Baráttan um Ísland

barattan

News & Politics

Baráttan um Ísland er hlaðvarp á vegum þingflokks Miðflokksins. Þáttastjórnendur verða þingmenn og þeir munu einnig fá til sín gesti eftir atvikum.  Miðflokkurinn stendur vörð um fullveldi Íslands og styður ekki aðild Íslands að ESB, né aðildarviðræður við ESB. Þingmenn og gestir munu færa rök fyrir því í þáttum hlaðvarpsins.

#4 ,,Lítum ekki framhjá praktískum hliðum fullveldisins"

#4 ,,Lítum ekki framhjá praktískum hliðum fullveldisins"

17júl

Sigríður Á. Andersen og Birgir Ármannsson fara um víðan völl í þessum fjórða þætti hlaðvarpsins en snerta m.a. á lögfræðilegum þáttum Evrópusambandsins.

#3 Krónan eða Evran?

#3 Krónan eða Evran?

22jún

Í þessum þætti má finna varnaðarorð um það að leggja mikla áherslu á upptöku evrunnar en Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir og Bergþór Ólason, þingmenn Miðflokksins, fóru m.a. yfir kosti og galla upptöku evrunnar, og  gjaldmiðlaskýrsluna sem kom út fyrir stuttu síðan.

#2 ,,Þetta er meira eins og kollur út í horni en ekki sæti við borðið"

#2 ,,Þetta er meira eins og kollur út í horni en ekki sæti við borðið"

9jún

Þorgrímur Sigmundsson, þingmaður Miðflokksins, og Eiríkur S. Svavarsson, hæstaréttarlögmaður og varaþingmaður Miðflokksins, fara yfir grunnatriði Evrópusambandsins.  Ef þú vilt vita muninn á varanlegum undanþágum og sérlausnum, hvað það þýðir að Ísland verði nettógreiðandi í ESB eða hvort um yfir höfuð ,,sæti við borðið" sé að ræða, þá er þetta þátturinn fyrir þig!

#1 Baráttan um Ísland

#1 Baráttan um Ísland

31maí

Fyrsti þáttur hlaðvarpsins Baráttan um Ísland er nú kominn í loftið! Hlaðvarpið er rekið af þingmönnum Miðflokksins en næstu vikur og mánuði munu þeir sérstaklega taka fyrir ESB aðildarviðræðurnar. Hvernig koma það til að þann 29. ágúst n.k. munu Íslendingar kjósa um það hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið? Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, og Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður, fara yfir það.

Þér gæti líka líkað...