is http://bkhonnun.is/> hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavolini.is    bpro.is http://bpro.is/> stereo.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is http://biobu.is/> egc.is http://egc.is/> mammaveitbest.is http://mammaveitbest.is/> fylgifiskar.is  kjotburid.is  http://pureshilajit.is

120. Elís Árnason „Nýtt líf í sólinni á Spáni"

120. Elís Árnason „Nýtt líf í sólinni á Spáni"

18apr

Elís Árnason eða Elli í Sjallanum fasteignasali á Spáni er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum Sjallann, Hótel Kea, Eina með öllu, Hard Rock, árin í Smáralind og lífið á Spáni en síðustu 15 ár hefur hann verið með annan fótinn á svæðinu fyrir neðan Alicante og nú síðustu 3 ár hefur hann starfað þar sem fasteignasali við góðan orðstír.

Þér gæti líka líkað...