Hlaðvarp um bíódellu. Umsjónarmenn eru Kjartan Rúnarsson og Tómas Valgeirsson.

The Odyssey (2026)
Stærsta, furðulegasta og sennilega drungalegasta kvikmyndin til þessa frá Íslandsvininum Christopher Nolan, sem enn eina ferðina lætur reyna á nýja vöðva og vinkla. Hér hefur ofurþjarkurinn snúið sér að Ódysseifskviðu Hómers þar sem öllu er allsvakalega tjaldað til og erfitt er að þverneita fyrir umfangið. Peningurinn sést svo sannarlega á skjánum, bæði í leikmyndum og leikaravali. Þrátt fyrir hið undarlegasta bakslag hjá ýmsum ‘virkum í athugasemdum’ (sem fjallað verður nánar um í þættinum…) þá hefur The Odyssey verið að fá glimrandi lof um allan heim. Sumir hafa jafnvel gerst svo djarfir að kalla þetta bestu mynd Nolans til þessa, en Bíófíklar hefja sínar ástríðufullu umræðu um hvernig tókst til með þennan gígantíska pakka. Hlustandi skal allavega ekki búast við einróma hljómi og áliti í þessari samantekt. Við gestamíkrafónana sitja nú fastagestirnir Páll Eyjólfsson (Nolan-fræðingur með meiru) og Viktor Árni Júlíusson, sem fékk þann heiður í fyrrasumar að vera staddur á tökustað myndarinnar. Viktor leysir frá skjóðunni innan leyfilegra marka NDA-samninga og kemur með skrautlegar sögur af settinu. Upp með hjálmana, út með sverðin og úr bátunum með alla, því nú leggjumst við saman í epískt ferðalag. Efnisyfirlit: 00:00 - Bakslag og umtal 08:17 - Ódysseifskviða Nolans 19:46 - IMAX-flykki 38:33 - Ódysseifskviða Páls 45:14 - Ódysseifskviða Viktors 01:00:09 - Sögur af settinu 01:22:51 - Ódysseifskviða Kjartans 01:26:36 - Tommi á báti 01:43:40 - Allt farið í hundana 01:51:07 - Samantekt?

The Mask (1994) & Son of the Mask (2005)
Hin brjálæðislega vinsæla (og að margra mati sígilda) The Mask var á meðal fyrstu myndanna til að koma gúmmíkarlinum Jim Carrey á kortið og skjóta honum hátt upp á stjörnuhimininn. Ekki nóg með það, heldur markaði þetta jafnframt fyrsta stóra hlutverkið fyrir Cameron Diaz, sem á þarna ógleymanlega innkomu. Sjálfstæða Carry-lausa framhald þeirrar myndar var… vægast sagt ekki jafn vinsæl eða umtöluð og forverinn, og af gildri ástæðu. Frá útgáfu hefur sú mynd oft verið talin með verri myndum síðustu tuttugu ára, ef ekki allra tíma. Mætti jafnvel fullyrða að ónefndur einstaklingur við míkrafóninn líki þessa framhaldsmynd við opið sár. Merkilegt nokk, þá tókst Bíófíklum að finna Íslendinga sem hefur ekki alfarið slæma hluti að segja um Son of the Mask. Það er enginn annar en fastagesturinn Einar Michaelsson, sem fram að þessu hefur glatt hlustendur með þekkingu sinni á Star Wars heiminum, og síðan bíóséníið Hafsteinn Hugi Laxdal eða ‘Haffi Lax. Það var frumkvæði Einars að vaða skammarlaust í stúderingu á báðum myndunum um The Mask. Þó er ekki hægt að lofa því að annar stjórnenda Bíófíkla hafi verið Einari þakklátur fyrir að horfast í augu við gamlar (og nýjar) erfiðar minningar af myndinni þar sem Jamie Kennedy tók við Grímunni af Jim Carrey. Þá má sömuleiðis deila um það hvort fyrri myndin eldist einu sinni vel. Eða hvað? Best er þá að hlustandi smelli á sig grímuna, snúi sér í marga hringi og taki opnum örmum á móti þessum skrípaleik Bíófíkla, og sýni samstöðu í fagnaði nostalgíunnar og ekki síður þjáningunni. Efnisyflit: 00:00 - Hvers vegna báðar? 08:03 - The Mask 33:28 - Son of the Mask 54:01 - Betri hugmyndir

Súrt og svarað: Best lyktandi bíómyndin
Eins og hlustendur kunna að vita, Súrt og svarað er kvikmyndatengdur spurningarleikur þar sem engin svör eru rétt eða röng. Þetta er eingöngu gert til flipps og fróðleiks enda frískandi leið til að betur kynnast kvikmyndasmekk gest. Hugleikur Dagsson, fyrirmyndar- og atvinnunörd sem þarf vart að kynna, settist í heita sætið hjá Kjartani og Tomma þar sem markmið allra var að brjóta heilann, finna sniðugar tengingar eða svara t.d. nokkrum af neðangreindu spurningum: Hver væri versta myndin til að upplifa í 4DX? Hver væri besta myndin til að endurvekja Smell-O-Vision? En sú allra versta? Efnisyfirlit: 00:00 - Ömurlegt í 4DX 09:02 - Verst lyktandi myndin 26:11 - Sveiflur í sarpi Lóa 32:41 - Múmínálfar með budget’i 41:10 - Hryllileg ofhugsun 50:02 - Besti þristurinn 54:24 - Klær Disney-veldisins 01:06:28 - Söguforminu víxlað 01:12:00 - Brennandi álit… 01:27:17 - Fíflin í salnum

Supergirl (2026)
Nýi DC heimurinn heldur áfram göngu sína og stækkar hratt með hverju innslagi. Í fyrrasumar fengu áhorfendur að kynnast nýjum Superman, í glæsilega huggulegri túlkun Davids Corenswet. Nú er komið að frænku hans, ofurstúlkunni Köru Zor-El. Milly Alcock skaut reyndar aðeins upp kollinum í kynningarmynd frænda síns en áhorfendur fá loksins að kynnast henni betur í gerólíkri sóló-mynd í leikstjórn Gregs Gillespie (Lars and the Real Girl, I, Tonya, Cruella ofl.). Hingað til hafa flestir þekkt til Alcocks úr House of the Dragon en Bíófíklar taka innkomu og DC-ævintýrum hennar fagnandi. Annað en bíógestir, því miður… Aðsóknartölur myndarinnar um Supergirl hafa ekki verið upp á marga fiska og viðbrögð gagnrýnenda misjöfn en sagan hennar er alls ekki öll og tölurnar stoppa ekki Kjartan og Tomma frá því að rýna í myndina og skoða hvernig hún stendur sem sjálfstæð saga og hvernig persónuleiki hetjunnar ganga upp. Við gestamækinn að sinni er afburðanördið- og enn fremur myndasöguséníið Svanhvít Ada Sif Björnsdóttir til að taka þátt í umfangi umræðunnar, ásamt tilheyrandi og kannski óhjákvæmilegum útúrdúrum í tengslum við SnyderBros, fjölbreytni, menningarstríð, CW þættina um Supergirl og Star Trek (?). Þetta skýrist auðvitað betur í hlustunni. Flugið verður fróðlegt, furðuleg og margbrotið, eins og umdeilanlega mætti eflaust segja um sjálfa Supergirl. Efnisyfirlit: 00:00 - Trekkara-trivia 07:15 - DC eða Marvel 23:49 - Woman of Tomorrow 35:45 - Supergirl og spoilerar 46:46 - Heildartónn 59:13 - Glötuðu "sérfræðingar" netsins

Possession (1981)
Possession segir frá ungum hjónum. Þau Mark og Anna eiga í hjónabandsörðugleikum en Mark grunar Önnu um að eiga í framhjáhaldi með öðrum manni. Hann upplifir furðulega hegðun og dúkka þá upp vísbendingar um að um sé að ræða skelfilegri yfirnátturlegt ástarsamband en hann grunaði í fyrstu. Þetta yfirdrifna en bitastæða hrolllvekjudrama eftir Andrzej Zulawski gerði allt vitlaust víða um heiminn þegar myndin leit fyrst dagsins ljós, eða svo segja sögurnar (enda voru Bíófíklar ekki á lífi á þeim tíma...). Það er ekki erfitt að ímynda sér hvers vegna, enda áhrifamikil ef ekki alræmd mynd með body-horror ívafi sem markaði mikilvæg spor á níunda áratugnum í sínum geira. Auk þess er framleiðslusagan vægast sagt óhugguleg. Mætti jafnvel færa rök fyrir því að velgengni kvikmyndarinnar Obsession eigi einhverjar rætur að rekja til þessarar myndar. Á sinn hátt. Hvernig varð þessi mynd fyrir valinu? Það skrifast nú auðvitað á Frikka fastagest og áframhaldandi tilraun hans til að skóla Kjartan í fjölbreytileika og fjöri hryllingsmynda á meðan Tommi glottir prakkaralega og klórar sér í hausnum yfir myndinni þegar loks kom að því að kíkja aftur á hana í fyrsta sinn í hundlangan tíma. Hvort sem markmið Frikka sé að ganga endanlega frá geðheilsu Kjartans (við gleymum nú seint Meet the Feebles fíaskóinu...) eða dýpka kvikmyndasmekk hans á enn eftir að skýrast. Þá skal bara leggjast aðeins í kennslu um viðbjóðslegt eignarhald og andsetja á sig heyrnartólin. Efnisyfirlit: 00:00 - Hörð viðbrögð 10:04 - Átakanleg framleiðsla 28:07 - Einkennilegir tónar 39:00 - Samanburður við Obsession 53:52 - Frægustu senurnar 57:41 - Samantekt

Star Wars: The Phantom Menace vs. Attack of the Clones
Kvikmyndagerðarmaðurinn Einar Michaelsson er mættur aftur í stúdíóið til Kjartans og Tomma til að klára óuppgerð mál, ásamt aukagesti eða svokölluðum lærlingi Einars, Halldór Smári Kárason að nafni. Seinast þegar Einar sast við gestamækinn ræddu þeir tvær af umdeildari Stjörnustríðsmyndum allra tíma, ef ekki þá 'Disney-áranna'. Vegna fjölda áskorana frá hlustendum, sem virtust kunna að meta þrasið í seinasta Star Wars-tengdum þætti Bíófíkla með Einari, er komið að því að stúdera aðeins forsöguþríleikinn frá George Lucas, nánar til tekið þær tvær myndir sem vel og lengi voru með þeim hötuðustu í syrpunni. Jú jú, enda elska Stjörnustríðsaðdáendur að tuða, svo alltaf fylgir eitthvað hatur með hverri kynslóð þegar kemur að þessum bíóheimi. Það er ómögulega hægt að undirstrika hversu mikið hæp fylgdi komu nýja þríleiksins á sínum tíma, þá sérstaklega The Phantom Menace árið 1999. Eftirvæntingin var gígantísk og legasía þeirrar myndar er þyrnum stráð þó hún hafi alveg frá upphafi átt sína verjendur. Attack of the Clones lenti síðan þremur árum seinna og gerði allt vitlaust í nördaheimum, og enn þann dag í dag er rifist um það (ekki hvort, heldur...) hversu slæmur rómansinn er í þeirri mynd. Mátturinn er sterkur með þessum málefnum, svo drengirnir skiptast á að finna hið góða og illa sem fylgir hundgömlu þrasi frá markhópnum. Eins og ungur Anakin segir: "Jibbí!!!" Efnisyfirlit: 00:00 - Forleiksþríleikurinn 06:57 - Samanburðarleikur 15:12 - The Phantom Menace 24:32 - Attack of the Clones 36:10 - Prinsessuraunir 46:28 - Sith happens 01:01:05 - Jar Jar Binks 01:13:15 - Hvor er betri? 01:21:11 - "Af hverju" spurningar...

Toy Story (1995-2026)
Margir hafa mögulega gleymt því en heimurinn fór nánast á hliðina þegar fyrsta Leikfangasaga Pixar-stúdíósins var gefin út. Þetta var fyrsta tölvugerða teiknimyndin í fullri lengd þar sem sköpunarteymið lagði það að markmiði að gera hálfgerða 'anti-Disney mynd'. Sem betur fer stóðu gæðin undir vinsældunum, því seinna meir urðu Toy Story myndirnar enn vinsælli og að margra mati betri eftir því sem á leið. Til að ræða hæðir og umdeildu lægðir Toy Story seríunnar fengu Kjartan og Tommi hina massakláru og ávallt skemmtilegu Siggu Clausen til að róta aðeins með þeim í dótakassanum. Allar fimm myndir syrpunnar eru ræddar (að ógleymdum stuttmyndunum) og jafnframt ólíkar tengingar hvers og eins í stúdíóinu við ævintýri Vidda, Bósa, Dísu og félaga. Þetta þýðir bara eitt; það er kominn leiktími! Efnisyfirlit 00:00 - ”Marvel Rouge" 09:12 - Toy Story 38:10 - Toy Story 2 51:28 - Toy Story 3 01:07:53 - Toy Story 4 01:15:43 - Toy Story Toons 01:22:16 - Toy Story 5

Topp 10: Elín Ósk
Hversu oft hefur þú séð The Mummy frá 1999? Hvað með Titanic? Léstu nokkuð Little Women frá 2019 fram hjá þér fara? Hefurðu kynnt þér leikstjóraútgáfuna af Midsommar? Eða júmbóútgáfuna af Kill Bill? Þessar kvikmyndir og fleiri eru allar í miklu uppáhaldi hjá topplistagesti Bíófíkla að sinni, en það er Elín Ósk Jóhannsdóttir sem hefur verið áberandi með innslög sín á TikTok síðustu misseri. Elín er svo sannarlega sjónvarps- og bíófíkill og þar af leiðandi meira en velkomin við gestamækinn í Podcaststöðinni. Hún leiðir Kjartan og Tomma í gegnum úttekt sína á titlum sem hafa verið í gríðarlegum metum hjá henni. Fjölbreytnin er borðliggjandi og við fögnum að sjálfsögðu fjölbreytileikanum. Elín fær orðið, og sviðið. Efnisyfirlit: 00:00 - Elín Ósk á TikTok 08:49 - Pride and Prejudice 13:30 - Titanic 23:32 - The Dark Knight 30:54 - Tangled 34:06 - Arrival 37:32 - The Mummy 45:32 - Midsommar 53:24 - American Psycho 01:01:38 - Little Women 01:10:09 - Kill Bill (vol. 1...)

Spurt og spilað: Stóra MCU prófið
Nú skal kanna þekkingu tveggja ólíkra bíófíkla á sarpinum úr hinu svonefnda Marvel Cinematic Universe. Kveikiþráðurinn að þessum spurningaleik kom þegar Kjartan skoraði á Dag Lárusson, sjálfskipaðan MCU sérfræðing, og þá ákvað Tommi að hlaða í eitt heljarinnar próf, ef svo má kalla það, með dómnefndaraðstoð frá Atla Frey. Kjartan og Dagur Lár settu sér í stellingar þar sem heili og hugvit þeirra beggja var grillað með alls konar spurningum um einn vinsælasta kvikmyndaheim síðari ára, enda vægast sagt úr nægu að taka. Aðeins einn getur komið út úr þessu sem sigurvegari og þá með betri innistæðu fyrir því að sverja sig í hóp helstu MCU-sérfræðinga landsins. Haldið ykkur fast, hér er það Dagur Lár vs. Kjartan... Efnisyfirlit: 00:00 - TikTok og áskorun 06:02 - Hvor svarar fyrst? - MCU sagan 16:21 - Einn í einu - Staðreyndir 32:41 - Kvikmyndagerð og leikarar 44:52 - MCU þættir 56:03 - Niðurstaða og Doomsday

Disclosure Day (2026)
Steven Spielberg og geimverur. Er það ekki býsna sígild og (oftast) skotheld blanda? Er einn þekktasti leikstjóri okkar kynslóða kannski farinn að reiða eingöngu á gömul trix eða er nóg eftir í tankinum? Til að viðra þessi svör og almennt skoðanir á mysteríunni Disclosure Day hafa Kjartan og Tommi snúið aftur bökum saman við þau Ragnar og Hildi úr hlaðvarpinu Video rekkinn. Að þessu sinni eru bíófíklar ekki staddir í Podcaststöðinni við þessar upptökur, heldur í sérstöku ‘gettó stúdíói’ Video rekkans. Um er að ræða svokallaðan collab-þátt þar sem nóg af gúrme umræðum eru á boðstólnum ásamt einkennilega fríkuðum haug af skemmtilegum útúrdúrum. Og að sjálfsögðu afhjúpunum - á persónulegri nótunum. Veisla þessi hefst með einum litlum Play-takka! Efnisyfirlit: 00:00 - Afhjúpanir við borðið 07:04 - Raunveruleikasjónvarpsflipp 20:44 - Rant um útileigur 31:37 - Bíósalir landsins 40:29 - Obsession-pælingar 56:46 - Stebbi Spilaborg 01:01:42 - D-Day, án spilla 01:16:48 - "Spoiler-tími!" 01:35:02 - Stóra afhjúpunin
