Bíddu Bara

Bíddu bara

SamfélagiðForeldrar

Mömmuhópurinn þinn í eyrunum 🎧

Þriðji þriðjungur meðgöngu

Þriðji þriðjungur meðgöngu

14júl

Lokum þessari seríu með lokakafla meðgöngunnar – þriðja þriðjungi🤰✨ Margir myndu segja að þetta sé mest krefjandi tímabilið. Maginn er orðinn stór, svefninn oft stopull, orkustigið sveiflukennt og biðin eftir litla krílinu getur verið löng. Á sama tíma er spennan að ná hámarki og undirbúningurinn fyrir fæðingu og nýtt hlutverk í fullum gangi.

Annar þriðjungur meðgöngu

Annar þriðjungur meðgöngu

7júl

Annar þáttur af þremur í seríunni okkar um meðgönguna. Í þessum þætti förum við yfir annan þriðjung meðgöngunnar, tímabil sem oft er kallað „hveitibrauðsdagarnir“. Við ræðum hvað einkennir þessa mánuði, breytingarnar sem eiga sér stað og deilum okkar eigin reynslu á leiðinni💛

Fyrsti þriðjungur meðgöngu

Fyrsti þriðjungur meðgöngu

30jún

Í þessum þætti förum við yfir fyrsta þriðjung meðgöngunnar, frá því augnabliki sem maður fær já á prófi yfir í fyrstu vikurnar af ógleði, þreytu og alls konar tilfinningum.

Terrible twos og mömmubugun

Terrible twos og mömmubugun

23jún

Yapp session þáttur, fórum yfir lífið og einhvernegin erum við báðar að díla við terrible twos á byrjunarstigi. Smá reality check líka um bugun og hversu erfitt það getur verið að pússla lífinu þegar maður er með ung börn.

Sumarfrí með börnum

Sumarfrí með börnum

16jún

Nú styttist í hið hefðbundna sumarfrí með börnunum☀️ Í þessum létta sumarþætti spjöllum við um sumarið framundan, rifjum upp okkar uppáhalds æskuminningar og deilum hugmyndum af hlutum til að gera með börnunum í sumar.

Pabbaspjall - Heimir Daði

Pabbaspjall - Heimir Daði

9jún

Þá er komið að næsta pabbaspjalli!Heimir Daði er 32 ára þriggja barna faðir úr Grindavík. Hann eignaðist sitt fyrsta barn aðeins 17 ára gamall og fer hreinskilnislega yfir hvernig það er að stíga svona ungur inn í foreldrahlutverkið. Í þættinum deilir hann einnig reynslu sinni af erfiðum áföllum, þar á meðal foreldramissi.

Elínborg - unga fólkið okkar

Elínborg - unga fólkið okkar

2jún

Elínborg Ingvarsdóttir er tómstunda- og forvarnarfulltrúi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hún brennur fyrir málefnum barna og unglinga og hefur víðtæka reynslu, meðal annars sem forstöðumaður félagsmiðstöðvar og umsjónarmaður ungmennaráðs í Grindavík. Við fengum Elínborgu til okkar í spjall þar sem fókusinn er á ungt fólk – enda verða börnin okkar eldri og þá taka við nýjar áskoranir. Þetta var virkilega áhugavert og fræðandi samtal sem gaf okkur margt til að hugsa um fyrir unglingsárin. Það er svo mikilvægt að hlúa vel að þessum hópi og tryggja að honum standi til boða faglegt og uppbyggjandi starf í frístunda- og tómstundamálum.

Hafdís - ósýnilegir sjúkdómar

Hafdís - ósýnilegir sjúkdómar

26maí

Hafdís Houmøller Einarsdóttir kom til okkar í spjall og segir okkur frá sinni reynslu af því að lifa með ósýnilegum sjúkdómum. Hún ræðir fordóma og skilningsleysi sem oft fylgir, en líka ákvörðunina að verða mamma þrátt fyrir áskoranir lífsins. Meðal sjúkdóma sem hún er með eru endómetríósa, vefjagigt og mígreni.

Að byrja vinna aftur eftir fæðingarorlof

Að byrja vinna aftur eftir fæðingarorlof

19maí

Ræðum um það hvernig það er að byrja vinna aftur eftir fæðingarorlof. Hvernig þetta er á sama tíma erfitt en líka svo frelsandi!

Mömmuþáttur

Mömmuþáttur

12maí

Við settumst niður á mæðradaginn sjálfan og spjölluðum um móðurhlutverkið í allri sinni dýrð 💛 Ræðum allt frá því hvað okkur finnst best/erfiðast við móðurhlutverkið, hvað breyttist mest þegar við urðum mömmur og allskonar mömmuspjall. Dass af ranti líka um nýjast útspil heilbrigðisráðherra!

Þér gæti líka líkað...