Hlaðvarp

Biskupsmálið

Gabríela Bryndís Ernudóttir

7 þættir40 hlustanirSíðast uppfært 22.3.2026

Hlaðvarpssería um Biskupsmálið. Umsjón: Gabríela Bryndís Ernudóttir

Mynd fyrir þáttinn 6. þáttur - lokaþáttur hjá Biskupsmálið

6. þáttur - lokaþáttur

22. mars, 2026

Í lokaþættinum er sjónum beint að langvarandi áhrifum ofbeldis og þeim lærdómi sem samfélagið getur dregið af einu stærsta uppgjörsmáli íslensks samtíma. Varpað er ljósi á hvernig afleiðingar ofbeldis geta varað í áratugi, jafnvel kynslóðir.

Mynd fyrir þáttinn 5. þáttur hjá Biskupsmálið

5. þáttur

15. mars, 2026

Í þessum þætti beinist athyglin að því sem tók við eftir að Guðrún Ebba steig fram opinberlega með sögu sína í bókinni Ekki líta undan, sem Elín Hirst skráði.

Mynd fyrir þáttinn 4. þáttur hjá Biskupsmálið

4. þáttur

8. mars, 2026

Í þættinum er sjónum beint að þeirri vegferð sem hófst þegar Guðrún Ebba, dóttir biskups, fór í áfengismeðferð árið 2003 og minningar um kynferðisofbeldi föður hennar fóru að brjótast fram eftir áratuga bælingu.

Mynd fyrir þáttinn 3. þáttur hjá Biskupsmálið

3. þáttur

1. mars, 2026

Þriðji þáttur fjallar um hvernig málin voru afgreidd innan kirkjunnar árið 1996. Ólafur kærði konurnar til ríkissaksóknara fyrir ærumeiðingar og þær voru yfirheyrðar af lögreglu klukkutímunum saman.

Mynd fyrir þáttinn 2. þáttur hjá Biskupsmálið

2. þáttur

22. febrúar, 2026

Í öðrum þætti er farið yfir það hvað gerist þegar konur stíga fram gegn valdamiklum manni, og mæta kerfi sem virkar hægt og illa, og verndar frekar biskupsembættið en brotaþola.

Mynd fyrir þáttinn 1. þáttur hjá Biskupsmálið

1. þáttur

15. febrúar, 2026

Þann 15. febrúar árið 1996 kom út frétt í DV um að nokkrar konur væru að ásaka valdamesta manns þjóðkirkjunnar, biskup Íslands, Ólaf Skúlason, um kynferðisofbeldi. Biskupsmálið svokallaða varð eitt eldfimasta mál samfélagsins í marga áratugi á eftir.

Mynd fyrir þáttinn Biskupsmálið - Trailer hjá Biskupsmálið

Biskupsmálið - Trailer

29. janúar, 2026

Í febrúar eru liðin 30 ár frá fyrstu fréttum af því þegar konur stigu fram og sögðu frá kynferðislegu ofbeldi af hendi eins valdamesta manns þjóðkirkjunnar, biskups Íslands, Ólafs Skúlasonar.